Fótbolti

Segir fé­lagið ekki vera að styðja hann lengur

Andri Broddason skrifar
Luciano Spalletti er ekki lengur viss hvar hann stendur með liði Juventus.
Luciano Spalletti er ekki lengur viss hvar hann stendur með liði Juventus. Vísir/Getty

Juventus steinlá fyrir Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í gær og virtist liðið hríðfalla eftir að hafa fengið fyrsta markið á sig. Luciano Spalletti þjálfari Juventus sagði eftir leikinn að hann væri ekki lengur viss hvort að hann væri með stuðning frá félaginu.

Mikið fjaðrafok virðist vera innan herbúða Juventus en nú nokkrum árum eftir að félagið var með sterkustu liðum í Evrópu virðist staða liðsins hafa versnað. Félagið missti naumlega af Meistaradeildarsæti á síðasta tímabili en samt hefur ekki gengið vel fyrir liðið í deildinni.

Spalletti viðurkenndi að Juventus væri verra liðið í leiknum gegn Lazio og að félagið væri einungis að bregðast við. Liðið náði aldrei að sýna frumkvæði og vera með yfirhöndina í leiknum. Hann var ekki ánægður með hugarfar nokkurra leikmanna því eftir að Juventus fékk fyrsta markið á sig þá hríðféll liðið.

„Það eru sumir sem berjast og aðrir sem falla niður í jörðina við fyrsta mótlæti, en það er alltaf hluti af persónugerð mannsins,“ sagði Spalletti samkvæmt La Gazetta dello Sport og virtist ekki vera sáttur með sína leikmenn. Einnig var hann spurður eftir leikinn hvort honum fyndist félagið enn vera að sýna honum stuðning en eftir þennan leik þarf hann að endurhugsa málið.

Guglielmo Vicario, markmaður Juventus, hvatti liðsfélaga sína til að vera áfram á vellinum og hlusta þegar stuðningsmenn Juventus bauluðu á þá. Hann tók svo undir orð Spalletti eftir leik og vill hífa Juventus aftur upp á þann stað sem liðið var á fyrir tíu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×