Fótbolti

Meistaradeildin að slá marka­met

Andri Broddason skrifar
Evrópumeistarar PSG hafa skorað mikið af mörkum þrátt fyrir erfiða leiki.
Evrópumeistarar PSG hafa skorað mikið af mörkum þrátt fyrir erfiða leiki. Mustafa Yalcin/Getty Images

Mikil umræða var þegar Meistaradeildin ákvað að breyta upplegginu sínu og voru ekki allir ánægðir með breytingarnar. Þetta er þriðja tímabilið sem breytingarnar eru og á sama tíma hafa aldrei verið skoruð jafn mörg mörk.

Í síðustu umferð deildakeppninnar spila öll lið á sama tíma og eru því 18 leikir spilaðir í einu. Það er því skiljanlegt að það séu markahæstu dagarnir en fyrir utan þær umferðir var markahæsta umferðin síðasta miðvikudag.

Það sem af er tímabili hefur meðalmagn marka í Meistaradeildinni verið 4,16 mörk í leik. Það verður að teljast gríðarlega mikið og er því áhorfandinn að fá nákvæmlega það sem hann vill sjá, nóg af mörkum.

Í fyrri útgáfu Meistaradeildarinnar var 32 liðum skipt í átta fjögurra liða riðla. Þar fóru efstu tvö lið í hverjum riðli áfram í 16-liða úrslit þar sem spiluð var útsláttarkeppni.

Nú eru 36 lið í Meistaradeildinni sem spila í einni stórri deild. Þar fara átta efstu liðin beint í útsáttarkeppni og átta neðstu liðin detta út. Þau sextán lið sem eru eftir mæta einu öðru liði í úrslitaviðureign um að komast í 16-liða úrslitin.

Með nýju fyrirkomulagi hafa fleiri mörk verið skoruð en ekki eru allir sammála um að það sé betra. Tom Arnott, sérfræðingur BBC, talaði um að stundum vantaði skipulag á liðunum og gæðin hafa því farið niður á við. Skemmtunin er þar en hluti af skemmtuninni er að sjá bestu leikmenn heims spila besta fótbolta heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×