Sport

Belgísku bak­garðskóngarnir með lygi­legt heims­met

Sindri Sverrisson skrifar
Merijn Geerts og Ivo Steyaert eru bestu bakgarðshlauparar heims.
Merijn Geerts og Ivo Steyaert eru bestu bakgarðshlauparar heims. Skjáskot/Youtube

Belgísku ofurhlaupararnir Merijn Geerts og Ivo Steyaert skráðu nafn sitt enn á ný í sögubækur bakgarðshlaupa nú í hádeginu þegar þeir settu nýtt heimsmet með því að hlaupa sinn 120. hring á heimsmeistaramóti landsliða.

Belgarnir luku 120. hringnum nú rétt fyrir klukkan 12 við gríðarlegan fögnuð landa sinna. Þeir eru hins vegar ekki hættir og héldu af stað í 121. sinn.

Þó að síðustu fulltrúar Íslands hafi hætt að hlaupa fyrir rúmum tveimur sólarhringum, sem skilaði Íslandi 20. sæti af 67 þjóðum, þá stendur HM enn yfir því Belgarnir tveir hafa haldið áfram að hlaupa sinn 6,7 kílómetra hring samfleytt í 120 klukkustundir, eða nákvæmlega fimm sólarhringa.

Þeir urðu þar með fyrstir í sögunni til að hlaupa yfir 800 kílómetra í bakgarðshlaupi, eða nákvæmlega 804 kílómetra, og hafa bætt heimsmet Ástralans Phil Gore sem sett var í fyrra.

Báðir eru þeir á sextugsaldri því Geerts er 52 ára en Steyaert 56 ára.

Þrátt fyrir magnaðan árangur þeirra Geerts og Steyaert þyrftu þeir að halda áfram að hlaupa lengi enn til að Belgía gæti unnið HM. Fimmtán fulltrúar eru í hverju landsliði og hafa Bandaríkjamenn hlaupið lengst eða samtals 1.120 hringi. Ástralía er í 2. sæti með 1.069 hringi og Belgía nú með 1.050 hringi í 3. sæti. Belgarnir þyrftu því að hlaupa saman tíu hringi í viðbót til að ná Ástralíu og í einn og hálfan sólarhring til að ná Bandaríkjunum. Íslenska landsliðið hljóp samtals 559 hringi.

Líka fyrstir til að hlaupa hundrað hringi

Geerts hefur nú sex sinnum farið yfir 100 hringi í bakgarðshlaupi, oftast allra, og Steyaert fjórum sinnum.

Geerts setti fyrst heimsmet með því að hlaupa 90 hringi árið 2022 og þeir Steyaert urðu svo fyrstir til að rjúfa 100 hringja múrinn á HM fyrir fjórum.

Þeir bættu þann árangur sinn aftur og hlupu 110 hringi fyrir tveimur árum en þá var Frank Gielen þriðji maður með þeim.

Í bæði þessi skipti hafa Belgarnir hætt á sama tímapunkti og því fagnað sigri saman í stað þess að einn standi uppi sem sigurvegari.

Síðan þá hafa Pólverjinn Lukasz Wróbel (116 hringir) og Ástralinn Phil Gore (119 hringir) hins vegar sett ný heimsmet en nú er metið aftur í eigu Belganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×