Sport

„Þetta er bara einn leikur í einu“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Ellen Nyström var öflug í kvöld
Ellen Nyström var öflug í kvöld Vísir/Vilhelm

Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur.

„Við byrjuðum vel og í hvert sinn sem við spilum vel varnarlega þá leiðir það áfram sóknarlega“ sagði Ellen Nyström en hún endaði stigahæst á vellinum með 31 stig og tók auk þess 15 fráköst fyrir Grindavík.

„Þegar við byrjuðum að vera svolítið þreyttar og við vorum ekki að loka svæðum og leyfa þeim að skjóta og vorum ekki að spila vel en við vorum fámenn í dag svo við urðum að sýna hörku og náðum góðum sigri“

„Við vitum að þær eru mjög gott lið og með frábæra skotmenn og við vorum að reyna loka á þriggja stiga skotin þeirra í byrjun og mér fannst það heppnast vel“

„Við settum nokkra á móti og við náðum góðu áhlaupi. Við vorum grimmar og spiluðum góða vörn þegar við þurftum og ég held að ef við getum spilað svona í 40 mínútur þá verðum við erfitt lið að eiga við á þessu tímabili“

Það voru nokkur skörð hogginn í lið Grindavíkur í kvöld og vantaði nokkra lykilmenn en það virtist þó ekki koma að sök.

„Sérstaklega með Isabellu frá fyrir fráköstin þá þurfti ég að spila svolítið meira inn í teig. Við söknum klárlega leikmannana en við spiluðum erfiðan leik og vorum allar klárar í að þurfa spila mikið og þurfa spila hörku vörn til þess að sækja sigurinn“

Grindavík eru núna einar á toppi deildarinnar taplausar eftir fjóra leiki.

„Það er frábært en það skiptir ekki öllu máli í restina. Við þurfum bara að taka einn leik í einu og ekki hugsa um leikina á undan og hugsa bara um næstu leiki. Þetta er bara einn leikur í einu“ sagði Ellen Nyström.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×