Innlent

Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi

Birgir Olgeirsson skrifar
Að jafnaði voru aðeins rúmlega átta af 35 stæðum á efstu hæð Bergstaða upptekin yfir daginn samkvæmt mælingum borgarinnar. Nú á að segja upp áskriftum og opna stæðin almenningi.
Að jafnaði voru aðeins rúmlega átta af 35 stæðum á efstu hæð Bergstaða upptekin yfir daginn samkvæmt mælingum borgarinnar. Nú á að segja upp áskriftum og opna stæðin almenningi. ja.is

Reykjavíkurborg ætlar að segja upp 34 bílastæðaáskriftum á efstu hæð Bergstaða og opna stæðin almenningi. Bílahúsið skilaði rúmlega tíu milljóna króna tapi í fyrra og mælingar sýna að flest stæði efstu hæðarinnar standa auð yfir daginn.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin með því fyrirkomulagi.

Samkvæmt rekstraryfirliti sem fylgir tillögunni voru tekjur Bergstaða 8,9 milljónir króna árið 2025 en kostnaðurinn 19,3 milljónir. Tapið nam því 10,5 milljónum króna. Þær tölur eiga við rekstur Bergstaða í heild.

Að jafnaði átta stæði upptekin

Á efstu hæðinni eru 35 stæði og voru áskrifendur 34 í september. Þrátt fyrir það sýna mælingar frá janúar til ágúst að aðeins 8,4 stæði voru upptekin að meðaltali frá klukkan sjö að morgni til miðnættis.

Meðalnýtingin var því 24 prósent, sem jafngildir því að um 27 stæði hafi að jafnaði staðið auð yfir mælitímann.

Borgin telur að með því að opna hæðina almenningi megi bæta nýtingu stæðanna, auka tekjur og einfalda rekstur bílahússins.

129 manns á biðlista

Í kynningu sem fylgir tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi áskrifendum verði send uppsögn í október. Hún taki gildi 1. febrúar 2027, að liðnum þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Þann 18. september voru 129 manns á biðlista eftir áskrift á efstu hæðinni. Bæði þeim og núverandi áskrifendum á að bjóða áskrift í Stjörnuporti eða Vitatorgi. 

Þeir geti einnig skráð sig á biðlista eftir stæði á neðstu hæð Bergstaða.

Íbúakortshafar eiga jafnframt að geta nýtt stæðin á grundvelli korta sinna eftir breytinguna.

Reiknidæmið gefur 22,7 milljónir

Borgin sér fram á auknar tekjur með breytingunni. Í kynningunni er reiknað með að ef öll 35 stæðin væru í áskrift samkvæmt gjaldskrá ársins 2027, á fimmtán þúsund krónur á mánuði, myndu þau skila 6,3 milljónum króna á heilu ári.

Skiluðu stæðin hins vegar sömu meðaltekjum og P1-stæði almennt árið 2026 yrðu árstekjurnar 22,7 milljónir króna. Munurinn er um 16,4 milljónir.

Þetta reiknidæmi nær aðeins til stæða efstu hæðarinnar. Í því er ekki sérstaklega útskýrt hvernig tekið er tillit til notkunar íbúakortshafa.

Losna við bómu og viðhald

Borgin telur einnig að rekstrarkostnaður lækki þegar aðgangsbúnaður efstu hæðarinnar verður fjarlægður.

Í kynningunni er bent á að bílar þurfi að stöðva í brekku við bómu í hálku. Búnaðurinn sé óvarinn og viðkvæmur og viðhald hans hafi kostnað í för með sér. Til stendur að fjarlægja bómuna og myndavélabúnað og nýta búnaðinn sem varahluti í öðrum bílahúsum.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar segja breytinguna bæta nýtingu og einfalda rekstur. Þeir leggja áherslu á að áskrifendur fái upplýsingar með góðum fyrirvara og þeim séu boðnir aðrir kostir.

Fulltrúar Samfylkingarinnar studdu breytinguna einnig. Þeir segja mikilvægt að nýta betur stæði í bílahúsum áður en götustæðum sé fjölgað á kostnað almenningsrýma.

Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins telur breytinguna ágæta en vill að borgin selji Bergstaði og skipuleggi íbúðabyggð á lóðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×