Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar 22. október 2026 16:01 Það er athyglisverð þversögn að ríkisstjórn sem leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um EES samninginn og bókun 35 skuli nú leggja á ferðamenn innviðaskatt í formi náttúrupassa. Sérstök gjaldtaka á að vera á þrjá fjölsóttustu ferðamannastaði Íslands, sem allir eru í Bláskógabyggð. Þar með er einu sveitarfélagi gert að bera hitann og þungann af þessari nýju gjaldtöku. Ætlar ríkisstjórnin að standa vörð um EES samninginn í heild sinni eða aðeins þegar það hentar pólitískt? Ein af grundvallarreglum EES réttar er bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs á þeim sviðum sem samningurinn tekur til. Það bann getur einnig náð til óbeinnar mismununar, þegar reglur koma verr niður á ríkisborgurum annara EES ríkja. Ríkisstjórnin hefur sett gjaldtökuna í þann búning að undanþiggja þá galdtöku sem hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi. Þannig myndu flestir Íslendingar sleppa við að greiða náttúrupassann á meðan erlendir ferðamenn þyrftu að greiða fyrir hann.Ég verð að varpa fram þeirri spurningu til ríkisstjórnarinnar, hvort raunverulegur munur sé á því að undanþiggja Íslendinga gjaldinu og að undanþiggja þá sem hafa skattalega heimilisfesti hér á landi? Ef undanþágan leiðir til óbeinnar mismununar þarf að sýna fram á að hún eigi sér málefnalega réttlætingu og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. Ég verð að leyfa mér að efast um að svo sé. Er í alvöru nóg að breyta orðalaginu ef áhrif gjaldtökunnar verða í reynd þau sömu? Hvers vegna aðeins í Bláskógabyggð? Önnur grundvallarspurning snýr að jafnræði milli landshluta. Einungis þrír ferðamannastaðir, allir innan Bláskógabyggðar, falla undir náttúrupassann. Á sama tíma hefur ekki verið framkvæmd greining af hálfu ríkisstjórnar á því hvort gjaldtakan geti haft áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustufyrirtækja í Bláskógabyggð gagnvart fyrirtækjum á öðrum ferðamannastöðum sem gjaldtakan nær ekki til. Ferðaþjónustan ein mikilvægasta atvinnugrein landsins Ferðaþjónustan ætti ekki að þurfa að bera afleiðingar illa undirbúinnar gjaldtöku, án þess að sýnt hafi verið fram á með fullnægjandi hætti að samræmist alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Við getum öll verið sammála um að verndun náttúrunnar og uppbygging innviða sé mikilvæg og krefjist aukins fjármagns. Það réttlætir hins vegar ekki það að stjórnvöld taki hér óþarfa lagalega áhættu og sparki í einstaka atvinnugrein í einstaka sveitarfélagi.Þar að auki er það óábyrgt að ætla að keyra slíka gjaldtöku í gegn og hefja innheimtu með litlum sem engum fyrirvara, án þess að það liggi fyrir niðurstaða um samræmi hennar við EES rétt. Ef það kæmi í ljós að gjaldtakan standist ekki ákvæði EES samningsins gæti íslenska ríkið staðið frammi fyrir endurgreiðslukröfum og jafnvel skaðabótaskyldu. Er það í alvörunni áhætta sem ríkisstjórnin er tilbúin að taka? Ríkisstjórnin getur ekki annars vegar gert virðingu fyrir EES samningnum og bókun 35 að einu af sínu helsta baráttumáli og hins vegar ætlast til þess að alvarlegum spurningum um samræmi eigin lagasetningar við sama samning sé ýtt til hliðar. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að ríkisstjórnin sýni fram á að fyrirhugaður náttúrupassi standist EES rétt áður en Alþingi samþykkir frumvarpið. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í Bláskógabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar