Innlent

Runólfur verður á­fram for­stjóri

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Runólfur Pálsson verður áfram forstjóri Landspítalans.
Runólfur Pálsson verður áfram forstjóri Landspítalans. Vísir/Vilhelm

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur fallist á beiðni ráðherra um að sinna áfram starfi forstjóra og hefur skipun hans verið framlengd til ársloka 2029. 

Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans greinir hann frá því að Alma Möller, heilbrigðisráðherra, hafi beðið hann um að sinna starfinu áfram. 

Í greininni fer hann jafnframt yfir ýmsar áskoranir í rekstri Landspítalans, segir spítalann ekki þola frekari niðurskurð og gerir athugasemdir við fjárveitingar vegna samninga við sjálfstætt starfandi aðila. Það sé forgangsmál að ráðast í endurskoðun á skipulagi og stýringu íslenskrar heilbrigðisþjónustu. 

„Nærtæk dæmi um þá nálgun sem virðist í fyrirrúmi hjá stjórnvöldum eru vanefndir varðandi launaendurmat til að mæta kjarasamningsbundnum hækkunum og vangreiðslur fyrir verk sem alla jafna ættu að fást greidd á grundvelli samnings um þjónustutengda fjármögnun,“ segir Runólfur.

Landspítalinn þolir ekki frekari niðurskurð, segir Runólfur.vísir/VIlhelm

Hann hvetur starfsfólk og almenning til þess að rýna þróun fjárveitinga til Landspítala síðasta aldarfjórðunginn. 

„Í þessu samhengi er enn fremur athyglisvert að bera þróun fjárframlaga til stofnunarinnar saman við útgjöld vegna samnings Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna á þessu sama tímabili, en þó einkum síðustu ár. Sá samanburður vekur óneitanlega efasemdir um hvort rétt sé haldið á stýringu fjárveitinga innan heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.“

Endurskipulagning nauðsynleg

Hann segist hafa vaxandi áhyggjur af stöðu spítalans innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Þær hafi aukist með framlagningu síðasta fjárlagafrumvarps. 

„Vöxtur starfsemi sem ekki lýtur virkri stýringu hefur verið áberandi síðustu ár og ber hæst sívaxandi kostnaður ríkisins vegna samnings við sjálfstætt starfandi aðila. Að mínu mati er óhjákvæmilegt að ráðist verði í endurskoðun á skipulagi og stýringu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í því skyni að tryggja landsmönnum fullnægjandi þjónustu til framtíðar ásamt markvissri nýtingu opinberra fjármuna,“ segir Runólfur.

„Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga veigamikið hlutverk Landspítala sem háskólasjúkrahúss þjóðarinnar og lykilstoðar íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Heildræn og samræmd stýring er að mínu mati sú leið sem tryggir raunhæfa hagkvæmni í því smáa og flókna kerfi sem íslenska heilbrigðisþjónustan er.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×