Íslenski boltinn

„Hún gæti orðið okkar lang­besti leik­maður“

Sindri Sverrisson skrifar
Ída Marín Hermannsdóttir hefur átt stórbrotið ár með FH, íslenska landsliðinu og nú Hammarby.
Ída Marín Hermannsdóttir hefur átt stórbrotið ár með FH, íslenska landsliðinu og nú Hammarby. vísir/Anton

„Hún verður ein af skærustu stjörnum okkar [Íslendinga],“ segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, um Ídu Marín Hermannsdóttur, besta leikmann Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

Þrátt fyrir að hafa verið seld frá FH til sænska félagsins Hammarby um miðjan ágúst og því ekki klárað tímabilið á Íslandi var Ída Marín valin best í Bestu deildinni. Hún var líkt og „af annarri plánetu“ í sumar, eins og Björn Sigurbjörnsson sérfræðingur Bestu markanna orðaði það, og skoraði 13 mörk í 15 leikjum en er nú farin að láta að sér kveða með einu allra besta liði Svíþjóðar sem og auðvitað með landsliðinu.

„Hún er snillingur,“ segir Guðni sem var fenginn til að lýsa Ídu í lokaþætti Bestu markanna en brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Guðni hældi Ídu á hvert reipi

„Hún er ólíkindatól og fer út um allt – í höfðinu og inni á vellinum. Það þarf svolítið að leyfa henni að vera Ída. Lykillinn að velgengni hennar hjá FH var að við leyfðum henni að vera hún sjálf. Það gerði að verkum að hún blómstraði hjá okkur alveg þar til að hún fór út í atvinnumennsku,“ segir Guðni.

Kom sem varamaður frá Val en náði á þann stall sem hún verðskuldar

Ída Marín kom til FH frá Val fyrir tímabilið 2024 en er uppalin hjá Fylki. Í ár hefur þessi 24 ára leikmaður sprungið út bæði með FH og landsliðinu.

„Hún er ein af þessum leikmönnum sem koma til okkar sem varamaður í Val. Hafði átt erfitt uppdráttar og náði að snúa því við, er núna í frábæru liði í Svíþjóð, í A-landsliðinu, og búin að koma sér á þann stall sem hún á svo sannarlega heima á. Við í FH erum ótrúlega stolt af henni,“ segir Guðni sem segir að áhersla hafi verið lögð á að efla sjálfstraust Ídu og leyfa henni að njóta sín á sínum forsendum:

„Betri vellíðan hennar skilar sér alltaf úti á vellinum. Með því að vinna með hana þannig að hún sé örugg með sjálfa sig, líði vel og fái traust til að gera það sem hún gerir svo vel, fái að gera mistök, gerir að verkum að sjálfstraust hennar jókst með hverjum leik. Hún naut sín svo vel og leikstíll FH hentar henni ofboðslega vel. Þess vegna var hún jafn öflug og raun bar vitni,“ segir Guðni sem er sannfærður um að Ída geti haldið áfram og náð mun lengra. Hennar hlutverk í landsliðinu muni bara stækka:

„Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður,“ segir Guðni en viðtalið við hann má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Ingibjörg valin sú efnilegasta

Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH, átti frábært tímabil fyrir Fimleikafélagið og var verðskuldað valin efnilegasti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×