Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. október 2026 14:34 Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. vísir/sigurjón Fleiri dæmi eru um að glæpamenn séu fluttir hingað til lands til að fremja alvarleg ofbeldisbrot og jafnvel morð gegn greiðslu. Stöndug og þekkt fyrirtæki eru gjarnan notuð af skipulögðum glæpasamtökum, bæði án vitneskju fyrirtækisins en einnig í augljósu samráði.
Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Tilefni samtalsins var kynning á löggæsluáætlun frá stýrihópi dómsmálaráðuneytisins fyrir árin 2027 til 2031. Í áætluninni kemur meðal annars fram að fjöldi skipulagðra glæpasamtaka hafi tvöfaldast á síðustu tíu árum. Árið 2015 voru skipulögð glæpasamtök tíu talsins hér á landi en eru nú tuttugu. Ævar sem sinnir rannsóknum á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi segir um alvarlega þróun að ræða. „Ég er að sjá þetta. Þetta eru tuttugu hópar en mögulega eru þessir hópar enn fleiri. Það er skipulögð glæpastarfsemi hérna. Fíkniefnamarkaðurinn hér virðist vera mjög ábótasamur. Við verðum að velta fyrir okkur eftirspurninni eftir þessum fíkniefnum. Hvaða fólk er það sem hefur efni á því að kaupa þessi dýru fíkniefni eins og kókaín og ketamín?“ Hann segir fíkniefnainnflutning keyra áfram skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Vændi og mansal hafi einnig verið að færast í aukana. Hann fagnar nýju löggæsluáætluninni sem muni byggja undir starf lögreglunnar. Mismunandi þjóðerni vinni saman þvert á venjur Spurður hvort það sé mikið um átök meðal þessara hópa og hvort uppgjörum í undirheimunum fjölgi segir hann: „Það segir sig sjálft að þegar það eru fleiri hópar þá aukast verkefnin. Sumt ratar ekki til lögreglu nema með óformlegum hætti. Það sem er ólíkt hér á landi miðað við erlendis er að það er samstarf ólíkra hópa. Það sem við heyrum frá kollegum okkar erlendis er að tiltekið þjóðarbrot vinnur ekki með öðru þjóðarbroti. Hér er það hins vegar að gerast. Ofbeldi hefur alltaf fylgt brotastarfsemi og með auknum fjölda hópa sjáum við aukið ofbeldi.“ Greint var frá því í dag að fjögurra manna hópi hafi verið snúið við á Keflavíkurflugvelli vegna gruns um að fólkið hafi verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn þeirra var stuttu síðar handtekinn vegna tilraunar til manndráps í Svíþjóð. Ævar segir fleiri dæmi um að menn séu fluttir hingað til lands og boðin greiðsla til að fremja voðaverk. „Það eru mál í rannsókn þar sem allt bendir til þess að þar hafi verið um aðkeypta þjónustu til að fremja alvarlegt ofbeldi að ræða.“ Er þá jafnvel verið að ráða launmorðingja hingað til lands? „Já, jafnvel.“ Ekki algengt að börn séu hagnýtt hér á landi Maðurinn sem var handtekinn í Svíþjóð eftir að hafa verið vísað frá landi við landamærin hér á landi notaði sextán ára stúlku til að tæla brotaþola á ákveðinn stað. Að sögn Ævars hafa Svíar verið að berjast gegn því í auknum mæli að börn séu hagnýtt með þessum hætti. „Það er verið að fá börn í viðkvæmri stöðu og nota þau til að fremja mjög alvarleg ofbeldisverk og jafnvel morð. Börnin þurfa ekki að vera í viðkvæmri stöðu. Það er verið að nýta stafræna miðla til að ná til þessara barna og lofa þeim greiðslum sem skila sér síðan ekkert endilega.“ Ævar segist hafa áhyggjur af því að börn verði hagnýtt af glæpasamtökum hér á landi. „Ég get ekki sagt að það sé mikið um þetta hér á landi en það er þróun sem við viljum ekki að verði.“ Stöndug fyrirtæki misnotuð eða þjónusta glæpamenn Samhliða þessari miklu fjölgun skipulagðra glæpasamtaka hefur fólksfjölgun hér á landi verið töluverð. Spurður hvers þjóðernis þessir hópar eru og hvernig þeir eru samsettir segir Ævar: „Þetta eru ekki bara íslenskir hópar. Þetta eru hópar sem eru skipaðir fólki sem kemur erlendis frá. Ég er ekki með nákvæmar tölur um hvernig skiptingin er. Þessir hópar eru margir með tengingar erlendis, að sjálfsögðu. Þeim berast oft fyrirmæli um ákveðin verk. Peningarnir rata þá úr landi til þessara hópa.“ Í nýrri starfsáætlun lögreglunnar er bent á það að innlend fyrirtæki eru gjarnan nýtt af skipulagðri starfsemi. Til dæmis til að þvætta illa fengið fé og til annarra verka. Hvernig fyrirtæki eru þetta? Eru dæmi um rótgróin íslensk fyrirtæki sem flestir kannast við? „Það eru alveg dæmi um stöndug og þekkt fyrirtæki en það þýðir ekki endilega að fyrirtækin átti sig á því að það sé verið að nýta þau. Í öðrum tilfellum er það augljóst.“
Lögreglumál Lögreglan Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira