Skoðun

Óðinn heldur fyrir heila augað

Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar

Í Viðskiptablaðinu skrifar dálkahöfundur sem kallar sig Óðinn. Þar birtist grein 1. október sl. og var tilefni hennar að gagnrýna grein sem ég skrifaði stuttu áður í Vísi þar sem ég lýsti yfir áhyggjum af uppsögnum í Stjórnarráðinu. Athygli mín var vakin fyrir stuttu á þessum skrifum Viðskiptablaðsins en þau höfðu farið fram hjá mér vegna þess hversu lítið fór fyrir þeim.

Í grein minni fjallaði ég meðal annars um uppsagnir í dómsmálaráðuneytinu. Óðinn kýs hins vegar að svara þeim áhyggjum í tölfræðilegum samanburðarstíl með því að bera starfsmannafjölda nú saman við tölur frá árinu 1995, eða fyrir ríflega 30 árum. Síðan þá hefur landsmönnum fjölgað um rúm 40%. Árið 1995 var netið rétt að byrja að ryðja sér til rúms á Íslandi, Wonderwall með Oasis ómaði lon og don í útvarpinu og ferðamenn til Íslands voru brot af þeim fjölda sem sækir landið heim nú. Sjálfur man ég helst eftir þýskum puttaferðalöngum. Samsetning samfélagsins og verkefni stjórnsýslunnar voru þá með allt öðrum hætti.

Árið 1995 voru ráðuneytin fjórtán í stað ellefu nú. Málaflokkar færast reglulega á milli ráðuneyta, frá ráðuneytum í undirstofnanir þeirra og jafnvel til baka í ráðuneytin aftur, allt eftir vilja stjórnvalda hverju sinni. Þannig var rekstur grunnskólanna færður frá ríkinu til sveitarfélaganna þetta ár. Verkefnin færðust til en hurfu ekki.

Á undanförnum áratugum hafa orðið umfangsmiklar breytingar á íslenskri stjórnsýslu og nýir málaflokkar hafa orðið til. Hversu umfangsmikil voru verkefni á sviði netöryggis og útlendingamála árið 1995 miðað við nú? Löggjöf hefur þróast, alþjóðlegar skuldbindingar aukist, kröfur um upplýsingagjöf og gagnsæi orðið meiri og verkefni stjórnvalda hafa tekið breytingum. Einnig hafa kröfur til undirbúnings ákvarðana, eftirlits og faglegra vinnubragða aukist.

Óðinn bendir réttilega á að fjölgun starfsfólks sanni ekki að stjórnsýslan hafi batnað. En af sömu ástæðu sannar fjölgun stöðugilda ekki að stjórnsýslan hafi þanist út umfram þörf. Til þess þarf að skoða verkefnin, ábyrgðina og árangurinn.

Ég hef hvergi haldið því fram að fjöldi starfsmanna Stjórnarráðsins eigi að vera óbreyttur um alla framtíð. Ég hef heldur ekki sagt að hvert einasta stöðugildi sé ómissandi eða að ekki megi finna tækifæri til hagræðingar.

Þvert á móti er mikilvægt að stjórnsýslan sé reglulega endurskoðuð og að opinberum fjármunum sé ráðstafað af ábyrgð. Stundum getur það kallað á breytta verkaskiptingu, tæknivæðingu eða einföldun regluverks. Og stundum getur niðurstaðan verið sú að of fáir starfsmenn sinni þegar tilteknum verkefnum.

Fólk getur haft ýmsar skoðanir á notkun skattpeninga og verkefnum ríkisins en villandi leikir með tölur og prósentur svara þó ekki þeim spurningum sem svara þarf.

Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS).




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×