Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 31. október 2026 14:24 Hvers vegna eiga íslenskir skattgreiðendur að bera sífellt þyngri byrðar vegna kolefnislosunar þegar við losum lítið miðað við aðra aðila á heimsvísu? Gerðir að blóraböglum þegar við notum endurnýjanlega orkugjafa og erum langt komnir í að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Það er full ástæða til að spyrja hvort íslensk stjórnvöld hafi nægilega skýran mælikvarða þegar kemur að skattheimtu vegna umhverfismmála. Er sanngjarnt að leggja sífellt hærri skatta á heimili, bændur og fyrirtæki í landi sem hefur byggt orkukerfi sitt að mestu á endurnýjanlegum orkugjöfum, á meðan stærstu iðnaðarsamsteypur heims losa margfalt meira af gróðurhúsalofttegundum? Samkvæmt nýjustu bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands nam losun íslenska hagkerfisins og heimilanna um 6,4 milljónum tonna af CO₂-ígildum árið 2025. Til samanburðar birtir breska iðnaðarsamsteypan INEOS, stofnuð af Jim Ratcliffe, sem enn er stjórnarformaður hennar og einn helsti eigandi, heildarspor sitt vegna gróðurhúsalofttegunda upp á 115,1 milljón tonna af CO₂-ígildum árið 2024. Það er nærri átjánföld losun alls íslenska hagkerfisins og heimila. Mikilvægt er að hafa í huga að tölur INEOS ná ekki aðeins til beinnar losunar verksmiðja fyrirtækisins heldur einnig til allrar virðiskeðjunnar. En þær lofttegundir sem fara út með koltvísýrlingnum frá iðnarveldi Rattcliffs eru hugsanlega verri en í íslensku losunartölunum. Og í báðum tilfellum er vatnsgufu sem sennilega er um helmingur gróðurhúsaáhrifa sleppt. Tölurnar eru gefnar upp í CO₂-ígildum. Það þýðir að ekki er eingöngu verið að mæla koltvísýring þótt hann sé stærsti hlutinn. Íslenskir skattgreiðendur búa við allt aðrar orkuforsendur en flest Evrópulönd. Raforkuframleiðsla hér á landi byggist nær alfarið á vatnsafli og jarðvarma. Húshitun er að mestu með jarðhita, rafbílavæðing hefur verið hröð og íslensk gróðurhús nýta jarðhita og raforku við matvælaframleiðslu. Þetta þýðir ekki að Ísland sé án umhverfisvandamála en lausnin er ólíklega sú ómarkvissa skattlagning sem nú er staðan og er líka hlutfallsllega út úr kortinu m.v. ástand mála hérlendis og útblástur okkar. Það mjög ólíklegt að skattlagning sem kann að hafa áhrif í ríkjum sem reiða sig á kol, olíu og gas skili sambærilegum ávinningi hér á landi. Jim Ratcliffe: náttúruvernd á Íslandi og iðnaðarstarfsemi á heimsvísu. Sérstaklega áhugavert er að skoða þetta í samhengi við landakaup Jim Ratcliffe á Íslandi. Ratcliffe er stofnandi og stjórnarformaður INEOS og hefur í gegnum félagið Halicilla eignast eða eignast hlut í um 39 íslenskum jörðum, samkvæmt gögnum sem lögð voru fram á Alþingi árið 2020. Þar af voru 22 að fullu í eigu félagsins en 17 í sameiginlegri eigu. Einnig voru tilgreind tvö afréttar- eða sameiginleg beitarsvæði. Eldri úttektir hafa metið jarðeignir hans um 1,4% af ræktuðu landi á Íslandi. Kaup hans hafa einkum beinst að Norðausturlandi, meðal annars í Vopnafirði. Opinberlega hefur verið vísað til verndar á villtum laxastofnum og náttúruverndar sem mikilvægra raka fyrir þessum fjárfestingum. Það er vissulega jákvætt ef fjárfestingar stuðla að vernd íslenskra áa og náttúru. En það er jafnframt eðlilegt að almenningur spyrji um heildarmyndina: Hvernig samræmast slík náttúruverndarmarkmið starfsemi alþjóðlegrar iðnaðarsamsteypu sem losar 115,1 milljón tonna af gróðurhúsalofttegunda á ári? Viðskiptasaga Ratcliffe á Íslandi vekur einnig upp spurningar um samþjöppun eignarhalds og tilgang. Árið 2018 keypti Ratkliff félagið Grænaþing af Jóhannesi Kristinssyni, fyrrverandi viðskiptafélaga Pálma Haraldssonar í Fons. Grænaþing átti 52,67% hlut í Veiðifélaginu Streng, en Ratcliffe átti þá þegar 34% í félaginu í gegnum Fálkaþing. Með kaupunum varð hlutur hans í Streng 86,67%. Streng hafði meðal annars veiðiréttindi í Selá og Hofsá í Vopnafirði og tengsl við eignarhluti í sex jörðum. Meðal þeirra jarða sem tengdust Grænaþingi var jörð sem var heimili þáverandi þingflokksformans í flokki í ríkisstjórn. Grænaþing eignaðist 20% hlut í jörðinni. Þessi eignarhlutur komst því óbeint undir yfirráð Ratcliffe þegar hann keypti félagið. Þessi viðskipti eru ekki sönnun um óeðlileg afskipti eða ólögmæta háttsemi. En þau vekja réttmætar spurningar um samþjöppun lands, veiðiréttinda og fjárhagslegra hagsmuna í höndum eins erlends fjárfestis. Einnig hafa komið fram frásagnir af deilum við bændur í tengslum við landakaup og girðingarmál sem gerði bændum sem fyrir voru lífið erfitt fjárhagslega. Ekki er hægt að tengja þessar deilur við þá tvo aðila sem nefndir hafa verið en þeir áttu í deilum á svæðinu, svo það er langt frá útilokað. Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2021 er meðal annars fjallað um mál bónda í Þistilfirði sem taldi kröfu nýrra nágranna um girðingu vera til þess fallna að koma sér fjárhagslega í erfiða stöðu. Slíkar frásagnir ber að rannsaka og meta á grundvelli gagna, en þær undirstrika mikilvægi þess að eignasöfnun og samningsaðferðir stórra landeigenda séu til opinberrar umræðu. Kjarni málsins er ekki hvort Íslendingar eigi að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi um loftslagsmál. Það eigum við að gera. Spurningin er hvort skattlagningin sé sanngjörn, markviss og í réttu hlutfalli við raunverulegan umhverfislegan ávinning. Ef öll íslensk heimili, bændur og fyrirtæki eru látin bera sífellt meiri kostnað vegna losunar gróðurhúsalofttegunda, hlýtur að mega spyrja hvers vegna sama áhersla er ekki lögð á alþjóðlegar iðnaðarsamsteypur sem hafa margfalt stærra kolefnisspor. Það er ekki sanngjarnt að láta íslenskan almenning líta á sig sem einn helsta ábyrgðaraðila loftslagsvandans þegar orkukerfi landsins er þegar að verulegu leyti byggt á endurnýjanlegum orkugjöfum. Stjórnvöld ættu því að svara nokkrum einföldum spurningum: Hvaða raunverulegum samdrætti í losun skila kolefnis- og umhverfisskattar á íslensk heimili og fyrirtæki? Er tekið nægilegt tillit til þess að Ísland hefur þegar náð miklum árangri í orkuskiptum? Er skattlagningin í réttu hlutfalli við losun og raunverulegan umhverfislegan ávinning? Hvernig er tryggt að íslenskir skattgreiðendur beri ekki óeðlilega mikinn kostnað miðað við stærri og mun meira mengandi iðnaðarhagkerfi? Og hvernig tryggjum við að erlendir fjárfestar sem eignast stóran hluta íslensks lands og nýta íslenskar náttúruauðlindir starfi í samræmi við þau náttúruverndarmarkmið sem þeir sjálfir hafa kynnt? Íslendingar eiga ekki að þurfa að hafna alþjóðlegri ábyrgð til að verja hagsmuni sína. En þeir eiga heldur ekki að samþykkja sífellt þyngri skattbyrði án þess að krefjast skýrra raka, mælanlegs árangurs og sanngjarnrar skiptingar kostnaðarins. Loftslagsmál eiga að snúast um raunverulegan árangur, ekki skattheimtu sem markmið í sjálfu sér. Höfundur er fjármálahagfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun