Innlent

Eldur í fjöl­býli í Norðlingaholti

Agnar Már Másson skrifar
Mikill reykur rís úr fjölbýlishúsinu.
Mikill reykur rís úr fjölbýlishúsinu. Guðmundur Birgir

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út vegna elds sem kom upp í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík.

Aldís Rún Lárusdóttir varaslökkviliðsstjóri segir við Vísi að allar stöðvar slökkviliðsins hafi verið boðaðar á vettvang. Fyrstu bílar séu komnir á vettvang og fleiri séu á leiðinni.

Enn sé að fást mynd af umfangi eldsins. „En þetta er alveg alvöru eldur,“ bætir Aldís við.

Um er að ræða fjölbýlishús við Elliðabraut, að sögn eins sjónarvotts sem Vísir ræddi við.

Á myndum af vettvangi sést stórt reykský rísa upp úr húsinu. Íbúar virðast hafa komið sér út.

Guðmundur Birgir

Frétt hefur verið uppfærð.



Guðmundur Birgir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×