Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. nóvember 2026 15:20 Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, er ekki ánægður með ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. vísir/anton brink Þingflokksformaður Framsóknarflokksins krafðist svara frá utanríkisráðherra á Alþingi í dag vegna ummæla framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðherra sagði færslu fyrrverandi forseta alvarlegri.
Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, tók til máls á þingi í dag og sagði ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, alvarleg. Eins og greint hefur verið frá svaraði Heimir færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta á X með þeim orðum að forsetinn ætti að senda hermenn til Úkraínu og undirbúa kjarnorkuvopnin. Heimir baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Starfinu fylgi ábyrgð og afsökunarbeiðni nægi ekki til Í máli sínu ítrekar Stefán að framkvæmdastjóri þingflokks í ríkisstjórn ætti ekki að láta slík ummæli falla í opinberri umræðu. Stefán minnir á að beiting kjarnavopna hafi skelfilegar afleiðingar í för með sér. „Þótt viðkomandi hafi nú beðist afsökunar og fannst það reyndar mikilvægt í þeirri yfirlýsingu að taka það fram, virðulegur forseti, að þetta væri nú ekki stefna Flokks fólksins, ef einhver var að velta því fyrir sér, heldur skrif á hans eigin vegum, þá vekja þessi ummæli augljóslega upp spurningar, ekki síst í ljósi þess, eins og ég sagði áður, að þau koma frá einstaklingi sem gegnir ábyrgðarstöðu fyrir einn ríkisstjórnarflokkanna,“ sagði Stefán í ræðu sinni og beindi síðar orðum sínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Stefán spurði hvort slík ummæli væru til þess fallin að hafa orðsporsáhættu fyrir íslenska ríkið. Hann hélt síðan áfram: „Og hvort hæstvirtur ráðherra hafi rætt þessi ummæli við samstarfsflokka sína í ríkisstjórn til að tryggja að enginn vafi leiki á afstöðu íslenskra stjórnvalda til beitingar slíkra vopna.“ Undirtónninn sé stuðningur við Úkraínu sem sé gott og vel Utanríkisráðherra steig þá upp í pontu og ítrekaði að Heimir hefði beðist afsökunar á ummælunum, það væri kýrskýrt. „Þessar yfirlýsingar eru ekki í samræmi við neitt sem snertir íslenska utanríkisstefnu. Það sem við erum hins vegar samhuga og einhuga hér um er að styðja við Úkraínu gagnvart grimmdarárásarstríði Rússa. Það er undirtónninn. Það er skilningurinn sem ég sé út úr þessu og það er það sem ég tek með mér.“ Hún tók einnig fram að afstaða Íslands væri augljós verandi meðlimur Atlantshafsbandalagsins. Hún ítrekaði enn frekar samstöðu með Úkraínu. „Mér finnst gott að hann var fljótur að biðjast afsökunar á þessu enda er stefna Íslands alveg skýr þegar kemur að kjarnorkuvopnum. Við styðjum afvopnun stórveldanna varðandi kjarnorkuvopn. Það er hins vegar umhugsunarefni að núna er sá alþjóðasamningur ekki í gildi. Það er stóra áhyggjuefnið; að við erum ekki lengur með í gildi, til að mynda á milli stórveldanna, ákveðinn farveg til þess að draga úr kjarnorkuvopnum.“ „Þetta er grafalvarlegt mál“ Stefán Vagn tók þá aftur til máls og þakkaði Þorgerði fyrir svarið. Hann tók þó fram að hann hafi ekki verið að spyrja um stuðning við Úkraínu. Að hans mati séu allir á þinginu sammála um að standa með Úkraínu í baráttunni gegn Rússum. Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins.vísir „Þetta snýst um eitthvað allt annað. Þetta snýst um hvernig við og okkar embættismenn komum fram á opinberum vettvangi. Okkur getur greint á um það hver upplifunin eða skilningurinn var með þessum skilaboðum en textinn var algjörlega skýr,“ sagði hann og ítrekaði spurningu sína til Þorgerðar og spurði hvort Þorgerður teldi afsökun nægja til að loka málinu: „Er það nægilegt að viðkomandi segi bara: Nei, ég hefði kannski ekki átt að gera þetta og ég lofa því að gera þetta ekki aftur og svona til að tryggja að þetta gerist ekki þá er ég hættur á þessum miðli. Eru það einu viðbrögð okkar í þessu máli þegar ég held allavega að þeir sem ég hef talað við, bæði innan þessa húss og utan, sjái alvarleika málsins, virðulegur forseti? Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál.“ Sagði tíst Ólafs Ragnars verra Þorgerður svaraði með því að ítreka enn á ný afsökunarbeiðni Heimis. Hún ítrekaði jafnframt að afstaða íslenskra stjórnvalda gagnvart kjarnavopnum og stuðningi við Úkraínu gæti ekki verið skýrari. Hún minntist síðan á aðra færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, deildi færslu frá Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem hafði gagnrýnt NATO. „En ég hugsa núna þegar það kemur þessi athugasemd um eitt tíst frá Heimi Má Péturssyni, sem er búinn að draga það til baka, alveg skýrlega, að það sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá Sergei Lavrov þar sem hann agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit NATO, Arctic Sentry, sem eykur öryggi hér á norðurslóðum. Þá var því endurtíst hér af fyrrum forráðamanni íslenskra stjórnvalda. Það finnst mér miklu alvarlegra heldur en þetta,“ sagði hún og undirstrikaði enn á ný stuðning við Úkraínu: „Við stöndum með Úkraínu, við erum ekki að hossa Rússum og mér finnst merkilegt að enginn úr stjórnarandstöðunni skuli hafa áhyggjur af þessu.“
Alþingi Flokkur fólksins Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira