Sport

Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við.“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukur fyrir æfingu landsliðsins í Safamýrinni í gær.
Haukur fyrir æfingu landsliðsins í Safamýrinni í gær. vísir/sigurjón

„Það er alltaf gaman að koma heim og hitta strákana, það breytist aldrei. Það er gaman að koma heim og breyta aðeins til,“ segir Haukur Þrastarson landsliðsmaður Íslands fyrir leikinn gegn Úkraínu sem fram fer í Laugardalshöllinni annað kvöld. Um er að ræða fyrsta leik Íslands í undankeppni EM sem fram fer á Spáni árið 2028. Um helgina mætir Ísland síðan Eistlandi í riðlinum.

Haukur segist ekki vita mikið um lið Úkraínu.

„Við svona eigum eftir að fara betur yfir þá. Erum að hittast fyrst núna og okkur vantar enn þá einhvern mannskap þannig að það verður betur farið yfir þá.“

Hann segist sjálfur vera í flottu standi persónulega.

„Ég er góður, í fínu formi og verkefnið líst bara mjög vel á mig. Þetta eru leikir sem við ætlum okkur að vinna og gera þetta vel. Þetta er mikilvæg vika.“

Lið Hauks, Rhein-Neckar Löwen, hefur ekki náð sér á strik á tímabilinu hingað til. Þjálfari liðsins, Maik Machulla, var rekinn í síðasta mánuði og situr liðið í 13. sæti deildarinnar. Einnig hefur verið fjallað um fjárhagsvandamál hjá félaginu síðustu vikur.

„Auðvitað hefur þetta ekki verið nægilega gott og frammistaðan ekki nógu góð. Það er engin spurning. Þjálfarinn var látinn fara en það er hluti af þessu þegar úrslitin hafa ekki verið að detta. Þetta er auðvitað leiðinlegt en þetta er góður tími til að snúa þessu við.“

En ef fjárhagsvandamál félagsins eru mjög slæm, sér Haukur þá fyrir sér að þurfa að fara frá liðinu?

„Það er ekkert sem kemst að núna og ekkert sem hefur verið einhver pæling. Nú er bara að gera betur inni á vellinum sem lið og fara að ná í úrslit, það er það eina sem kemst að.“

Klippa: Haukur um slæma stöðu Löwen



Fleiri fréttir

Sjá meira


×