Innherji

Daði og Guð­laugur kaupa út aðra hlut­hafa Visku sjóða

Hörður Ægisson skrifar
Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku sjóða, og Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjárfestingarstjóri Visku, eru í dag einu hluthafar sjóðastýringarfélagsins. 
Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku sjóða, og Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjárfestingarstjóri Visku, eru í dag einu hluthafar sjóðastýringarfélagsins. 

Tveir af stofnendum Visku sjóða, þeir Daði Kristjánsson og Guðlaugur Steinarr Gíslason, hafa keypt út fjóra aðra hluthafa sjóðastýringarfélagsins og fara nú saman með allt hlutafé þess. Félagið breikkaði út starfsemina sína á liðnu ári með stofnun nýs hlutabréfasjóðs sem er um tveir milljarðar að stærð.


Tengdar fréttir

Viska stofnar nýjan sjóð sem mun einkum fjár­festa í hluta­bréfum

Fjárfestingafélagið Viska Digital Assets hefur tekið upp nýtt nafn og heitir nú Viska sjóðir. Samhliða nafnabreytingunni kynnir félagið nýjan sjóð, Viska macro, sem byggir á heildarsýn félagsins á alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Nýr sjóður leggur áherslu á fjárfestingar í tækni og hörðum eignum, þar sem uppgangur gervigreindarinnar og áhrif hennar á hagkerfi eru leiðandi stef í stefnu sjóðsins.

Viska fer af stað með fyrsta raf­mynta­sjóðinn

Viska Digital Assets, nýtt félag sem leggur áherslu á fjárfestingar í rafmyntum, hefur gengið frá 500 milljóna króna fjármögnun á fyrsta sjóði félagsins. Hann er jafnframt fyrsti íslenski fagfjárfestasjóðurinn sem sérhæfir sig í rafmyntum og Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Visku, segir í samtali við Innherja að miklar lækkanir á mörkuðum hafi skapað tækifæri sem teymið á bak við Visku sé tilbúið að grípa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×