Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 3. nóvember 2026 15:47 Það þarf töluvert hugmyndaflug til að sjá stórkostlegar umbætur í því að skipta bókstafnum B út fyrir töluna 7. Samt er breyting á einkunnakvarða nú rædd eins og hún muni gera námsmat sanngjarnara, skýrara og faglegra. Staðreyndin er einföld. Það að breyta því hvernig niðurstaða námsmats er birt breytir engu um hvernig kennarinn komst að henni. Nemandinn kann nákvæmlega það sama, kennarinn hefur metið sömu hæfni og faglega vinnan að baki er óbreytt. Það er því löngu tímabært að greina á milli þess að breyta einkunnablaðinu og þess að bæta námsmat. Stóra breytingin sem breytti engu Ímyndum okkur nemanda sem hefur unnið verkefni, tekið próf og sýnt hvað hann kann. Kennarinn hefur fylgst með náminu, metið vinnuna og komist að þeirri niðurstöðu að nemandinn eigi að fá B. Nú ákveða stjórnvöld að í stað B eigi að standa 7 á einkunnablaðinu. Hvað breyttist? Lærði nemandinn meira? Var kennslan betri? Var mat kennarans nákvæmara? Nei. Við breyttum einfaldlega því hvernig niðurstaðan birtist. Þetta er svipað og þegar farið var að gefa vindhraða upp í metrum á sekúndu í stað vindstiga. Vindurinn blæs alveg jafnt og áður. Það breyttist aðeins hvernig við lýsum því hversu hratt vindurinn fer. Kennarinn metur, kvarðinn birtir Námsmat er faglegt starf. Kennarinn metur hvað nemandinn kann, hvað hann skilur og hvernig hann getur nýtt þekkingu sína. Til þess notar hann verkefni, próf, samtöl og ýmsar aðrar leiðir. Einkunnin er síðan ein leið til að segja frá niðurstöðunni. Hvort hún birtist sem bókstafur eða tala breytir engu um vinnuna sem liggur að baki. Sama gildir um huglægt mat kennara. Það verður hvorki hlutlægara né nákvæmara við það eitt að skrifa 7 í stað B. Nýr kvarði leysir ekki gamlan vanda Því hefur verið haldið fram að breytingin sé nauðsynleg til að tryggja samræmi og sanngirni í einkunnagjöf. En þar er grundvallaratriðum ruglað saman. Það er ekki einkunnakvarðinn sem tryggir samræmi heldur sameiginleg viðmið, skýrar leiðbeiningar og samræmd fagleg vinnubrögð. Tveir kennarar geta metið sömu ritgerð með ólíkum hætti og gefið henni 7 og 8, rétt eins og þeir gætu gefið henni B og B+. Það vandamál hverfur ekki við það að skipta um tákn. Það er bæði villandi og beinlínis rangt að halda þessu því fram. Einnig hefur verið bent á að lokaeinkunnir eigi að byggjast á fjölbreyttum verkefnum og faglegu heildarmati kennara. En þannig hefur námsmat einmitt verið framkvæmt. Það er því ekkert nýtt í þeirri hugsun og hún er ekki háð því hvort niðurstaðan birtist með bókstaf eða tölu. Þegar því er haldið fram að tölustafir einir og sér tryggi ekki samræmi er í raun komið að kjarna málsins. Þegar umbúðirnar verða að aðalatriði Ákvörðun um hvort nota eigi bókstafi eða tölur er ákvörðun stjórnvalda um birtingu niðurstaðna. Það er ekki faglegt mat á námi nemenda. Auðvitað skiptir máli að foreldrar og nemendur skilji einkunnirnar en talan 7 segir okkur ekkert meira en bókstafurinn B nema við vitum hvað liggur að baki. Það er blekkingarleikur að halda því fram. Það er full ástæða til að spyrja hvað nemandinn muni læra betur þegar B verður að 7. Það er hægt að breyta einkunnakvarða með einni stjórnvaldsákvörðun. Það er öllu meira verkefni að bæta nám nemenda. Og það væri ágætt að þeir sem taka ákvarðanir um menntakerfið gerðu skýran greinarmun á því að breyta birtingu niðurstaðna og því að bæta sjálft námið. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun