Skoðun

Að eldast er að lifa

Halldór S. Guðmundsson og Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifa

Á Íslandi líkt og víða annars staðar í heiminum, lifa íbúar lengur en nokkru sinni fyrr. Þessi þróun er talinn einn mesti árangur á sviði lýðheilsu og félagslegra umbóta síðustu áratuga. Samhliða þessum framförum vaknar umræða um mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri ár þýði einnig betri ár? Til að svara þessari spurningu hefur Evrópunefnd Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunarinnar nýlega samþykkt nýja stefnuyfirlýsingu fram til 2030. Þar hverfist leiðarljósið um verkefni undir heitinu Að eldast er að lifa (Ageing is Living: A Strategy for Promoting a Lifetime of Health and Well-being in the WHO European Region 2026–2030).

Kjarninn í hugtakinu Að eldast er að lifa (Ageing is Living) er að öldrun sé ekki vandamál sem þarf að leysa heldur eðlilegur og verðmætur hluti lífshlaupsins. Stefnan leggur áherslu á að samfélög þurfi að hætta að líta fyrst og fremst á hærri aldur út frá sjúkdómum, þjónustuþörf eða kostnaði og beina sjónum frekar að þátttöku, virkni, reisn og möguleikum fólks á öllum æviskeiðum.

Stefnan byggir á tvíþættri nálgun. Annars vegar er lögð áhersla á að bæta heilsu, velferð og umönnun þeirra sem eru eldri í dag. Hins vegar er fjárfest í forvörnum, heilsueflingu og félagslegum aðstæðum sem stuðla að því að komandi kynslóðir geti elst og þroskast við betri heilsu og meiri lífsgæði. Með öðrum orðum að heilbrigð öldrun er talin hefjast löngu áður en fólk telst komið á efri ár.

Meðal helstu áherslna stefnunnar er nálgun út frá lífshlaupi fólks og lýðheilsu, samþættingu og einstaklingsmiðun í heilbrigðis- og félagsþjónusta, eflingu langtímaþjónustu og stuðnings við aðstandendur, þróun aldursvænna samfélaga og aukin nýtingu nýsköpunar og tæknilausna. Jafnframt er lögð rík áhersla á að berjast gegn aldursfordómum og styrkja hlutverk eldra fólks sem virkra þátttakenda í samfélaginu.

Fyrir Ísland og önnur Evrópuríki er þessi stefnumörkun mikilvægt innlegg og fordæmi í umræðu og áherslur í samfélaginu og einnig þörf áminning um að lýðfræðilegar breytingar eru ekki aðeins áskorun heldur einnig tækifæri. Samfélög sem fjárfesta í heilsu, þátttöku og sjálfstæði fólks alla ævi eru betur í stakk búin til að takast á við fjölgun í hópi eldri fólks. Boðskapurinn er einfaldur en mikilvægur: Að eldast er ekki lokakafli lífsins heldur eðlilegur hluti lífsins. Að eldast er að lifa minnir okkur á að markmiðið sé ekki aðeins lengra líf, heldur líf sem er virkt, innihaldsríkt og lifað með reisn.

Höfundar eru félagsráðgjafar.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×