Fleiri fréttir

Osta- og smjörsalan vill í orkugeirann

Osta og smjörsalan vill eignast hlut í neyslu- og frávatnsveitu á Suðurnesjum og gerði Orkuveitunni tilboð. Orkuveitan hafnaði því hins vegar á stjórnarfundi í byrjun vikunnar.

Spá áframhaldandi verðhjöðnun

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs lækki í júlí um 0,2% frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir muni verðbólga hjaðna úr 5,7% í 5,3% í júlímánuði. Verðbólgan hefur ekki mælst minni hérlendis frá lokamánuðum ársins 2007.

Íslandsbanki býður framkvæmdalán á sérstökum kjörum

Íslandsbanki tekur þátt í hvatningarátaki stjórnvalda og atvinnulífsins Allir vinna sem nýverið var hleypt af stokkunum. Bankinn mun bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann hagstæð framkvæmdalán á sérstökum kjörum.

Austurrískur banki á mest í Straumi

Austurríski bankinn Raiffeisen Zentralbank (RZB) er nú stærsti eigandi Straums. RZB var einn stærsti lánadrottinn bankans, ásamt Deutsche Bank, Bayern LB og Goldman Sachs, að því er segir í frétt austurríska miðilsins Die Presse. Þar segir að samkomulagið hafi verið hluti af því að milda höggið á bankann af hruninu á Íslandi, en við það tapaði RZB um 70 milljónum evra, eða jafnvirði rúmra ellefu milljarða króna.

Kenna bönkunum um fasteignabóluna

Efnahagsmál Rannsóknarnefnd Alþingis dregur rangar ályktanir af áhrifum hækkunar á hámarkslán Íbúðalánasjóðs að mati sjóðsins. Þetta kemur fram í greinargerð sem sjóðurinn sendi þingmannanefnd sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Enn samdráttur í verslun

Samdráttur var á milli ára í öllum tegunda verslunar í síðasta mánuði nema í raftækjaverslun og áfengisverslun, samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar. Þá varð einnig samdráttur í áfengisverslun ef veltan er leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum. Mestur samdráttur var í skóverslun og húsgagnaverslun en dagvöruverslun dróst minnst saman.

Sprotafyrirtæki á sviði heilbrigðisvísinda í samstarf

Kerecis og ValaMed undirrituðu í dag samstarfssamning sem tekur m.a. til rannsókna á frumuvexti í mismunandi vefjum. ValaMed vinnur að þróun á lyfjanæmisprófum á krabbameinsfrumum en Kerecis vinnur að gerð stoðefna sem hámarka vöxt frumna t.d. í sárum.

Segir tryggingareksturinn traustan

Ólafur Njáll Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sjóvár Almennra, segir að Tryggingarekstur Sjóvár sé traustur og mun fall Avant engin áhrif hafa á viðskiptavini Sjóvár. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag hefur Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskað eftir fundi í viðskiptanefnd Alþingis vegna mögulegra áhrifa slitameðferðar Aska Capital á stöðu Sjóvár-Almennra.

Miklu minna lánað til íbúðakaupa

Almenn útlán Íbúðalánasjóðs til íbúðakaupa námu 1,6 milljörðum króna sem er um 16% minna en í sama mánuði fyrir ári síðan. Engu að síður er fjárhæðin nú í júní hærri en í síðasta mánuðinn þegar sjóðurinn lánaði 1,3 milljarða króna til íbúðakaupa og jafnframt hærri en sjóðurinn hefur lánað að meðaltali síðasta árið.

Töluverð fjölgun þinglýstra leigusamninga

Töluverð fjölgun varð á þinglýstum leigusamningum milli mánaðanna maí og júní. Á landinu í heild fjölgaði þeim um 23,7%. Ef tekinn er júní ár miðað við júní í fyrra er fjölgun þessara samninga 2,6%.

Vaxtakjör á ríkisvíxlum þau bestu frá hruninu 2008

Góð þátttaka var í ríkisvíxlaútboðinu sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins í gær. Þannig bárust alls 43 gild tilboð í ríkisvíxlaflokkinn RIKV 10 1115 að fjárhæð 23,9 milljarðar kr. að nafnverði. Ákveðið var að taka tilboðum fyrir 22,1 milljarða kr. að nafnverði á 5,49% flötum vöxtum.

Heildaraflinn minnkaði um 19% milli ára í júní

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 19,2% minni en í júní 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

AGS gagnrýnir ehf-væðingu síðustu ára

Breyta ætti skattareglum svo einkahlutafélög einyrkja þurfi að greiða tekjuskatt af greiðslum til eigenda að mati sérfræðinga AGS. Þeir telja núverandi fyrirkomulag ófullnægjandi. Leggja til kerfi svipað og á hinum Norðurlöndunum.

Askar gæti valdið Sjóvá vanda

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í viðskiptanefnd Alþingis vegna mögulegra áhrifa slitameðferðar Aska Capital á stöðu Sjóvár-Almennra.

Fall Aska hefur engin áhrif á Saga Capital

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri fjárfestingabankans Saga Capital, segir að fall fjárfestingabankans Aska Capital hafi engin áhrif á fyrirtækið sem hann rekur, Saga Capital. Hvorki á reksturinn né fjárhagslegan styrk bankans.

Fjárfestingabanki gjaldþrota vegna gengistryggðu lánanna

Stjórn fjárfestingabankans Askar Capital hf hefur samþykkt að óska eftir slitameðferð á félaginu og beint kröfu þess efnis til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá hefur stjórn dótturfélags Askar Capital, Avant, óskað eftir að Fjármálaeftirlitið skipi bráðabirgðastjórn félagsins.

Nauðarsamningar Straums samþykktir

Kröfuhafar Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. samþykktu í dag nauðasamning fyrir félagið. Í samningnum felst að yfirráð félagsins færast yfir til almennra kröfuhafa sem umbreyta hluta af kröfum sínum í hlutafé og taka við skuldabréfi sem félagið gefur út.

Gamma hækkaði lítillega

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 6,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 2,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 4,2 ma. viðskiptum.

Högum skipt upp

Unnið er að því að skipta Högum upp og færa einingar innan samstæðunnar í sér rekstrarfélög. Með þessu verður til sérstakt rekstrarfélag 10-11 verslananna. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að tilgangurinn með þessu sé að undirbúa skráningu Haga í Kauphöllina.

Vísbendingar um minni einkaneyslu

Líkur eru á að einkaneysla hafi dregist lítillega saman á öðrum fjórðungi ársins frá sama tíma í fyrra ef marka má tölur um kortaveltu.

Lýst eftir kröfum í Byr sparisjóð

Slitastjórn Byrs sparisjóðs hefur lýst eftir kröfum í þrotabúið og stendur kröfufresturinn næstu þrjá mánuði að því er segir í auglýsingu frá slitastjórninni í Lögbirtingarblaðinu í dag.

Yfirtaka Íslandsbanka á Eik samþykkt með skilyrðum

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt yfirtöku Íslandsbanka á Eik Properties ehf. en setur jafnframt margvísleg skilyrði fyrir yfirtökunni. Yfirtaka Íslandsbanka hf. á öllu hlutafé Eik Properties ehf. felur í sér samruna í skilningi samkeppnislaganna.

Skattatillögur AGS unnar að beiðni fjármálaráðherra

Nýjar tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um skattahækkanir á ýmsum sviðum eru unnar að beiðni Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, sem óskaði formlega eftir tillögum frá sjóðnum um að auka tekjustreymi ríkissjóðs um eitt til tvö prósent af landsframleiðslu.

Leiðrétting gengislána gæti kostað 200 til 250 milljarða

Greining Arion banka segir að verði miðað við samningsvexti í gengislánum gæti leiðrétting þeirra kostað 200 til 250 milljarða kr. gróflega áætlað. Verði miðað við vexti Seðlabankans myndi það kosta um 100 milljarða kr.

Malcolm Walker staðfestir orð Jóns Ásgeirs

Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, staðfestir að 202 milljónir punda á innstæðum í töflu sem Jón Ásgeir Jóhannesson sendi Lárusi Welding og Jóni Sigurðssyni, hinn 22. september 2008, hafi tilheyrt Iceland Foods. Hann segist ekki skilja hvers vegna slitastjórn Glitnis og Kroll staðreyndu þetta ekki með því að hafa samband við fyrirtækið.

Gamma lækkaði lítillega

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 3,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 1,7 ma. viðskiptum.

Ráðist í endurbætur á Hótel Loftleiðum

Reitir fasteignafélag og Icelandair Hotels endurnýjuðu í dag leigusamninga milli félaganna til ársins 2025. Um er að ræða samtals 29.532 fermetra og ná samningarnir til Hótels Loftleiða og Hilton Reykjavík Nordica.

Nærri 12% atvinnuleysi á Suðurnesjum

Atvinnuleysi í júní var 7,6% en að meðaltali voru 12.988 manns atvinnulausir í mánuðinum, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi minnkar um 6,4% frá maí, eða um 887 manns að meðaltali.

Vill að FME og SÍ dragi tilmælin til baka

Talsmaður neytenda vill að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands dragi til baka tilmæli sín um hvernig fjármálafyrirtæki skuli rukka af gengistryggðum lánum þar til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. Hann útilokar ekki að ríkið gæti orðið bótaskylt vegna tilmælanna.

Jón Ásgeir: Ásakanir slitastjórnar „rakalausar lygar“

Malcolm Walker, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods, segir fyrirtækið hafa átt mikla fjármuni á bankareikningum haustið 2008, en getur ekki staðfest hvort það hafi verið 200 milljónir punda. Rannsóknarfyrirtækið Kroll er nú að staðreyna hvort peningarnir hafi í raun tilheyrt Iceland. Jón Ásgeir Jóhannesson segir ásakanir slitastjórnar Glitnis banka rakalausar lygar.

Katrín segir skoðanir samráðherra upphlaupskenndar

Katrín Júlíusdóttir iðnaðaráðherra segir skoðanir umhverfisráðherra á eignarhlut Magma á HS orku upphlaupskenndar. Það eigi ekki við nein rök að styðjast að iðnaðarráðuneytið hafi veitt magma faglega ráðgjöf um hvernig fyrirtækið gæti farið á svig við lög til að skjóta rótum á íslenskum orkumarkaði.

Pálmi Haraldsson: „Þér kemur það ekki við“

„Þér kemur það ekki við. Hvernig dettur þér í hug að spyrja svona spurningar?" sagði Pálmi Haraldsson við fréttamann nú í morgun þegar óskað var eftir upplýsingum um hver hefði lánað honum 600 milljónir króna, en upphæðin var notuð sem trygging í sátt sem hann gerði við slitastjórn Glitnis til að koma í veg fyrir að eignir hans yrðu kyrrsettar, m.a Iceland Express og Astreus flugfélagið sem rekur vélar Iceland Express.

Millifærði hundrað milljónir daginn eftir beiðni um kyrrsetningu

Jón Ásgeir Jóhannesson millifærði 585 þúsund pund, jafnvirði rúmlega hundrað milljónum króna, af einkareikningi sínum daginn eftir að slitastjórn Glitnis lagði fram kröfu um frystingu eigna hans. Jón Ásgeir hefur nú þegar greitt slitastjórn Glitnis tæplega tvo milljarða króna í tengslum við uppgjör á láni vegna skíðaskála í Frakklandi.

Sjá næstu 50 fréttir