Fleiri fréttir

Raunstýrivextir of háir þrátt fyrir myndarlega vaxtalækkun

Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að stýrivaxtalækkun Seðlababankans sé myndarleg að þessu sinni og nokkuð meiri en greiningin hafði spáð fyrir um en það var lækkun á bilinu 0,5 til 0.75 prósentustig.

Töluvert dregur úr neikvæðri afkomu ríkisins

Í þeim ársfjórðungi var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 26 milljarða króna eða sem nemur 6,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 15,8% af tekjum þess. Á sama tíma 2009 var tekjuafkoman neikvæð um tæplega 38 milljarða króna eða 9,8% af landsframleiðslu.

Laun hækka á vinnumarkaði - skrifstofufólk hækkaði mest

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,0% hærri á þriðja ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,6% en laun opinberra starfsmanna um 0,7% að meðaltali.

Gengi hluta í Marel hefur hækkað um 150% frá botninum

Gengi hlutabréfa í Marel náði 100 kr. á hlut í vikunni en gengi félagsins hefur hækkað stöðugt frá því að það náði botni í apríl 2009 þegar gengið fór niður í um 40 kr. á hlut, en það var um svipað leiti og erlendir markaðir náðu botni. Gengið hefur reyndar hækkað um 150% frá botni en hafði áður fallið um 60%.

Rekstur Akureyrar jákvæður um 146 milljónir á næsta ári

Rekstarafkoma A- og B hluta Akureyrarbæjar fyrir næsta ár er áætluð jákvæð um 146,3 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram í bæjarstjórn Akureyrar í gær.

Seltjarnarnes áætlar 50 milljóna afgang á næsta ári

Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur samantekins ársreiknings Seltjarnarnesbæjar á næsta ári verði 50 milljónir króna. Útsvarsprósenta á árinu 2011 verður 12,98%, sem er undir leyfilegu hámarksútsvari sem er 13,28%. Útsvarstekjur eru áætlaðar 1.620 milljónir kr. Tekjur af fasteignasköttum eru áætlaðar 190 milljónir kr. sem er sama álagning í krónum talið og árið 2010.

LV eykur hlut sinn í Marel

Lífeyrissjóður verslunnarmanna (LV) hefur aukið hlut sinn í Marel um 1,37%. Þetta kemur fram í flöggun um kaupin í Kauphöllinni. Flöggunin er til komin þar sem hlutur LV í Marel fór yfir 5% við kaupin í morgun og stendur nú í 5,82%.

SA telur kröfur um hækkun lágmarkslauna óraunhæfar

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir kröfur Starfsgreinasambandsins (SGS) um að lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu verði kr. 200.000 frá 1. desember 2010 óraunhæfar við núverandi aðstæður en krafan felur í sér 21% hækkun.

Segir lítið mark takandi á tölum um landsframleiðslu

"Lítið mark er takandi á árstíðarleiðréttum tölum um landsframleiðslu líkt og við höfum áður bent á. Þessar tölur breytast mikið eftir fyrstu birtingu Hagstofunnar og er Hagstofan t.d. nú að breyta tölum fyrir fyrsta og annan ársfjórðung þessa árs umtalsvert."

Vöruskiptin hagstæð um 10,4 milljarða í nóvember

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir nóvember fluttu Íslendingar út fyrir 48,3 milljarða króna og vörur voru fluttar inn fyrir tæpa 38,0 milljarða króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um tæpa 10,4 milljarða króna samkvæmt þessum bráðabirgðatölum.

Trygging innlána hefur leitt til verulegrar bjögunar

Alger trygging innlána á Íslandi hefur leitt til verulegrar bjögunar á fjármálamarkaði og dregið úr fjárfestingu þar sem fjárfestar hafa, fram til þessa, þegið háa áhættufría vexti á bankareikningum í stað þess að hætta fjármunum sínum í atvinnulífinu.

Sala nýrra hluta í Icelandair hefst á morgun

Sala nýrra hluta í hlutafjárútboð Icelandair hefst á morgun, miðvikudag. Ætlunin er að selja nýtt hlutafé fyrir allt að rúmlega 2,5 milljarða kr. Núverandi hlutafjáreigendur eiga forgangsrétt á kaupum hluta fyrir allt að tæpum 2 milljörðum kr.

Stefna á fyrstu greiðslu eftir ár

Við stefnum að því að geta byrjað að greiða hluta kröfuhafa fyrir lok árs 2011,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Á kröfuhafafundi skilanefndar og slitastjórnar bankans á fimmtudag kom fram að búið er að taka afstöðu til 95 prósent krafna í bankann.

Sementsverksmiðjan ógreidd í sjö ár

Ríkið hefur ekki enn fengið greitt fyrir Sementsverksmiðjuna hf., sem seld var Íslensku sementi ehf. í október 2003. Söluverðið var 68 milljónir króna, en skuld við ríkissjóð stendur nú í 118 milljónum króna með vöxtum og dráttarvöxtum, að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Stofnunin gagnrýnir hvernig fjármálaráðuneytið hefur haldið á málinu.

Þeir sem forrituðu Icesave gera það gott í Hollandi

Hollenskt fyrirtæki sem ætlar sér stóra hluti í netbankaheiminum hefur ráðið til sín íslenska forritara hjá Landsbankanum sem hönnuðu Icesave til að selja netbankalausnir eins og Icesave til erlendra banka.

Kroppurinn vann dómsmál gegn Kaupþingi

Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson hefur unnið dómsmál gegn Singer & Friedlander dótturbanka Kaupþings á eyjunni Mön (KSFM). Talið er að dómurinn geti haft fordæmisgildi.

Landbúnaðaráðuneytið keypti bankabréf í Kaupþingi

Landbúnaðarráðuneytið notaði hagnað sem fékkst af sölunni á Lánasjóði landbúnaðarins árið 2005 til þess að kaupa bankabréf í Kaupþing. Eðlilegt hefði verið að skila þessu fé til ríkisféhirðis að mati Ríkisendurskoðunnar. Féið er glatað að stórum hluta.

Ríkisendurskoðun: Ámælisvert að færa ekki björgun Sjóvár til bókar

Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir því við fjármálaráðuneytið að það geri grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríksins, vegna björgunaraðgerða handa Sjóvá eftir hrun. Ríkið reiddi fram 11,6 milljarða til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot Sjóvár.

Hörð gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins

Ríkisendurskoðun hefur sett fram harða gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Gagnrýnt er að ekki skuli getið um tilteknar skuldbindingar í ríkisreikningi. Athugasemd er gerð við ráðstöfun fjár sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins og að ekki sé ljóst á hvaða lagaheimild framlag til endurreisnar Sjóvár byggðist svo dæmi séu tekin.

David Cameron vongóður um árangur í Icesavedeilunni

David Cameron forsætisráðherra Bretlands er vongóður um að árangur sé að nást í samningaviðræðum við Íslendinga í Icesavedeilunni. Greint er frá þessu á fréttavef Nasdaq kauphallanna þar sem rætt er við talskonu ráðherrans.

Greining: Lausn Icesave væru gríðarlega jákvæðar fréttir

Yrði það raunin að Icesave deilan leysist fyrir jól er ljóst að um gríðarlega jákvæðar fréttir er að ræða enda verður mikilli óvissu þá aflétt. Icesave málið hefur hangið yfir þjóðinni eins og Damóklesarsverð allt frá hruni með víðtækum afleiðingum á hinum margvíslegustu sviðum.

Icesave-drög: 0-50 milljarðar á ríkið

Drög að meginatriðum nýs Icesave-samkomulags gera ráð fyrir að kostnaður sem lendi á ríkissjóði verði á bilinu 0-50 milljarðar króna. Drögin að helstu atriðum sem náðst hefur samkomulag um, eins og vaxtaprósentu, voru kynnt í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og hafa verið kynnt forystumönnum Samtaka atvinnulífsins. Samninganefndir eru enn að störfum.

Hagkerfið finnur botn kreppunnar á næstu mánuðum

Reikna má með því að hagkerfið finni botn kreppunnar á næstu mánuðum og að við taki hægfara bati, að því er segir í nýrri hagspá greiningar Íslandsbanka. Greiningin gerir ráð fyrir 0,9% hagvexti á næsta ári og 2,9% hagvexti árið 2012.

Ráðinn til að rannsaka yfirtökur banka á fyrirtækjum

Benedikt Árnason hefur verið ráðinn til Samkeppniseftirlitsins sem ráðgjafi í fullu starfi, en hann mun taka þátt í ýmsum rannsóknum sem varða endurskipulagningu fyrirtækja og yfirtökur banka á fyrirtækjum.

Tæplega 30 hópuppsagnir á árinu

Á árinu 2010 hafa Vinnumálastofnun alls borist 29 tilkynningar um hópuppsagnir, þar sem sagt hefur verið upp samtals 742 manns.

Áætlaðar afskriftir lána koma við kaunin á ÍLS

Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa boðað til í skuldavanda heimilanna munu hafa áhrif á áætlaðar afskriftir og þar með eiginfjárþörf Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum til Kauphallarinnar.

Sölutregða á íslenskum fiski í Evrópu

Nokkuð hefur dregið úr sölu á íslenskum fiskafurðum á Evrópumarkaði að undanförnu. Þetta er öfugt við þróunina á undanförnum árum því fisksalan hefur yfirleitt glæðst á þessum mörkuðum í aðdraganda jólanna.

Icesave-frétt vekur athygli

Frétt Stöðvar 2 um að Icesave samningur væri hugsanlega í sjónmáli, og að drög að honum hefðu verið kynnt stjórnarandstöðunni, hefur vakið athygli víða um heiminn.

Mikilvægt að Icesave samningar takist fljótlega

Forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir frekari frestun á að skila svari sínu vegna Icesave. Hann segir mikilvægt að samningar takist við Breta og Hollendinga fljótlega. Ef stjórnvöld nái hins vegar að sannfæra stofnunina um að mat hennar á greiðsluskyldu ríkisins sé rangt verði málið látið niður falla.

Segir Búðarhálsvirkjun á áætlun

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir vinnu við Búðarhálsvirkjun á áætlun. „Við gerum ráð fyrir að öðru hvoru megin við áramótin þá ljúki fjármögunun. Það hefur alltaf verið sagt og við bindum vonir við að það standi. Verkefnið fer ekki á fulla ferð fyrr en að langtímafjármögnun er tryggð.“

Búðarháls í hægagangi

Vinnu við Búðarhálsvirkjun er haldið í lágmarki með aðeins sextán starfsmönnum. Framkvæmdir komast ekki á fullan skrið fyrr en Landsvirkjun tekst að afla lánsfjár í útlöndum.

Wikileaks: Landsbankamenn vildu hjálp frá Bandaríkjunum

Tveir stjórnendur úr Landsbankanum funduðu með fulltrúum af hagsviði sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi í aðdragandann að bankahruninu til að benda á að íslensk yfirvöld væru að grípa til rangra ráðstafana vegna efnahagskreppunnar. Þeir óskuðu eftir því að stjórnvöld í Bandaríkjunum veittu íslenskum stjórnvöldum leiðsögn í því efnahagslega fárviðri sem framundan var. Þetta kemur fram í skjölum bandaríska sendiráðsins sem Wikileaks hefur lekið út.

Ólafur Ragnar: Þurfum ekki erlent fjármagn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við fjármálaritið The Banker að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Of mikið innstreymi erlends fjármagns hafi einkennt efnahagslífið á Íslandi fyrir bankahrun og orðið til þess að hagkerfið ofhitnaði og hrundi.

Sjá næstu 50 fréttir