Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.


Fréttamynd

„Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“

Áki Frostason var á flakki á milli kosningavaka á Akureyri eftir alþingiskosningarnar árið 2016, sjokkeraður yfir fyrstu tölum, þegar hann tók skyndiákvörðun og truflaði viðtal í beinni útsendingu við þingmenn Sjálfstæðisflokksins og sagði: „Af hverju man enginn hrunið og Tortóla? Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Síðan eru tíu ár liðin og margt breyst.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Á­fram­haldandi skilnings­leysi ný­liða

Nú fyrir helgi skrifaði ég og fékk birtar í héraðsmiðlum hugleiðingar nýliða í bæjarmálum, þar sem ég játaði skilningsleysi mitt á hversu hátt hlutfall framkvæmdaáætlunar kjörtímabilsins væri eyrnamerkt tveimur íþróttafélögum hér í bæ.

Skoðun
Fréttamynd

Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið

Maðurinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið á föstudag hét Arnþór Örlygsson. Hann var fæddur 16. júní 1979. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn.

Innlent
Fréttamynd

Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“

Starfsmenn Kraftbíla á Akureyri eru slegnir eftir að vinnufélagi þeirra lét lífið eftir slys í starfsmannaferð upp á hálendi á föstudag. Framkvæmdastjórinn segir aðstandendur í miklu áfalli en að minningu mannsins verði haldið á lofti. Mikil eftirvænting hafði ríkt fyrir starfsmannaferðinni.

Innlent
Fréttamynd

Syrgja starfs­mann sem lést í slysi

Fjölskyldufaðirinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudag var starfsmaður Kraftbíla á Akureyri. Fyrirtækið segir í færslu á samfélagsmiðlum að andlátið hafi skilið eftir sig stórt skarð í hjarta fyrirtækisins.

Innlent
Fréttamynd

Með gaddakúlu og sprautunálakylfu

Akureyringur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, vopnalagabrot, þjófnað og fleira. Við húsleit heima hjá manninum fannst gaddakúla í bandi og kylfa með álímdum sprautunálum. 

Innlent
Fréttamynd

Undir­mönnun hjúkrunar­fræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga

Í nýbirtri skýrslu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá því að um fjörutíu prósenta undirmönnun sé á sextán bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er meðal þess sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) snertir á í innsendri grein á Vísi en hún segir mönnun hafa áhrif á afdrif sjúklinga. Á deildunum sem um ræði dvelji margir af veikustu sjúklingum landsins.

Innlent
Fréttamynd

Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri

Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni.

Innlent
Fréttamynd

Björgunarþyrla á Akur­eyri – staða máls

Á morgunverðarfundi Kristrúnar Frostadóttir forsætisætisráðherra í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli 22. maí 2025 svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti þegar spurt var að því hvort það stæði til að staðsetja eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli: „Það stendur til að gera þetta. Ég styð þetta heilshugar.“

Skoðun
Fréttamynd

Fær að setja þessar fast­eignir á sölu

Nýtt fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra veitir honum heimild til að selja fjölda fasteigna, þar á meðal húsnæði lögreglunnar við Hverfisgötu, húsnæði Listaháskólans og Tollhúsið. 

Innlent
Fréttamynd

Vara við manni sem hafi óskað eftir per­sónu­upp­lýsingum nem­enda

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema.

Innlent
Fréttamynd

Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum

Skemmdarverk voru unnin á gröfum og öðrum vinnuvélum í eigu verktakafyrirtækisins G. Hjálmarsson á Akureyri. Fyrirtækið hefur verið við vinnu í nýju Móahverfi í um fjögur ár. Eigandi segir tjónið hlaupa á milljónum. Spreyjað hafi verið með olíulakki og heilspreyja þurfi vélarnar upp á nýtt og merkja þær.

Innlent