Segir landsmenn eyða of miklu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir alla hafa áhyggjur af verðbólgunni sem nú mælist tæp 10 prósent. Hún segir rétt að hafa huga í allri umræðu að tekjustofnar ríkisins hafi rýrnað á sama tíma og verið sé að kallað eftir auknu fé í ýmis verkefni. Hún segir einnig vera ljóst að landsmenn séu að eyða of miklu. Innlent 1. febrúar 2023 08:59
Hart sótt að Katrínu vegna verðbólgunnar Hart var sótt að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem ríkisstjórn hennar var ýmist sökuð um að bera töluverða ábyrgð á hækkun verðbólgu í upphafi árs eða skort á aðgerðum gegn henni. Innlent 31. janúar 2023 14:37
Stígamót alfarið á móti því að afnema klámbann Stígamót taka undir það að kominn sé tími til að endurskoða löggjöfina um klám enda nær hún illa utan um þann stafræna veruleika sem við búum við í dag. Samtökin eru hinsvegar alfarið á móti því að bann við klámi verði afnumið. Heldur þurfi að horfast í augu við það að klám er í raun stór ógn við lýðheilsu og jafnrétti og grípa til viðeigandi aðgerða. Innlent 30. janúar 2023 19:35
Kristrún farin í fæðingarorlof Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar er farin í fæðingarorlof og hefur kallað inn varaþingmann á Alþingi. Innlent 30. janúar 2023 17:18
Atkvæðagreiðslan skrumskæling á lýðræði Forysta Eflingar mun í dag heimsækja félagsmenn sína, sem munu leggja niður störf verði verkfallsaðgerðir samþykktar, og hvetja þá til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þingmaður Samfylkingarinnar segir tíma til kominn að Alþingi endurskoði reglur um miðlunartillgöru ríkissáttasemjara. Innlent 28. janúar 2023 13:22
Vg leggur smábátasjómenn á höggstokkinn! Vg er því miður í mínum huga hreinn og klár svikaflokkur. Flokkur sem boðaði bjartari tíð fyrir bothættar sjávarbyggðir og kvótalitlar útgerðir, fyrir kosningarnar 2021. Margur bar þá von í brjósti að þegar Svandís Svavarsdóttir (Vg) settist í ráðherrastól myndi hún beita sér fyrir auknu réttlæti og bjartari tímum sjávarbyggðanna. Sú von var andvana fædd. Skoðun 27. janúar 2023 13:30
Átök um næstu skref í Íslandsbankamálinu Minnihlutinn í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd Alþingis óskaði í vikunni eftir því að fengið yrði lögfræðiálit á sölunni á Íslandsbanka. Meirihlutinn felldi tillöguna. Formaðurinn lýsir vonbrigðum með að málið hafi farið ofan í hefðbundnar skotgrafir. Innlent 27. janúar 2023 13:00
Nýjasta trendið er draugur fortíðar Nýjasta fjármálatrend heimila landsins eru verðtryggð húsnæðislán. Þessi lán, sem voru hverfandi fyrir fáeinum mánuðum, eru nú 86 prósent nýrra lána. Þau eru eins og fjárans axlapúðarnir sem eru ekki fyrr dottnir úr tísku en þeir dúkka upp aftur eins og draugur úr fortíðinni. Skoðun 27. janúar 2023 12:00
Grasrót gegn útlendingafrumvarpi Enn er reynt að þröngva frumvarpi um útlendinga í gegn um þingið með örlitlum breytingum. Umrætt frumvarp einkennist af útlendingaandúð og virðist hafa það eitt að markmiði að neita fleirum, enn hraðar, um hæli. Skoðun 27. janúar 2023 11:31
Íslenskt rafeldsneyti í eigu þjóðarinnar Fyrir áramótin mælti ég fyrir tillögu minni til þingsályktunar á Alþingi um að fela ríkisstjórninni að taka til frumathugunar stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. Líta má við þessa frumathugun til starfsemi Equinor í Noregi, fyrrum Statoil, sem er nú 67% í eigu norska ríkisins. Skoðun 26. janúar 2023 15:00
Framfarir í þágu þolenda ofbeldis Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra í samstarfi við dómsmálaráðherra, hafa tekið höndum saman í að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis viðeigandi stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu. Skoðun 26. janúar 2023 12:31
Meirihlutinn segir Íslandsbankamálið á lokametrunum Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, segir að tillaga minnihlutans í nefndinni, þess efnis að vert sé að kalla eftir lögfræðilegu áliti á Íslandsbankasölunni, hafi komið flatt uppá sig. Innlent 25. janúar 2023 14:28
Segir dómsmálaráðherra bjóða upp á útvatnað ræksni Þingmenn fluttu tæplega hundrað og fimmtíu ræður á um átta klukkustundum um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra á Alþingi í gær. Formaður Miðflokksins kallar frumvarpið ræksni málamiðlana milli skynsemishyggju og fullkominnar vitleysu. Innlent 25. janúar 2023 11:41
Spurði Jón hvort hann hyggðist láta skjóta sig með rafbyssu Það verður að koma í ljós hvort Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hyggist prófa það að láta skjóta sig með rafbyssu. Þetta kom fram í svari hans við spurningu Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmanns Pírata og nefndarmanns í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis á opnum fundi nefndarinnar í gær. Innlent 25. janúar 2023 11:38
Leggur til afnám við sjálfkrafa skráningu barna í trúfélög Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um skráð trú- og lífsskoðunarfélög. Breytingin felur í sér að færa ákvörðun um félagsaðild barna í trú- og lífsskoðunarfélög til foreldra og síðar til barnanna sjálfra þegar þau ná 12 ára aldri. Innlent 24. janúar 2023 23:48
„Þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, á því hvers vegna reglugerðarbreytingar sem snúa að því að veita lögreglumönnum rafbyssur hafi ekki verið teknar til umræðu innan ríkisstjórnar. Þingmaður Samfylkingar segir að ef hægt sé að leyfa rafbyssur án samráðs við ríkisstjórn sé hægur leikur að leyfa annan vopnaburð. Innlent 24. janúar 2023 17:40
Íslandsbankasalan: Meirihlutinn felldi tillögu um lögfræðilegt álit Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, telur að kanna hefði þurft betur ýmislegt varðandi það hvernig staðið var að sölunni á Íslandsbanka. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar felldi tillögu minnihlutans um að fengið yrði lögfræðilegt álit. Innlent 24. janúar 2023 15:25
Bein útsending: Opinn fundur um heimild lögreglu til að bera rafbyssur Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis kemur saman til opins fundar til að ræða heimild lögreglunnar til að bera rafbyssur. Innlent 24. janúar 2023 08:21
Ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar Sonja Lind E. Eyglóardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar. Hún hefur starfað sem starfsmaður þingflokksins frá árinu 2020. Innlent 24. janúar 2023 07:17
Lögreglan hefur nú heimild til að nota rafbyssur Ný reglugerð dómsmálaráðherra um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna var birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur þegar gildi. Helst breytingin frá fyrri reglugerð er heimild til handa lögreglunni til að nota svokölluð rafvarnarvopn, rafbyssur í daglegu máli. Innlent 23. janúar 2023 19:09
Bjarni vill gjalda varhug við hatursorðræðunámskeiði Katrínar Ekki var að heyra á Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, að hann muni styðja tillögu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vill leggja fyrir þingið, að opinberir starfsmenn og kjörnir fulltrúar verði skikkaðir til að sitja sérstakt námskeið um hatursorðræðu. Innlent 23. janúar 2023 16:23
Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“ Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt. Innlent 23. janúar 2023 12:01
Útlendingafrumvarpið eina þingmálið á dagskrá Alþingi kemur saman á ný í dag og hefst þingfundur klukkan 15. Á dagskrá er óundirbúinn fyrirspurnartími og önnur umræða um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Innlent 23. janúar 2023 06:54
Samfylkingin stærsti flokkur landsins Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og er með tæplega 24 prósenta fylgi. Innlent 18. janúar 2023 18:34
„Ég vil verða forsætisráðherra og helst ekki fara með Sjálfstæðisflokknum“ „Ég á mánuð eftir,“ segir ófrísk Kristrún Frostadóttir sem gerir ráð fyrir að þurfa að vinna eitthvað í fæðingarorlofinu, enda gangi í raun ekki að vera formaður stjórnmálaflokks og vera frá í lengri tíma. Lífið 18. janúar 2023 15:12
Níu af ríflega fjögur þúsund umsóknum metnar tilhæfulausar Einungis níu af um fjögur þúsund og fimm hundruð umsóknum um alþjóðlega vernd á síðasta ári voru metnar tilhæfulausar. Þingmaður Samfylkingar telur að staðhæfingar um stjórnlaust ástand í útlendingamálum eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Innlent 17. janúar 2023 12:03
Fer ekki eftir tillögu starfshóps um að skipa starfshóp Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að fara ekki að tillögu starfshóps um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar, um að skipa starfshóp um fjármögnun björgunarsveita. Afstaða til tillagna fyrrnefnda starfshópsins verður tekin eftir samtal við björgunarsveitir. Innlent 16. janúar 2023 15:16
Nýir starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins kosta 150 milljónir Í svari við fyrirspurn Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingar til Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, kemur fram að fjölgað hefur í ráðuneytinu frá því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við 2021. Innlent 16. janúar 2023 13:40
Bergþór segir Katrínu þjakaða af hatursorðræðublæti Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, seka um tvískinnung og skinhelgi þegar mannréttindi eru annars vegar. Innlent 16. janúar 2023 11:38
Flókið að mynda ríkisstjórn miðað við kannanir Núverandi stjórnarflokkar næðu ekki að mynda meirihluta á Alþingi samkvæmt tveimur nýjustu könnunum Maskínu og Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast með álíka mikið fylgi í báðum könnunum. Innlent 15. janúar 2023 19:24