Ingi Þór: Vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim „Við vorum bara hræðilega lélegir. Leikurinn var spilaður mjög fast og fékk að fljóta þannig og við létum þá bara lemja okkur niður. Við vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir 69-64 tap liðs síns gegn Fjölni í Iceland Express deild karla í kvöld en þetta var fyrsta tap Snæfells á árinu 2010. Körfubolti 11. febrúar 2010 21:45
Bárður: Hlýtur bara að vera eitthvað í okkur spunnið „Við vorum góðir í kvöld. Varnarleikurinn hjá okkur var mjög massívur og við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir að mæta þeim og mér fannst okkur takast vel upp með að stoppa þeirra hættulegustu menn,“ sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, eftir 69-64 sigur liðs síns gegn Snæfelli í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Dalhúsum í Grafarvogi í kvöld. Körfubolti 11. febrúar 2010 21:30
Nýliðar Fjölnis fyrstir til að vinna Snæfell á árinu 2010 Nýliðar Fjölnis fylgdu eftir sigrum á Grindavík og Njarðvík á undanförnum vikum með því að vinna fimm stiga sigur á Snæfelli, 69-64, í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn urðu þar með fyrstir til að vinna Hólmara á árinu 2010. Körfubolti 11. febrúar 2010 20:17
Stjarnan og Keflavík minnkuðu forskot KR á toppnum Stjarnan og Keflavík minnkuðu bæði forskot KR í tvö stig á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta eftir heimasigri í kvöld. Stjarnan vann 80-71 sigur á ÍR en Keflavík burstaði botnlið FSu með 40 stigum, 136-96. Körfubolti 11. febrúar 2010 20:16
Umfjöllun: Brynjar með skotsýningu í sigri KR-inga á Njarðvík KR-ingar náðu fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express deildar karla með tólf stiga sigri á Njarðvík, 89-77, í DHL-Höllinni í kvöld. Eftir jafnan en sveiflukenndan leik þá sýndu KR-ingar mikla yfirburði í lokaleikhlutanum og tryggðu sér sinn fyrsta sigur á Njarðvíkingum í vetur. Körfubolti 8. febrúar 2010 23:04
Páll Axel: Spiluðum ekki vel en það komu góðir kaflar Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur í Grindavíkurliðinu sem vann ÍR í kvöld og komst þar með í úrslitaleik Subway-bikarsins. Leikurinn endaði 91-78 en ÍR-ingar voru vel inni í leiknum og munurinn var fjögur stig fyrir síðasta leiklutann. Körfubolti 8. febrúar 2010 22:14
Grindvíkingar komnir í Höllina eftir sigur á ÍR Grindvíkingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni eftir 91-78 sigur í undanúrslitaleik Subwaybikars karla í Röstinni í Grindavík í kvöld. Grindavík var með forustuna allan leikinn en ÍR-ingar voru búnir að minnka muninn í fjögur stig fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 8. febrúar 2010 20:39
Njarðvíkingar búnir að tapa fjórum í röð - frábær fjórði leikhluti hjá KR KR-ingar með Brynjar Þór Björnsson í fararbroddi unnu tólf stiga sigur á Njarðvík, 89-77, í Iceland Express deild karla í DHL-Höllinni í kvöld. Njarðvíkingar hafa því tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deild og bikar. Eftir miklar sveiflur og jafna stöðu fyrir lokaleikhlutan fóru KR-ingar illa með Njarðvíkurliðið í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 19-7. Körfubolti 8. febrúar 2010 19:15
Er þetta ennþá höllin hans Nick Bradford? Það eru örugglega fáir búnir að gleyma frammistöðu Nick Braford með Grindavík í DHL-Höll þeirra KR-inga á síðasta tímabili. Bradford fór á kostum í fjórum leikjum sínum í Frostaskjólinu og var með 36,3 stig að meðaltali í leikjunum. Körfubolti 8. febrúar 2010 18:15
Stórleikir í körfunni í kvöld Það eru tveir leikir á dagskránni í körfuboltanum í kvöld og er óhætt að segja að þeir séu báðir af dýrari gerðinni. Körfubolti 8. febrúar 2010 16:00
Blikar unnu Tindastól í Kópavogi Einn leikur var í Iceland Express-deild karla í kvöld. Breiðablik vann Tindastól í hörkuleik 85-77 í Kópavoginum. Körfubolti 7. febrúar 2010 20:45
Gunnar: Vorum að spila hræðilega Keflvíkingar hafa nú tapað tvisvar fyrir Snæfelli á fjórum dögum. Þeir töpuðu 64-90 í Toyota-sláturhúsinu í dag í undanúrslitum Subway-bikarsins. Körfubolti 7. febrúar 2010 18:27
Ingi Þór: Hlynur er bara „monster" Snæfellingar komust í dag í úrslitaleik Subway-bikarsins með því að leggja Keflavík sannfærandi að velli í Toyota-sláturhúsinu. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells var að vonum stoltur af sínu liði. Körfubolti 7. febrúar 2010 18:17
Snæfell í bikarúrslitin Snæfellingar unnu glæsilegan útisigur á Keflavík í undanúrslitum bikarsins í dag 90-64. Heimamenn fundu engan takt í sinn leik, jafnt var eftir fyrsta leikhluta en eftir hann tóku Snæfellingar völdin. Körfubolti 7. febrúar 2010 16:39
Keflavík og Snæfell bæði með nýja leikmenn á morgun Útlit er fyrir að bæði Keflavík og Snæfell muni skarta nýjum erlendum leikmönnum þegar liðin mætast í Subway-bikarnum í Keflavík á morgun en vefmiðillinn Karfan.is greindi frá fregnunum í gærkvöldi. Körfubolti 6. febrúar 2010 14:15
IE-deild karla: Fjölnir skellti Njarðvík Fjölnir fór heldur betur góða ferð til Njarðvíkur í kvöld því Grafarvogsbúar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Njarðvíkingum í Ljónagryfjunni. Körfubolti 5. febrúar 2010 20:48
Stjörnumenn bæta við sig tveimur leikmönnum í körfunni Stjörnumenn hafa fengið góðan liðstyrk fyrir lokasprettinn í körfunni því liðið hefur endurheimt bakvörðinn Ólaf Jónas Sigurðsson frá Danmörku og nælt sér í 206 serbneskan miðherja að auki. Þetta kom fram á karfan.is í dag. Körfubolti 5. febrúar 2010 18:00
Þorleifur: Erum að einbeita okkur að því að bæta vörnina Þorleifur Ólafsson átti flottan leik í vörn og sókn með Grindavík í kvöld þegar liðið vann 17 stiga sigur á KR, 84-67, í Iceland Express deild karla í körfubolta. Körfubolti 4. febrúar 2010 22:04
Friðrik: Við lifðum á vörn í þessum leik Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með varnarleik sinna manna í 17 stiga sigri á toppliði KR í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 4. febrúar 2010 21:49
Fannar: Við leyfðum þeim að gera það sem þeir vildu Fannar Ólafsson fór útaf með fimm villur í kvöld og gat lítið hjálpað til þegar leikur liðsins fór af sporinu í seinni hálfleik í 17 stiga tapi á móti Grindavík í kvöld. Körfubolti 4. febrúar 2010 21:47
IE-deild karla: Góðir sigrar hjá Grindavík og Snæfelli Grindavík er að vakna til lífsins í Iceland Express-deild karla og liðið sendi sterk skilaboð í kvöld er það lagði Íslandsmeistara KR af velli í Röstinni. Körfubolti 4. febrúar 2010 20:59
Brenton spurningamerki fyrir leikinn á móti KR í kvöld Brenton Birmingham er tæpur fyrir stórleik Grindavíkur og KR í Iceland Express deild karla í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.15 í Röstinni í Grindavík. Samkvæmt frétt á heimasíðu Grindvíkinga þá er Brenton að glíma við meiðsli á læri eftir að hafa fengið högg framan á lærið í síðasta leik á móti Njarðvík. Körfubolti 4. febrúar 2010 15:45
Þrír þjálfarar sækjast eftir fyrsta sigrinum í Kennó í kvöld ÍR og Breiðablik mætast í Iceland Express deild karla í körfubolta klukkan 19.15 í Kennaraháskólanum í kvöld. Þrír þjálfarar liðanna sækjast þar eftir sínum fyrsta sigri í Iceland Express deildinni í vetur. Körfubolti 4. febrúar 2010 13:45
Pálmi Freyr spilar ekki meira með Snæfelli í vetur Snæfell hefur staðfest að bakvörðurinn öflugi Pálmi Freyr Sigurgeirsson muni ekkert spila meira með liðinu á þessarri leiktíð í Iceland Express-deildinni í körfubolta vegna meiðsla. Körfubolti 4. febrúar 2010 12:15
Isom og Visockis á Krókinn - líklega með gegn Hamri Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur ákveðið að semja við Cedric Isom og Donatas Visockis út yfirstandandi tímabil í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Körfubolti 2. febrúar 2010 11:00
Ekkert gekk hjá Njarðvíkurliðinu með Nick inn á Nick Bradford varð að sætta sig við tap á móti gömlu félögum sínum í Grindavík í Iceland Express deildinni í gærkvöldi en í leiknum á undan hafði Njarðvíkurliðið steinlegið í bikarnum fyrir ennþá eldri félögum Nick úr Keflavík. Körfubolti 26. janúar 2010 16:30
Böðvar Guðjónsson: Hjálpar KR að vera meðal þeirra bestu Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR var ánægður með nýja liðstyrkinn en Pavel Ermolinski mun spila með KR-liðinu út tímabilið. Þaðp má finna viðtal við Böðvar á heimasíðu KR í dag. Körfubolti 26. janúar 2010 13:13
Pavel kominn í KR - meistararnir fá hann á láni frá Spáni Íslandsmeistarar KR hafa fengið landsliðsbakvörðinn Pavel Ermolinski lánaðan út keppnistímabilið frá spænska liðinu Caceres. Pavel verður klár í næsta leik sem er gegn Grindavík 4 febrúar. Þetta kemur fram á heimasíðu þeirra KR-inga. Körfubolti 26. janúar 2010 12:38
IE-deild karla: Grindavík vann í Ljónagryfjunni - KR á toppinn Grindavík hysjaði loksins upp um sig buxurnar í kvöld er liðið sótti nágranna sína í Njarðvík heim. Leikur liðanna var fjörugur en endaði með þriggja stiga sigri gestanna, 99-102. Körfubolti 25. janúar 2010 21:08
Nick Bradford mætir sínum gömlu félögum í Grindavík í kvöld Nick Bradford og félagar í Njarðvík reyna að koma sér aftur í gang í kvöld, eftir bikarskellinn á móti Keflavík á dögunum, þegar liðið fær Grindavík í heimsókn í Ljónagryfjuna í Njarðvík í Iceland Express deild karla. Nick Bradford spilaði eins og kunnugt er með Grindavík við mjög góðan orðstír í fyrra. Körfubolti 25. janúar 2010 16:00
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti