Björgunarsveitir við leit í Borgarnesi Björgunarsveitir á Vesturlandi leita nú vestan við Borgarnes. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði við leit en aðgerðinni sé stýrt af lögreglu. Innlent 13. mars 2025 22:56
Þrjú banaslys á fjórum dögum Þrír hafa látið lífið í umferðarslysum á síðustu fjórum dögum, þar á meðal barn á öðru aldursári. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir aðdraganda banaslyss sem varð í Berufirði í dag enn til rannsóknar. Innlent 9. mars 2025 19:01
Barn á öðru aldursári lést Barn á öðru aldursári lést í umferðarslysi þegar rúta og jepplingur skullu saman á Vesturlandsvegi. Innlent 9. mars 2025 13:34
Hagnaður jókst um tæpan helming milli ára Hagnaður samstæðu Orkuveitunnar í fyrra nam 9,3 milljörðum króna í fyrra. Það gerir aukningu upp á 45 prósent milli ára. Viðskipti innlent 7. mars 2025 16:00
Holtavörðuheiðinni lokað Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað vegna færðar og veðurs. Appelsínugul veðurviðvörun fer í gildi á svæðinu í kvöld. Innlent 2. mars 2025 13:13
Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST Matvælastofnun hefur lokið aðgerðum á sauðfjárbúi í Borgarfirði vegna ítrekaðra brota á velferð dýra og ábúendur höfðu endurtekið ekki orðið við kröfum um úrbætur með fullnægjandi hætti. Alls hefur kindum verið fækkað um sex hundruð í aðgerðum stofnunarinnar. Innlent 28. febrúar 2025 12:35
„Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Dýraverndunarsinni gagnrýnir að Matvælastofnun sendi um 200 kindur af bænum Höfða í Þverárhlíð til slátrunar rétt fyrir sauðburð. Tímasetning aðgerðanna sé grimmileg. Yfirdýralæknir segir Matvælastofnun ekki tjá sig um einstaka mál en segir þó að loks sjái fyrir endann á krónísku dýravelferðarmáli í Borgarfirðinum. Innlent 26. febrúar 2025 19:22
Fjárfestum í vegakerfinu Það er óviðunandi ástand að vegakerfið á Íslandi sé að brotna undan eigin þunga. Sá augljósi skortur sem orðið hefur á viðhaldi og nýfjárfestingu í vegakerfi landsins leiðir af sér kostnað fyrir atvinnulíf og íbúa og tækifæri glatast til nýrrar verðmætasköpunar. Skoðun 19. febrúar 2025 18:31
Pottur fyrrverandi þingmanns hvarf í óveðrinu Heitur pottur sem hefur staðið um áratugaskeið við heimili Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi þingmanns, í Borgarbyggð fauk í óveðrinu áðan. Innlent 5. febrúar 2025 20:35
Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst Karlmaður sem var ákærður fyrir að keyra undir áhrifum og valda hörðum árekstri var metinn ósakhæfur af Héraðsdómi Vesturlands. Manninum var þó gert að greiða kona sem slasaðist alvarlega í árekstrinum þrjár milljónir í miskabætur. Þá þarf hann að greiða 410 þúsund króna sekt innan fjögurra vikna, ellegar þarf hann að sitja 24 daga í fangelsi. Innlent 31. janúar 2025 14:34
Rannsaka ólöglegt fiskeldi veiðifélags í Borgarfirði Veiðifélag í Borgarfirðir stundaði það sem er talið ólöglegt fiskeldi í húsnæði í Borgarfirði án tilskilanna rekstrar- og starfsleyfa. Matvælastofnun segist vera með málið til rannsóknar. Innlent 17. janúar 2025 12:15
Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Nýleg brú hrundi í vatnavöxtum á Vesturlandi. Að sögn Vegagerðar átti hún að standa mun lengur en íbúar á svæðinu höfðu gagnrýnt smíðina og segja málið algjört klúður. Innlent 15. janúar 2025 21:09
Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Brúin yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði er fallin í talsverðum vatnavöxtum. Brúin var reist árið 2023 í kjölfar þess að eldri brú skemmdist í vatnavöxtum. Heimamenn á svæðinu gagnrýndu smíði brúarinnar á sínum tíma og töldu víst að hún myndi ekki endast. Innlent 15. janúar 2025 10:24
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði á nýjan leik. Innlent 15. janúar 2025 10:22
Ferðamönnum bjargað af þaki bíls við Kattarhryggi Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út vegna tilkynningar frá ferðamönnum í vandræðum við Kattarhryggi, á leið upp á Holtavörðuheiði, á fimmta tímanum í nótt. Innlent 15. janúar 2025 07:52
Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Jarðskjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu upp úr fimm í dag sem var 2,9 að stærð. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands er þetta með stærri skjálftum sem riðið hafa yfir á svæðinu á undanförnum árum. Innlent 12. janúar 2025 18:28
Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði Veðurstofan hefur hækkað vöktunarstig á Ljósufjöllum. GPS og gervitunglagögn sýna enga mælanlega aflögun og eru engar sérstakar vísbendingar um að kvikuhreyfingar séu nærri yfirborði. Skjálfar hafa mælst á svæðinu en þeir eru á „óvenjulegri dýpt“ samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar um málið. Innlent 9. janúar 2025 12:11
Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú. Innlent 8. janúar 2025 11:48
Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Skjálfti 2,9 að stærð varð við Grjótárvatn, norður af Borgarnesi, klukkan 5:13 í nótt. Þá varð skjálfti 4,1 að stærð við Bárðarbungu upp úr hálf fjögur í nótt. Innlent 8. janúar 2025 08:05
Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið. Innlent 5. janúar 2025 13:31
„Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir útlit fyrir að þekkt eldgosasvæði á Snæfellsnesi sé komið í gang, en um þúsund ár eru liðin frá síðasta eldgosi þar. Mestar líkur séu á hraungosi ekki ósvipuðum þeim sem sést hafa á Reykjanesskaganum undanfarin ár. Innlent 3. janúar 2025 21:01
Lengsti óróapúlsinn til þessa Lengsti óróapúlsinn í Ljósufjallakerfinu mældist við Grjótarárvatn í fjöllunum ofan Mýra síðdegis í gær. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá á Facebook-hóp sínum. Innlent 3. janúar 2025 11:57
Skjálftavirkni í Mýrafjöllum stóraukist á árinu Skjálftavirkni í Mýrafjöllum ofan Mýra í Borgarbyggð jókst margfalt þegar líða tók á árið. Virknin telst ný af nálinni en fyrir árið 2021 voru varla skráðir skjálftar á svæðinu frá upphafi mælinga árið 1991. Öflugasti jarðskjálfti ársins hérlendis var í Bárðarbungu og mældist 5,4 að stærð. Innlent 30. desember 2024 00:16
Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Björgunarsveitir úr Húnavatnssýslu og uppsveitum Borgarfjarðar voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær rútur lentu í vandræðum sökum hálku og vonskuveðurs á Holtavörðuheiði. Önnur rútan ók út af veginum. Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað sökum veðurs. Innlent 23. desember 2024 20:50
Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Bíll valt út af vegi á þjóðvegi 54 á Mýrum í Borgarfirði síðdegis í dag. Vegurinn var lokaður um tíma og aðstoðaði slökkvilið við aðgerðir á vettvangi. Nokkur hálka er á veginum að sögn vegfarenda en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur vegurinn verið opnaður á nýjan leik. Innlent 22. desember 2024 18:41
Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri Fjárhagsstaða Borgarbyggðar er góð enda er búið að framkvæma mikið á árinu og nýtt ár verður líka mikið framkvæmdarár. Nú er til dæmis verið að endurbyggja grunnskólann á Kleppjárnsreykjum en á sama tíma bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri. Innlent 22. desember 2024 15:06
Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands líkir óróahviðum í Ljósufjallakerfinu við þær sem sáust í aðdraganda eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur vekur athygli á því að mun stærri jarðskjálftahrina hafi orðið í Ljósufjöllum árið 1938 með stærsta skjálfta upp á 5,2 stig. Innlent 20. desember 2024 12:12
Eldstöðvar sem ógnað gætu Vestlendingum minna á sig Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Ljósufjallakerfinu til þessa, upp á 3,2 stig, varð þar í gærkvöldi og fylgdi honum skjálftahrina í nótt og fram eftir morgni. Eldstöðvakerfið teygir sig í gegnum byggðir á Vesturlandi. Innlent 19. desember 2024 22:00
Margrét áfram rektor á Bifröst Stjórn Háskólans á Bifröst hefur boðið Dr. Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor að framlengja ráðningu hennar um fimm ár eða frá 1. ágúst 2025 til 1. júlí 2030. Viðskipti innlent 19. desember 2024 12:24
Stærsti skjálftinn á svæðinu frá upphafi mælinga Skjálfti 3,2 að stærð varð við Grjótarvatn, um 26 kílómetrum norður af Borgarnesi, klukkan 22:50 í gærkvöldi. Innlent 19. desember 2024 06:07