Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttamynd

Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli

Garpur I. Elísabetarson bar vitni við aðalmeðferð Írisar Helgu Jónatansdóttur en hún er ákærð fyrir að hafa beitt hann, tvo aðra karlmenn og fjölskyldur þeirra umfangsmiklu umsáturseinelti. Málið hafi haft mikil áhrif á hans líf en hann upplifði kvíða og félagsfælni í fyrsta skipti á ævinni eftir að málið kom upp.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Barði barn en málið fyrndist

Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot, með því að hafa barið dreng í höfuðið eftir að hann sparkaði upp hurð að heimili mannsins. Ekki var talið að maðurinn hefði vitað að um barn væri að ræða og því var ekki hægt að dæma hann fyrir barnaverndarlagabrot. Þar sem um minni háttar líkamsárás var að ræða var brotið fyrnt eftir að rannsókn þess lá niðri hjá lögreglu í þrjú ár. 

Innlent
Fréttamynd

Bárust skrýtin skila­boð þegar sam­bandinu lauk

Sölvi Guðmundsson sem segir Írisi Helgu Jónatansdóttur hafa setið um sig og eltihrellt segir áhrifin hafa verið mjög mikil og valdið óöryggi og vanlíðan á heimi fjölskyldu hans. Eftir að ákæra var gefin út birtist dánartilkynning um Sölva í Morgunblaðinu sem var ekki fótur fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ráðist á sam­býlis­konu sína á Tenerife

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á endurtekinn hátt ógnað lífi, heilsu og velferð barnsmóður sinnar og þáverandi og síðar fyrrverandi sambýliskonu árið 2024. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist á konuna á hótelherbergi á Tenerife, sent henni ærumeiðandi skilaboð um ætlað framhjáhald hennar og að hafa stolið öllum dekkjum undan bíl hennar.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku

Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, neitar því að hafa mætt með krukku á heimili brotaþola og sagt að í henni væri fóstur. Hún er sökuð um að hafa dreift óhróðri um fólk, stofnað aðganga á samfélagsmiðlum í þeirra nafni en segist sjálf hafa litla kunnáttu þegar komi að slíkum miðlum.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­menni í héraðs­dómi

Söguleg þingfesting er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem 71 sætir ákæru. Ákærðu er skipt upp í hópa og þingfestingunni er streymt í annan sal.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð í máli Írisar Helgu að hefjast

Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur hefst í dag. Hún sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar.

Innlent
Fréttamynd

Koma langt að til að sjá hvar Agnes var háls­höggvin

Staðurinn þar sem þau Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin árið 1830, Þrístapar í Vatnsdalshólum, er orðinn áningarstaður ferðamanna, jafnt Íslendinga sem útlendinga. En svo er einnig um aðra sögustaði síðustu aftöku á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna

Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök.

Innlent
Fréttamynd

Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi

Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson þarf að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Landsréttur kvað upp dóm þess efnis í gær en Höskuldur hefur þegar sagt að hann muni fara með málið alla leið í Hæstarétt þurfi hann þess.

Innlent
Fréttamynd

Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi

Félags- og húsnæðisráðuneytið og Ríkislögreglustjóri héldu á dögunum námskeið um einkenni og birtingarmyndir heiðursofbeldis. Um 25 manns, sem vinna meðal annars fyrir lögregluna, framhaldsskóla eða barnaverndaryfirvöld, sóttu námskeiðið.

Innlent
Fréttamynd

Veru­leikinn breyttur eftir ofsaakstur á ó­nýtum bíl

Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða skilorðsbundins fangelsis vegna umferðarslyss sem varð í grennd við Hofsós í apríl í fyrra, þegar hann var tæplega átján ára. Einn þriggja farþega í bílnum slasaðist mjög alvarlega og slysið mun marka allt hans líf, að sögn læknis. Slysið varð eftir að ungi maðurinn ók á um 190 kílómetra hraða á handónýtum bíl.

Innlent
Fréttamynd

Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að myrða kærustu sína á þáverandi heimili þeirra í Reykjavík um miðjan júlí síðastliðinn. Frásögn konunnar á bráðamóttöku var upphaflega á þá leið að hún hefði veitt sér áverkana sjálf en því trúði lögregla tæplega.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar

Ragnhildur Sveinsdóttir hefur höfðað mál gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um meðlagsskuld að ræða en málið verður tekið fyrir 2. nóvember. Ragnhildur stefndi Eiði árið 2022 vegna sambærilegs máls en það var leyst utan dómstóla.

Lífið
Fréttamynd

Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman

Þrír menn hafa hlotið dóm fyrir að hafa í ágúst 2023 kveikt í Teslu-bifreið lögreglumanns gegn greiðslu sem hljóðaði upp á hundrað þúsund krónur. Málinu hafði verið vísað frá dómi í desember síðasta árs en þá hafði ekki fengist leyfi frá Ríkissaksóknara til þess að Héraðssaksóknari gæti farið með málið.

Innlent
Fréttamynd

Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum

Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Húð­flúr á hálsi kom upp um síbrotamann

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 17. nóvember næstkomandi vegna gruns um að hann hafi brotið 32 sinnum af sér á tímabilinu 27. mars 2025 til 19. október síðastliðins. Hann er meðal annars grunaður um hnífstunguárás í sumar en brotaþoli í því máli bar kennsl á hann vegna áberandi húðflúrs á hálsi hans.

Innlent
Fréttamynd

Norskir fjöl­miðlar í hart við Meta

Hagsmunasamtök norska fjölmiðlafyrirtækja freista þess nú að fá lögbann á nýja notendaskilmála bandaríska samfélagsmiðlarisans Meta fyrir fyrirtækjareikninga. Fjölmiðlarnir segja nýju skilmálana gefa Meta óheftan aðgang að öllu efni sem þeir framleiða og dreifa.

Viðskipti erlent