Nýjar kröfur og nýir tímar í samgöngumálum Nýir tímar í samgöngumálum standa fyrir viðurkenningu á auknum kröfum og þörfum. Sem þýðir að malarvegirnir verða að hverfa og í stað þeirra þurfa að koma vegir með bundnu slitlagi, það þýðir tvöföldun þjóðvega og stundum lýsingu þeirra, að jarðgöng eru eðlilegur hluti af vegagerð og umferðarmannvirki þarf að bæta vegna umferðarþunga. Fastir pennar 26. október 2006 00:01
Um hvað á pólitíkin að snúast? Það er auðvelt að fá stjórnmálamenn til að tala mikið á kosningaári – það stendur ekki á þeim að mæta í sjónvarpsþætti – en það er erfiðara að fá þá til að tala skýrt. Þeir taka ekki sénsinn á að láta hanka sig rétt fyrir kosningar... Fastir pennar 25. október 2006 12:55
Hvalalosti Stundum fara stjórnarherrar í stríð til að dreifa athygli almennings frá óþægilegum innanlandsmálum. Ég segi stjórnarherrar, því að konur fara sjaldan í stríð. Fastir pennar 25. október 2006 00:01
Karlæg gildi kvenna Athygli vekur að stjórnendur flokka þessa eiginleika ungra kvenna sem karllæg gildi. Og kannski er það einmitt þarna sem hundurinn liggur grafinn. Árið 2006, 31 ári eftir að konur lögðu niður störf til að vekja athygli á vinnuframlagi sínu, er litið á sjálfsagðan hlut eins og að sækjast eftir ábyrgð og starfsframa sem karllæg gildi. Fastir pennar 25. október 2006 00:01
Þvermóðska eða málefnaleg rök Reyndar virðist málefnaleg og rökræn stjórnmálabarátta vera litin hornauga. Stuðningur við stjónmálaflokka er eins og stuðningur við fótboltaklúbba; þú heldur með þínum flokki sama hvað á bjátar... Fastir pennar 24. október 2006 11:07
Óþolandi misskipting og konur Stundum hefur konu virst í samskiptum sínum við karla að þeir hlusti ekki almennilega á það sem hún segir fyrr en hún er orðin frekar óþolandi. Ég velti því þess vegna fyrir mér hvort ekki sé kominn tími til að við konur verðum algjörlega óþolandi vegna þess óréttlætis sem launaójafnréttið er. Fastir pennar 24. október 2006 00:01
Afskiptaleysið verður dýrkeypt Að gefnu þessu tilefni er sérstök ástæða til að beina athygli að þeim skólum sem náð hafa bestum árangri varðandi aga og hegðun. Í því sambandi má til að mynda nefna Hjallastefnuna. Hún rekur bæði leikskóla og grunnskóla fyrir yngstu aldurshópana þar sem farnar hafa verið nýjar leiðir með augljósum árangri. Fastir pennar 24. október 2006 00:01
Einar, Kristján, Ishmael og Ahab Það að ekki megi veiða hvali hefur ósköp lítið með það að gera núorðið að hvalir séu í útrýmingarhættu, heldur er þetta það sem heitir specisismi... Fastir pennar 23. október 2006 11:34
Einar Hvalur Guðfinnsson Hér er farið með þjóðarhagsmuni af mikilli léttúð. Ráðherra gefur sér ekki tíma til að undirbúa sína stærstu ákvörðun. Vinnubrögð hans í málinu eru gamaldags amatörismi, hagsmunarekstur í stíl við Sjálfstæðisflokk síðustu aldar: „Bíddu bara, við reddum þessu." Og þegar mönnum verður hugsað til meintra milljarðaeigna Kristjáns Loftssonar vaknar enn og aftur krafan um að fjárreiður stjórnmálaflokkanna verði gerðar opinberar. Fastir pennar 23. október 2006 07:00
Staða Björns Skilaboð Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, á fundi í Valhöll á laugardaginn voru skýr. Forysta flokksins væri samstíga og aðförin að Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra í tengslum við hlerunarmálið svokallaða væri ógeðfelld. Það læddist að honum sá grunur að óprúttnir aðilar stæðu þarna að baki vegna komandi prófkjörs. Fastir pennar 23. október 2006 07:00
Friðargæslan Þau verkefni sem íslenskir friðargæsluliðar eiga að fást við í framtíðinni, eru þess eðlis að við ættum að eiga úrval kvenna og karla til að gegna þeim. Fastir pennar 22. október 2006 06:00
Þjóðarframleiðsla og þjóðarvelferð? Ég tel að í umræðum um stjórnmál og þjóðfélagsmál almennt eigum við ekki bara að horfa á þjóðarframleiðsluna. Við eigum líka að líta til þjóðarvelferðar þó ekki sé hægt að mæla það hugtak í krónum og aurum. Fastir pennar 22. október 2006 00:01
Klisjur stuðla að meðvitundarleysi Um daginn barst mér í hendur, einu sinni sem endranær, dagblað sem nefnir sig hinu frumlega nafni Blaðið. Framan á Blaðinu var mikil lofgjörð um frambjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kom á daginn að frambjóðandinn hafði einfaldlega keypt forsíðuna enda lifum við á tímum frjálsrar fjölmiðlunar. Fastir pennar 21. október 2006 06:00
Gott frumkvæði en of íhaldssamt Formaður Samfylkingarinnar hefur ásamt öðrum þingmönnum flokksins lagt fram frumvap til laga um endurskipulagningu stjórnarráðsins og fækkun ráðuneyta. Hugmyndum um slíkar breytingar hefur skotið upp öðru hvoru um langa hríð án þess að nokkuð gerðist. Fastir pennar 21. október 2006 06:00
Fagnaðarefni Kjarni málsins er þessi: Lengi starfaði allstór hópur hér í nánum tengslum við óvinveitt einræðisríki, þáði þaðan fjárhagsaðstoð og hlaut þjálfun í vopnaburði og byltingarfræðum. Þessi hópur vildi koma á kommúnisma og skirrðist ekki við að beita ofbeldi, til dæmis í götubardaganum 30. mars 1949. Fastir pennar 20. október 2006 06:00
Sakaruppgjöf? Upplýsingar tveggja virtra sagnfræðinga um eftirgrennslan stjórnvalda um athafnir erlendra ríkja og einstaklinga vegna atburða í andrúmslofti kalda stríðsins hafa eðli máls samkvæmt vakið upp mikla umræðu. Að sama skapi hafa fullyrðingar fyrrverandi utanríkisráðherra um hlerun á símtölum hans vakið athygli. Fastir pennar 20. október 2006 06:00
Langir hnífar, hleranir, prófkjör og bílastæði Hér er fjallað átök í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, rannsókn saksóknara á hlerunarmálum, prófkjör sem eru hönnuð til að vernda hagsmuni þingmanna og loks er vikið að bílastæðamálum við elsta skóla landsins... Fastir pennar 19. október 2006 11:46
Flokkspólitískt réttarfar? Eg las nýlega í erlendu riti um Íslendinga, að engin þjóð í heimi mundi vera svo grandvör og löghlýðin. Fangelsin stæði tóm og hegningardómarnir væri óvenjulega fáir í hlutfalli við mannfjölda. Fastir pennar 19. október 2006 06:00
Eðlileg ákvörðun Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni markar vissulega nokkur tímamót. Ákvörðunin styðst við gild rök. En framhjá hinu verður ekki horft að hún getur reynst umdeild. Fastir pennar 19. október 2006 06:00
Að hlera – og þagga Í umfjöllun Mogga um grein Þórs Whitehead um strangleynilega öryggisþjónustudeild (mbl. 23. 9. 06) kemur fram að meðal gjafa frá bandarísku leyniþjónustunni voru myndavélar með sérstökum linsum,og hlustunartæki af ýmsum stærðum og gerðum, svo og nætursjónaukar. Fastir pennar 18. október 2006 06:00
Nýi heimurinn vex sá gamli hrörnar Bandaríska hagstofan skráði í gær 300 milljónasta borgara Bandaríkjanna. Mannfjöldaþróun vestra og hér á Íslandi hefur lengi fylgzt að; íbúar Íslands urðu 300.000 í byrjun þessa árs. Það hlutfall hefur þannig haldizt óbreytt að Bandaríkjamenn séu réttum þúsund sinnum fleiri en við Íslendingar. Fastir pennar 18. október 2006 06:00
Óráðskennt hjal um Ríkisútvarp, ólæs þjóð, hernaðaræði Hér er fjallað um fáránlega umræðu um Ríkisútvarpið sem fór fram á Alþingi í gær, mýtuna um bókmenntaþjóðina sem er hrunin, heræfingar sérsveita í Hvalfirði og hugmyndir um að vopna lögregluna... Fastir pennar 17. október 2006 11:50
Brösótt byrjuní Svíþjóð Það eru ekki beint sælir hveitibrauðsdagar hjá stjórn íhaldsmannsins Frederiks Reinfeld í Svíþjóð, því á fyrstu 10 dögum stjórnar hans hafa tveir af ráðherrum ríkisstjórnarinnar orðið að segja af sér vegna spillingar og hneykslismála. Byrjunin hjá fjögurra flokka borgaraflokkastjórninni þar í landi lofar því ekki góðu, hvað svo sem síðar verður. Fastir pennar 17. október 2006 06:00
Auðleystur vandi Alþjóðadagur kennara var haldinn hátíðlegur í yfir hundrað löndum þann 5. október sl. Heldur þótti mér þó fara lítið fyrir hátíðahöldum hér á landi og að mestu leið dagurinn í þögn. Stuttar fréttatilkynningar voru reyndar birtar í dagblöðum og á vefmiðlum og á heimasíðum Kennarasambands Íslands og Kennarafélags Reykjavíkur birtist samþykkt frá alþjóðasamtökum kennara í 9 liðum. Að öðru leyti varð ég lítið vör við þennan dag og í fljótu bragði fann ég t.d. enga umfjöllun á heimasíðu Kennaraháskóla Íslands, vöggu kennarastéttarinnar. Fastir pennar 17. október 2006 00:01
Draugar fortíðar Það hlýtur að teljast þolanlega sanngjörn krafa ef menn ætla að stofna leynilögreglu – eða hvað menn vilja kalla það – að upplýst verði hvað var hérna fyrir. Því það er einhver draugagangur úr fortíðinni... Fastir pennar 16. október 2006 08:59
Þögn Sjálfstæðisflokksins Á Alþingi vék Björn Bjarnason sér ítrekað undan því að svara hvort slík starfsemi hefði verið í gangi eftir 1991. Nú liggja hins vegar fyrir skýrar vísbendingar í grein Þórs Whitehead um meint ólöglegt eftirlit með vinstri mönnum eftir lok kalda stríðsins. Hvers vegna óttast Sjálfstæðisflokkurinn að það verði rannsakað? Fastir pennar 16. október 2006 00:01
Styttri vinnudagur skiptir sköpum Steinunn Stefánsdóttir skrifar Hér á landi stöndum við langt að baki nágrannalöndum okkar þegar kemur að lengd vinnuviku. Stytting vinnuviku beggja foreldra er eitt afdráttarlausasta skrefið sem hægt er að stíga í þá átt að bæta kjör barna á Íslandi og ætti þess vegna að vera eitt helsta baráttumál foreldra í landinu. Fastir pennar 16. október 2006 00:01
Lögheimili tekjustofnanna Þekkt eru dæmi um að stórir bankar hafi flutt sig milli heimsálfa, hvað þá skemur. Fyrirtæki sem sjá sér hag í hagstæðu skattaumkverfi komast fyrir í einni skjalatösku og flutningur á milli landa getur orðið með fáum markvissum skipunum á Internetinu. Fastir pennar 15. október 2006 00:01
Lífeyrissjóðagjáin brúuð Hvernig væri ef við hættum alfarið skerðingum vegna atvinnutekna? Lítum á greiðslur almannatrygginga til eldri borgara sem tekjur, ef aldraðir vinna sér inn umfram það bætist sú upphæð við það sem ríkið greiðir og síðan yrði lagður á skattur eins og hjá öðrum í landinu. Fastir pennar 15. október 2006 00:01
Höll til sölu Hér er fjallað um fyrirhugaða sölu á glæsivillunni á Fríkirkjuvegi 11, ég rifja upp bernskuminningar þaðan, en einnig er vikið að skálmöldinni í Miðbænum og ljótum og ómerkilegum húsum sem er hrúgað upp í Skuggahverfinu... Fastir pennar 14. október 2006 10:17
Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól! Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun