Þrír dæmigerðir dagar skemmtiferðaskipafarþega í júlí Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað undanfarin misseri að fjölgun hefur orðið á ferðum skemmtiferðaskipa hingað til lands. Frá sjónarhóli efnahagslífs, mannlífs og náttúru þetta afar jákvæð þróun, þá ekki aðeins vegna þess að skipin bæta mikilvægri gátt við samgönguleiðir til Íslands, heldur einnig vegna þess að engum hluta ferðaþjónustu er eins vel stýrt m.t.t. álags á innviði, náttúru og menningu. Skoðun 9. maí 2024 09:00
Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Samningar voru undirritaðir milli SA fyrir hönd ISAVIA ohf. og samninganefnda starfsmanna Sameykis og FFR rétt í þessu og verkföllum sem boðuð höfðu verið á Keflavíkurflugvelli aflýst. Innlent 7. maí 2024 22:00
Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent. Viðskipti innlent 7. maí 2024 11:18
Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í. Erlent 6. maí 2024 23:09
Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Íslensku flugfélögin ætla að grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sem að óbreyttu hefjast á fimmtudag og föstudag. Ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann hefst seinnipartinn á fimmtudag. Innlent 6. maí 2024 18:52
Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Heildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, fjórum prósentum fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega. Viðskipti innlent 6. maí 2024 17:36
Kostnaður vegna endurskipulagningar hjá Arctic Adventures litar afkomuna Talsvert var um einskiptiskostnað hjá Arctic Adventures vegna starfsmannabreytinga og endurskipulagningar á innra starfi félagsins á árinu 2023. Þótt tekjur hafi aukist um 37 prósent dróst hagnaður nokkuð saman af þeim völdum. Fyrirtækið keypti Kerið í Grímsnesi í fyrra en samkvæmt fjárhagsupplýsingum frá Arctic Adventures námu fjárfestingar í fasteignum og landi tæplega tveimur milljörðum. Innherji 6. maí 2024 16:48
Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6. maí 2024 15:50
Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast á fimmtudag og föstudag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Ísavía á Keflavíkurflugvelli. Dauflegt er yfir kjaraviðræðum stéttarfélaganna tveggja við Samtök atvinnulífsins. Innlent 6. maí 2024 12:14
Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Fundi stéttarfélaga starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtaka atvinnulífsins með ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns. Innlent 5. maí 2024 22:41
Frestun verkfalla kemur til greina Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á. Innlent 5. maí 2024 11:12
Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins segir áhyggjuefni hversu oft stéttarfélög með starfsmenn á Keflavíkurflugvelli boði til verkfalla. Samtökin muni fara fram á frestun aðgerða þegar sest verður aftur við samningaborðið. Innlent 3. maí 2024 19:02
Hvar er Reykjavegur? Árið 1995 vorum við Pétur Þorleifsson, ferðagarpur og rithöfundurt, fengnir til þess verkefnis að hanna langa gönguleið á Reykjanesskaga. Verkefnið var unnið undir stjórn Péturs Rafnssonar, þá formanns Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins, á vegum sérstakrar samstarfsnefndar nær allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Skoðun 3. maí 2024 15:01
Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli. Um 80% félagsmanna FFR greiddu atkvæði með aðgerðunum. Innlent 2. maí 2024 14:29
Hagfræðin á Heimildinni Í samfélagsumræðunni undanfarið hefur það orðið að nokkurs konar samkvæmisleik að halda því fram að ferðaþjónusta eigi sök á flestu sem miður hefur farið í hagkerfinu undanfarin ár. Að sögn sjálfskipaðra sérfræðinga um efnahagsmál er hún orsök almennrar þenslu, verðbólgu, hárra stýrivaxta og framboðsskorts á húsnæðismarkaði. Skoðun 2. maí 2024 10:30
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1. maí 2024 23:00
Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Eystri-Fellsfjara við Jökulsárlón er á lista yfir bestu strandir heims að mati ferðamálasérfræðinga. Þar er hún í fertugasta og fyrsta sæti af fimmtíu. Listinn er uppfærður á hverju ári og áður var Reynisfjara einnig á honum. Innlent 1. maí 2024 13:24
Hlutabréfaverð flugfélaganna fellur og smærri fjárfestar færa sig í Alvotech Hlutabréfaverð íslensku flugfélaganna Icelandair og Play hefur fallið um næstum 50 til rúmlega 60 prósent á þremur mánuðum. Heildarvísitalan hefur á sama tíma lækkað um sjö prósent. Hlutabréfagreinandi segir að líklega hafi smærri fjárfestar og einstaklingar fært fjárfestingar sínar úr Icelandair í Alvotech. Það eru gerðar minni væntingar en áður til flugrekstrar samhliða minni eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Innherji 30. apríl 2024 18:08
Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Samninganefndir Sameykis og FFR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, hafa efnt til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsfólks sem starfar hjá ISAVIA ohf. Verkfallsaðgerðirnar hefjast 9. maí verði þær samþykktar, en atkvæðagreiðslunni um þær lýkur 2. maí. Innlent 29. apríl 2024 15:24
Langt í að þeir nái sér að fullu Ferðamenn sem voru hætt komnir eftir harðan árekstur á þjóðvegi 1 við Hellu um síðustu helgi telja bílbeltin hafa bjargað lífi þeirra. Bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist í árekstrinum og annar ferðamannanna liggur enn talsvert þungt haldinn á Landspítalanum. Innlent 28. apríl 2024 19:47
Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Litlu mátti muna þegar breskir ferðamenn lentu í bílslysi hér á landi fyrir rúmri viku. Annar þeirra liggur enn á spítala en á meðan tóku þeir ákvörðun um að trúlofast. Lífið 26. apríl 2024 23:51
Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Kínversk ferðaskrifstofa á ekki rétt á peningum frá tryggingafélaginu TM vegna rútuslyssins við Kirkjubæjarklaustur í desember 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt foreldrum hinna látnu og taldi sig eiga bótakröfu á TM sem er tryggingarfélag Hópferðabíla Akureyrar. Innlent 24. apríl 2024 16:46
Alfa Framtak áhugasamt um kaup á hlut í KEA hótelum Alfa Framtak er á meðal þeirra sem boðið hafa í hlut Landsbankans í KEA hótelum, einni stærstu hótelkeðju landsins, samkvæmt heimildum Innherja. Eftir því sem næst verður komist styttist í að einkaviðræður hefjist við mögulegan kaupanda. Innherji 24. apríl 2024 12:10
Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Heildartekjur Icelandair á fyrsta ársfjórðungi jukust um ellefu prósent á milli ára og námu 35,8 milljörðum króna. Var þetta tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu félagsins. Afkoma fjórðungsins var neikvæð um 9,5 milljarða króna samanborið við 8,5 milljarða í fyrra. Viðskipti innlent 23. apríl 2024 19:59
Ferðaþjónusta til framtíðar Nærandi ferðaþjónusta er hugtak sem fær sífellt meiri athygli í umræðunni bæði hér á Íslandi sem og um heim allan. Hugtakið felur í sér markvissar aðgerðir sem fólk og fyrirtæki geta gripið til með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi og náttúru og skilja þannig við áfangastaðinn, samfélagið og náttúruna í betra ástandi en áður. Skoðun 22. apríl 2024 13:31
Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Erlendir ferðamennn sóttu Ísland einna helst vegna náttúrunnar í fyrra. Langflestir heimsóttu höfuðborgarsvæðið og Suðurland en þrettán prósent lögðu leið sína á Vestfirði. Innlent 19. apríl 2024 08:02
Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Ferðamenn fá leyfi til þess að fara til Grindavíkur en eingöngu í skipulögðum rútuferðum á veitingastaði samkvæmt nýjum reglum sem lögreglan hefur gefið út. Aðkomufólki verður áfram bannað að ferðast á eigin vegum til bæjarins. Erlent 18. apríl 2024 19:13
Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á ferðum til borgarinnar Cardiff í Wales næsta haust. Þetta er gert vegna mikils áhuga stuðningsmanna á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram í október og nóvember. Viðskipti innlent 18. apríl 2024 13:33
Nærandi ferðaþjónusta Nærandi ferðaþjónusta (e. Regenerative tourism) hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár um heim allan. Hugtakið fjallar í stuttu máli um að ferðaþjónustufyrirtæki og gestir þeirra hafi jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og náttúru. Skoðun 15. apríl 2024 15:30
Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Íslandshótel og fjárfestar tengdir Skógarböðunum hafa undirritað viljayfirlýsingu um hönnun, uppbyggingu og rekstur fjögurra stjörnu hótels við hlið Skógarbaðanna í Eyjafirði. Hótelið verður með 120 herbergi, fjögurra hæða, auk þakhæðar með útsýni yfir Eyjafjörðinn. Viðskipti innlent 15. apríl 2024 09:43