

Flóttamenn
Fréttir af málefnum flóttamanna.

„Mér er alveg sama þó ég sé umdeildur“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrst og fremst vera pólitíska yfirlýsingu. Hann hafi ekki viljað líta fram hjá alvarlegum ásökunum í garð stofnunarinnar.

UNRWA segir fjármagnið munu þrjóta í lok febrúar að óbreyttu
Forsvarsmenn Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segja stofnunina ekki munu getað aðstoðað íbúa á Gasa og viðhalda aðgerðum á svæðinu lengur en til loka febrúar ef framlög til hennar verða skert.

Saklausir borgarar líði fyrir ákvörðun Íslands
Fyrrverandi starfsmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir ákvörðun Íslands um að frysta fjármagn til stofnunarinna ómannúðlega og hún muni bitna á saklausum borgurum.

„Við gefumst aldrei upp“
Tjald á vegum Palestínumanna sem bíða fjölskyldusameiningar sem hefur verið uppi fyrir framan Alþingishúsið í tæpan mánuð var tekið niður í dag. Mótmælendur segjast alls ekki vera að gefast upp og ætla að halda dvölinni áfram án tjaldsins.

Tjaldið tekið niður
Tjaldbúðir palestínskra mótmælenda verða að öllu óbreyttu teknar niður af Austurvelli í dag eftir tæplega mánaðarviðveru. Yfirvöld hafa beðið mótmælendurna um að fjarlægja búðirnar, og segjast þeir ætla að verða við því.

Bjarni hellir sér yfir Semu
Utanríkisráðherra segir ásakanir Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkts við Háskóla Íslands og stofnanda Solaris, um að hann hefði uppi óhróður um hóp fólks og væri í reynd að hvetja til andúðar og ofbeldis, fráleitar og dæma sig sjálfar. Þá segir hann skemmdarverk hafa verið unnin á utanríkisráðuneytinu í morgun.

Kæra hatursorðræðu í garð flóttafólks til lögreglu
Stjórn hjálparsamtakanna Solaris fordæmir í yfirlýsingu orðræðu valdhafa sem ýtir undir hatur og ofbeldi í garð flóttafólks. Samtökunum hafa á fyrstu vikum ársins borist hátt í tuttugu tilkynningar um hatursorðræðu í garð flóttafólks.

Kærir mbl til siðanefndar blaðamanna vegna skrifa um flóttamenn
María Lilja Þrastardóttir hefur kært mbl til siðanefndar blaðamanna vegna fréttar um kæru á hendur palestínskum mótmælenda fyrir hatursorðræðu. María segir fréttina ekki setta fram af heiðarleika eða hlutleysi og gera saklausum mönnum upp alvarlegar sakir.

Mega bara vera með eitt tjald og mega ekki gista í því
Mótmæli í tjaldbúðum á Austurvelli hafa staðið yfir í 24 daga en með nýju leyfi Reykjavíkurborgar hafa mótmælendum verið settar meiri skorður. Nú mega þeir bara vera með eitt tjald og ekki gista í því.

Mannréttindadómstóllinn vísar máli Hussein frá
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lýst kæru íranska hælisleitandans Hussein Hussein og fjölskyldu hans ótæka til efnismeðferðar og vísað henni frá. Einnig hefur dómstóllinn ákveðið að aflétta bráðabirgðastöðvun á flutningi Hussein frá Íslandi til Grikklands.

Einu skrefi nær því að senda hælisleitendur til Rúanda
Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, er einu skrefi nær því að tryggja flutning hælisleitenda til Rúanda, á meðan þeir bíða efnislegrar meðferðar sinna mála í Bretlandi. Frumvarp þess efnis var samþykkt í neðri deild breska þingsins í gær eftir misheppnaða tilraun samflokksmanna Sunaks til uppreisnar.

Umsókn palestínsku drengjanna tekin til efnismeðferðar
Palestínsku drengirnir og frændurnir Sameer Omran 12 ára og Yazan Kawave 14 ára hafa nú fengið það staðfest að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verður tekin til efnislegrar meðferðar. Sú meðferð getur tekið marga mánuði.

Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan
Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt.

„Munum sitja hér þangað til við sjáum fjölskyldur okkar yfirgefa Gasa“
Hópur Palestínumanna á Íslandi sem vill sameinast fjölskyldum sínum sem enn eru á Gasa hefur reist tjöld á Austurvelli fyrir utan Alþingi. Í tilkynningu segjast þau ætla að vera þar þar til þau hafa sameinast ástvinum sínum.

Macron ver afar umdeilt útlendingafrumvarp
Emmanuel Macron Frakklandsforseti var til viðtals í fréttaskýringaþætti á France 5 í gær, þar sem hann varði meðal annars umdeilt lagafrumvarp um útlendinga sem samþykkt var á þinginu í vikunni.

Flytja fólkið til Íslands frá Egyptalandi þegar það kemst frá Gasa
Vinnumálastofnun hefur sent beiðni til Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM) vegna þeirra rúmlega hundrað einstaklinga sem eru á Gasa og eru komin með dvalarleyfi á Íslandi vegna fjölskyldusameiningar.

Herða reglur ESB um farand- og flóttafólk
Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um að herða reglur varðandi farand- og flóttafólk í Evrópu. Samkomulagið, sem er til komið eftir áralangar viðræður, mun hafa mikil á það hvernig unnið er úr komu farand- og flóttafólks til heimsálfunnar.

„Mér mun ekki líða vel fyrr en þau eru komin frá Gasa“
Palestínskur faðir sem hafa fengið samþykkta fjölskyldusameiningu vill að meira sér gert til að koma fjölskyldu hans frá Gasa. Hann á fjögur börn og eiginkonu þar. Fjölskyldusameiningar frá Palestínu hafa verið í forgangi frá því í október sem þýðir að það fara fram fyrir aðra í röðinni.

Kristilegir demókratar vilja senda hælisleitendur til þriðja ríkis
Kristilegi demókrataflokkurinn í Þýskalandi hyggst vinna aftur stuðning kjósenda með afdráttarlausum aðgerðum í útlendingamálum, sem munu meðal annars felast í því að senda hælisleitendur til þriðja ríkis á meðan unnið er úr umsóknum þeirra.

Sextíu talin látin eftir að bátur sökk í Miðjarðarhafi
Óttast er að fleiri en sextíu hafi drukknað eftir að bátur sökk undan ströndum Líbíu. Forsvarsmenn Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar IOM segir að þungar öldur hafi skollið á bátinn með fyrrgreindum afleiðingum.

Úllen-dúllen-doff: hverjum hjálpum við?
Nú þegar Úkraínumenn hafa barist í bráðum tvö ár, fyrir sameiginlegum gildum okkar og frelsi, deila bandamenn okkar um áframhaldandi stuðning við þá.

From Hope to Heartbreak: Sameer and Yazan's Dreams in Peril
In a world filled with complexities, where borders blur and humanity stands at a crossroads, the fate of two young souls, Sameer (12) and Yazan (14), hangs in the balance. Their story is one of resilience, hope, and the pursuit of a better life, but the Icelandic Directorate of Immigration threatens to shatter their dreams by deporting them to Greece.

Hætt að versla við Kjörís vegna tengsla við dómsmálaráðherra
Signý Jóhannesdóttir, fyrrverandi varaforseti ASÍ og formaður Stéttarfélags Vesturlands, kveðst vera hætt að versla við Kjörís vegna tengsla „ísdrottningarinnar“ Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirtækið en hún er einn eigenda þess. Hún segir framkoma ráðherra gagnvart hælisleitendum vera eitthvað sem siðað fólk láti ekki bjóða sér.

Segja íslensk stjórnvöld „í kappi að botninum“
Íslensk félagasamtök og hagsmunaaðilar segja íslensk stjórnvöld vera „í kappi að botninum“ og að ef verði af fyrirhuguðum breytingum dómsmálaráðherra á lögum um útlendinga stefni íslensk stjórnvöld að því að verða „lægsti samnefnari réttinda flóttafólks á Norðurlöndum“.

Þrettán starfsmenn fylgdu um 180 Venesúelabúum heim
Þrettán starfsmenn fylgdu tæpum 180 Venesúelabúum til Caracas í nóvember. Dagpeningar íslensku starfsmannanna námu 1,9 milljón króna þá fimm daga sem ferðalagið tók. Stefnt er að annarri sambærilegri ferð í janúar. Nær allur kostnaður íslenska ríkisins er endurgreiddur af Frontex.

Er Barnasáttmálinn einskis virði í augum stjórnvalda?
Finnst ykkur í fullri alvöru ekkert athugavert við það að brottvísa 12 og 14 ára börnum á flótta undan ógnarstjórn aðskilnaðarríkis Ísraels sem nú fremur hrottalegt þjóðarmorð þar sem jafnvel hvítvoðungum er ekki þyrmt?

„Það vísar enginn nauðstöddum á dyr án þess að drepa hluta af sjálfum sér“
„Um fátt er ég fullkomlega sannfærður en þetta þykist ég vita. Það vísar enginn nauðstöddum á dyr án þess að drepa hluta af sjálfum sér. Þessu verður að linna meðan enn er eitthvað eftir af okkur til þess að bjarga.“

„Fáránlegt að mál þeirra séu að þvælast um í kerfinu“
Fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs segir fáránlegt að stjórnkerfið hér á landi hafi synjað palestínskum drengjum í neyð um alþjóðlega vernd. Þeirra geti beðið hræðilegar aðstæður í flóttamannabúðum í Grikklandi sem hún hafi séð með eigin augum. Dómsmálaráðherra ætlar ekki að tjá sig um mál drengjanna.

Meðferð umsókna frá Palestínu ekki breyst frá upphafi október
Meðferð umsókna einstaklinga frá Palestínu hefur ekki breyst hjá Útlendingastofnun frá því í upphafi október þegar átökin hófust á Gasa. Alls hefur stofnunin tekið til meðferðar 244 umsóknir á þessu ári. 128 hafa fengið vernd og 116 neitun á grundvelli Dyflinnarreglugerðar eða verndar annars staðar.

„Þetta er vond stjórnsýsla“
Mál tveggja palestínskra drengja sem vísa á úr landi var tekið fyrir á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að um vonda stjórnsýslu sé að ræða og að ætlun Alþingis hefði aldrei verið að vísa fylgdarlausum börnum til Grikklands.