Formúlu 1 ekki frestað vegna eldgoss Bernie Ecclestone, segir að eldgosið á Íslandi og vandamál varðandi flug síðustu daga muni ekki hafa áhrif á spænska kappaksturinn í Barcelona í maí. Meirihluti starfsmanna Formúlu 1 liða eru strandaglóðpar í Kína vegna frestana á flugum í Evrópu. Formúla 1 19. apríl 2010 12:38
Button: Besti sigurinn frá upphafi Bretinn Jenson Button var kampakátur sigurvegari Formúlu 1 mótsins í Kína í dag, en var taugaspenntur um tíma þegar öryggisbíll var kallaður inn á brautina vegna óhapps. Hafði áhyggjur af stöðu sinni eftir að hafa náð forystu. Formúla 1 18. apríl 2010 18:34
Button vann í stormasamri keppni Bretinn Jenson Button á McLaren fagnaði sgri í kínverska Formúlu 1 kappakstrinum í Sjanghæ í dag. Formúla 1 18. apríl 2010 10:12
Vettel hræðist ekki veðurspánna Sebasstian Vettel var að vonum sáttur við að ná besta tíma í tímatökum í þriðja mótinu af fjórum í Formúlu 1 í Sjanghæ í morgun. Formúla 1 17. apríl 2010 08:09
Vettel og Webber fremstir í tímatökum Sebastian Vettel og Mark Webber tryggðu Red Bull tvo fremstu staðina á ráslínu á Sjanghæ brautinni í Kína í morgun, þegar tímataka fyrir kappaksturinn á sunnudag fór fram. Formúla 1 17. apríl 2010 07:34
Webber fljótastur á lokaæfingunni Ástralinn Mark Webber var fljótastur á lokaæfingu keppnisliðia á Sjanghæ brautinni í Kína í nótt á Red Bull bíl, en bestu tímarnir náðust á lokaspretti æfingarinnar. Æfingin var sú síðasta fyrir tímatökuna sem er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 05.45. Formúla 1 17. apríl 2010 04:29
Tímatakan lykill að sigursókn Hamiltons Lewis Hamilton var ánægður með dagsverkið eftir fyrstu tvær æfingar mótshelgarinnar í Sjanghæ í Kína. Formúla 1 16. apríl 2010 09:35
McLaren í forystu á æfingum McLaren liðið er til alls líklegt á Sjanghæ brautinn í Kína um helgina, en ökumenn liðsins náðu besta tíma á báðum æfingum í nótt. Lewis Hamiton náði besta tíma yfir heildina á æfingunum tveimur. Formúla 1 16. apríl 2010 07:59
Meisturunum tveimur vel til vina Lewis Hamilton og Jenson eru báðir meistarar og Button núverandi handhafi titilsins. Hamilton sem vann titilinn 2008 var spurður hvort mikil samkeppni ríkti á milli þeirra á blaðamannafundi í dag, en Button er ofar Hamilton í stigamótinu hjá McLaren liðinu. Formúla 1 15. apríl 2010 16:00
Schumacher eygir enn meistaratitilinn Michael Schumacher hefur trú á að hann eigi möguleika á meistaratitilinum í Formúlu 1, þó hann sé aðeins með níu stig á móti 39 stigum Felipe Massa. Hann er kominn til Kína og í frétt á autosport.com telur hann sig eiga möguleika á toppslagnum. þrátt fyrir brösótt gengi. Formúla 1 15. apríl 2010 10:36
Alonso: Schumacher keppir um titilinn Spánverjinn Fernando Alonso sem er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Felipe Massa telur að Michael Schumacher verði meðal þeirra sem keppi um titilinn í ár. Formúla 1 15. apríl 2010 09:17
Massa: Búumst til varnar gegn McLaren Felipe Massa hjá Ferrari er í forystu í stigamóti ökumanna og fyrir aftan er þéttur hópur reynslumikilla ökumanna. Massa telur að McLaren með nýjan búnað sem stýrir loftflæði á afturvæng bílsins á nýstárlegan hátt gæti veitt þeim forskot um helgina. Formúla 1 14. apríl 2010 14:47
Máttur Indlands eflist í Formúlu 1 Force India liðið, eða Máttur Indlands í beinni þýðingu er keppnislið í Formúlu 1 sem er eigu miljarðamæringsins Vijay Mallay, sem ætlar sér stóra hluti í íþróttinni og vinnur náið með Mercedes, sem sér liðinu fyrir vélum. Formúla 1 13. apríl 2010 13:55
Button segir McLaren taka framförum Jenson Button segir að liðinu hafi tekist að bæta McLaren bílinn fyrir næsta mót sem er í Kína um helgina. Hann flaug frá Malasíu í síðustu viku til Englands til að vinna að þróun bílsins í ökuhermi með tæknimönnum sínum. Formúla 1 13. apríl 2010 12:23
Kubica: Flugslysið þjóðarharmleikur Ein helst íþróttastjarna Pólverja, Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica vottaði í dag löndum sínum samúð sína vegna flugslyssins í Rússlandi á laugardaginn. Þá fórust 96 manns og meðal þeirra forseti Póllands, Lech Kaczynksi og kona hans, auk fjölda yfirmanna pólskrar stjórnsýslu og hermála. Formúla 1 12. apríl 2010 17:28
Eilífðarbann Briatore fellt úr gildi Alþjóðabílasambandið, FIA sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem eilífiðarbanni Flavio Briatore frá Formúlu 1 er breytt í bann til ársins 2013. FIA hefur samið við Briatore og Pat Symonds vegna svindmálsins svokallaða sem kom upp í Singapúr árið 2008. Formúla 1 12. apríl 2010 16:49
Kubica ánægður með árangurinn Robert Kubica hjá Renault hefur halað inn 30 stig í stigamóti ökumanna í tveimur mótum og hefur komið hvað mest á óvart í meistaramótinu í Formúlu 1. Renault er til alls líklegt og stefnir á að skáka Mercedes, sem talið er fjórða besta liðið þessa dagana. Formúla 1 12. apríl 2010 13:47
Sígandi lukka Schumachers Michael Schumacher hjá Mercedes vann á Sjanghæ brautinni í Kína, síðast þegar hann keppti þar árið 2006. Nú mætir hann þremur árum síðar, en er aðeins í tíunda sæti í stigamótinu, eftir heldur brösótt gengi vegna tæknilegra vandamála í tvígang Formúla 1 12. apríl 2010 10:57
Verðlaun lyftistöng fyrir Mercedes Framkvæmdarstjóri Mercedes, Bretinn Ross Brawn sem vann tvo titla með Brawn liðinu í fyrra segist ánægður með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg. Formúla 1 9. apríl 2010 13:00
Button hissa á hörðum stigaslag Breski meistarinn Jenson Button kveðst hissa á því hve hörð barátta er um meistaratitilinn í Formúlu 1 í ár. Hann telur að stöðugleiki munu ráða úrslitum, jafnvel þó vægi sigurs gefi mörg aukastig umfram annað sætið. Hann ræddi málin á vefsíðu sinni. Formúla 1 8. apríl 2010 10:30
Hamilton hress með eigin frammistöðu Bretinn Lewis Hamilton hefur farið mikinn í síðustu tveimur Formúlu 1 mótum, eftir að hafa ræst aftarlega á ráslínu í tvígang. Hann var ellefti á ráslínu í Ástralíu og tuttugasti í Malasíu, en vann sig upp listann með hörkuakstri í kappakstrinum á sunnudaginn. Varð sjött Formúla 1 7. apríl 2010 11:28
Barátta Sutil og Hamilton vakti athygli og Force India verðlaunað Þjóðverjinn Adrian Sutil hjá Force India náði fimmta sæti í Malasíu um helgina og barðist um sætið við vin sinn Lewis Hamilton hjá McLaren. Force India hefur vaxið ásmeginn, en í gær fékk Force India liðið að auki verðlaun fyrir athyglisverðasta atvikið í Formúlu 1 árið 2009. Formúla 1 7. apríl 2010 09:41
Kubica og Renault í toppslagnum Pólverjinn Robert Kubica og Renault er lið sem hefur komið hvað mest á óvart í Formúlu 1 mótunum. Kubica varð annar í Ástralíu og fjórði í Malasíu á sunnudaginn. Alain Permane einn af yfirmönnum liðsins er ánægður með gang mála, enda er Kubica aðeins 9 stigum frá Felipe Massa sem er efstur í stigamótinu. Formúla 1 6. apríl 2010 13:58
Laus ró hefti framför Schumachers Michael Schumacher reið ekki feitum hesti frá Formúlu 1 mótinu í Malasíu á sunnudaginn. Hann féll úr leik eftir að ró á afturdekki losnaði og er aðeins með 9 stig í stigamótinu, á meðan Felipe Massa sem er fremstur er með 39 og þéttur hópur manna með yfir 30 stig. Formúla 1 6. apríl 2010 12:10
Árangur Rosberg kemur ekki á óvart Nobert Haug hjá Mercedes segir að það komi sér ekkert á óvart að Nico Rosberg sé að standa sig vel sem liðsfélagi Michael Schumacher. Rosberg varð í þriðja sæti á eftir Red Bull mönnum í gær. Formúla 1 5. apríl 2010 13:36
Red Bull tilbúið í titilslaginn Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir lið sitt tilbúið í titilslag við McLaren og Ferrari, eftir sigur í mótinu á Sepang brautinni í gær. Formúla 1 5. apríl 2010 13:15
Vettel hamingjusamur með stigin Red Bull ökumaðurinn Sebastian Vettel vann sitt fyrsta Formúlu 1 mót í dag, eftir að hafa skákað liðsfélaganum í fyrstu beygju og þurfti Mark Webber því að sjá á eftir mögulegum sigri til Vettels. Formúla 1 4. apríl 2010 17:14
Sebastian Vettel vann malaíska kappaksturinn - tvöfalt hjá Red Bull Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull vann malaíska kappaksturinn í formúlu eitt í morgun en þetta var fyrsti sigur hans á tímabilinu. Þetta var góður dagur fyrir Red Bull liðið því félagi Vettel, Mark Webber, varð í 2. sæti eftir að hafa byrjað á ráspólnum en missti Vettel fram úr sér í byrjun. Formúla 1 4. apríl 2010 10:30
Webber ánægður með klókindi aðstoðarmanns Mark Webber og Ciaron tæknilegur aðstoðarmaður hans voru að vonum ánægðir með besta tíma í tímatökum í dag, en klókindi þeirra sameiginlega urðu til þess að Webber var einn manna á milligerð af regndekkjum í lokaumferðinni. Formúla 1 3. apríl 2010 17:32
Kappar í titilslagnum allir í vandræðum Tímatakan fyrir Malasíu kappaksturinn var í skrautlegra lagi í dag og heimsmeistarinn Jenson Button er meðal þeirra sem verður aftarlega á ráslínu, eftir brambolt í fyrstu umferð tímatökunnar. Hann er sautjándi, en keppinautar hans í titilslagnum eru enn aftar, eftir mistök í rigningarsamri tímatöku. "Við lásum þetta vitlaust, töldum að veðrinu myndi slota, en það reyndist rangt. Ég skautaði útaf brautinni og festist í malargryfju. Ég vona að ég hafi ekki skemmt neitt, þar sem ég var með vélina í gangi nokkuð lengi og vonaðist til að losna úr prísundunni", sagði Button. Hann er heppinn að því leyti að kapparnir sem eru honum ofar í stigamótinu eru í nítjánda, það er Fernando Alonso og Felipe Massa í tuttugasta og fyrsta sæti. Félagi Buttons, Hamilton er í tuttugasta sæti. Magnaðir kappar sem munu leggja allt í sölurnar í mótinu til að komast ofar. "Við fórum of seint af stað, á svipuðum tíma og önnur topplið, en vorum óheppnir. Ég er búinn að vera fljótastur alla helgina og ég verð bara að hrista þetta af mér og keyra af hjartans list", sagði Hamilton, sem vann sig hratt upp listann í síðasta móti eftir að hafa náð ellefta sæti á ráslínu. . Formúla 1 3. apríl 2010 11:34