Alonso mjög fljótur á fyrstu æfingu Ónefndur bifvélaverki úr herbúðum McLaren segir að Spánverjinn Fernando Alonso hafi litið mjög vel út á sinni fyrstu æfingu á nýjum bíl. Hinn tvöfaldi heimsmeistari yfirgaf herbúðir Renault í sumar og mun keppa fyrir McLaren á næsta tímabili. Formúla 1 22. desember 2006 19:15
Button er einn af þremur bestu ökumönnunum Nick Fry, liðsstjóri Honda í Formúlu 1, segir að breski ökuþórinn Jenson Button sé einn af þremur bestu ökumönnunum heimsins í dag ásamt þeim Kimi Raikkönen og heimsmeistaranum Fernando Alonso. Formúla 1 14. desember 2006 19:30
Vilja að Raikkönen skáli fyrir luktum dyrum Jean Todt, yfirmaður Ferrari liðsins í Formúlu 1, segist ekki hafa neinar áhyggjur af drykkjuvenjum finnska ökuþórsins Kimi Raikkönen sem gengur í raðir liðsins - svo fremi sem hann skáli fyrir luktum dyrum. Formúla 1 12. desember 2006 21:40
Renault ætlar ekki að sleppa Alonso Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segir ekki koma til greina að liðið leyfi heimsmeistaranum Fernando Alonso að losna undan samningi sínum við liðið fyrr en um leið og hann rennur út um áramótin. Litlir kærleikar eru milli forráðamanna Renault og McLaren, en Alonso gengur til liðs við McLaren um áramót. Formúla 1 12. desember 2006 21:30
McLaren vill fá Alonso strax Forráðamenn McLaren í Formúlu 1 ætla að fara þess á leit við kollega sína hjá Renault að þeir leysi heimsmeistarann Fernando Alonso undan samningi nokkrum vikum fyrr en áætlað var svo hann geti hafið prófanir strax með nýja liðinu sínu. Formúla 1 6. desember 2006 20:51
Raikkönen tekjuhæstur á næsta ári Þó Michael Schumacher hafi lagt stýrið á hilluna verður tekjuhæsti ökumaðurinn í Formúlu 1 áfram í röðum Ferrari-liðsins. Schumacher er sagður fá yfir 700 milljónir króna á næsta ári þó hann sé hættur að keppa, en arftaki hans hjá Ferrari, Kimi Raikkönen, er nú orðinn tekjuhæsti ökumaðurinn. Formúla 1 5. desember 2006 15:39
Hakkinen útilokar ekki frekari akstur Fyrrum heimsmeistarinn Mika Hakkinen frá Finnlandi útilokar ekki að hann muni aðstoða McLaren liðið frekar með tilraunaakstri en hann ók nokkra hringi fyrir liðið í vikunni. Formúla 1 1. desember 2006 18:00
Formúla 1 er ekkert barnaafmæli Michael Schumacher segist ekki hafa hlotið neina sérmeðferð þau ár sem hann var ökumaður númer eitt hjá Ferrari eins og margir hafa meinað, heldur segist hann hafa unnið fyrir því með því að vera einfaldlega fljótari en félagi sinn hverju sinni. Formúla 1 28. nóvember 2006 21:16
McLaren er að eyðileggja feril Hamilton David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma. Formúla 1 27. nóvember 2006 14:45
Lewis Hamilton ekur fyrir McLaren Hinn 21 árs gamli Lewis Hamilton verður liðsfélagi heimsmeistarans Fernando Alonso hjá keppnisliði McLaren á næsta ári. Þetta var tilkynnt í dag og er Bretinn fyrsti þeldökki ökumaðurinn sem keppir í Formúlu 1. Hamilton hefur verið hjá McLaren til reynslu frá árinu 1998. Formúla 1 24. nóvember 2006 13:36
Schumacher útilokar endurkomu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher gaf það út í viðtali við þýska fjölmiðla að það væri enginn möguleiki á því að hann settist undir stýri í Formúlu 1 á ný, því það væri einfaldlega ekki hægt eins og íþróttin hafi þróast síðustu ár. Formúla 1 23. nóvember 2006 16:04
Schumacher hefur ekki áhyggjur af framtíðinni Ævisaga Michael Schumacher kemur í bókahillur á næstu dögum og ber einfaldlega heitið "Schumacher". Sjöfaldur heimsmeistarinn segist ekki óttast aðgerðaleysi í framtíðinni þó hann sé hættur að keppa og flestir reikna með að hann setjist við hlið Jean Todt hjá Ferrari og sinni starfi ráðgjafa liðsins. Formúla 1 22. nóvember 2006 14:57
Montoya ók á vegg Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya, sem áður ók með McLaren í Formúlu 1, slapp ómeiddur á sunnudaginn þegar hann ók Nascar-bíl sínum á vegg í keppni í Miami. Jimmy Johnson tryggði sér meistaratitilinn með því að hafna í 9. sæti í keppninni og hafði betur í einvígi sínu við Matt Kenseth. Formúla 1 21. nóvember 2006 17:45
Mosley segir of mörg mót í Evrópu Max Mosley, forseti Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, segir að fjölga verði mótum í Formúlu 1 í allt að 20 ef keppni verði ekki hætt í fleiri mótum Evrópu. Mosley segir of mörg mót vera haldin í Evrópu og segir restina af heimsbyggðinni þurfa að fá stærri sneið af kökunni. Formúla 1 16. nóvember 2006 18:01
Mika Hakkinen ekur ekki fyrir McLaren Forráðamenn McLaren-liðsins í Formúlu 1 hafa neitað því að liðið sé að reyna að lokka fyrrum heimsmeistarann Mika Hakkinen aftur til keppni til að aka við hlið heimsmeistarans Fernando Alonso á næsta tímabili. Formúla 1 16. nóvember 2006 17:18
Klien ekur hjá Honda Austurríkismaðurinn Christian Klien verður vara- og æfingaökumaður Honda-liðsins í Formúlu 1 á næsta tímabili samkvæmt fréttatilkynningu frá liðinu í dag. Klien ók með Jaguar árið 2004 og ók fyrir Red Bull á síðasta ári. Hann verður varaökumaður fyrir þá Jenson Button og Rubens Barrichello hjá enska liðinu á næsta keppnistímabili. Klien leysir Anthony Davidson af hómi, en sá fékk sæti í liði Super Aguri í gær. Formúla 1 16. nóvember 2006 17:14
Davidson ekur fyrir Super Aguri Breski ökuþórinn Anthony Davidson verður ökumaður japanska Super Aguri liðsins í Formúlu 1 á næsta ári ásamt Takuma Sato. Davidson hefur verið æfingaökumaður fyrir BAR/Honda síðustu þrjú ár, en fær nú tækifæri til að reyna sig fyrir alvöru á meðal þeirra bestu. Hann á að baki tvær keppnir sem aðalökumaður með liði Minardi árið 2002 og eina með Honda á síðasta tímabili. Formúla 1 15. nóvember 2006 16:56
McLaren bílarnir verða í speglinum hjá mér á næsta ári Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen, sem nú er genginn í raðir Ferrari þar sem honum verður ætlað að fylla skarð Michael Schumacher, segir að samningur hans við liðið verði hugsanlega síðasti samningurinn sem hann skrifar undir á ferlinum. Formúla 1 14. nóvember 2006 17:30
Ecclestone veldur titringi á Silverstone Formúlumógúlnum Bernie Ecclestone er ekkert heilagt þegar kemur að því að auka veg og virðingu íþróttarinnar og nú hefur hann valdið mótshöldurum breska kappakstursins á Silverstone hugarangri með framtíðaráformum sínum. Formúla 1 9. nóvember 2006 20:34
Ferrari vill halda Schumacher í vinnu Forráðamenn Ferrari vilja ólmir halda í sjöfaldan heimsmeistara Michael Schumacher þó hann hafi lagt stýrið á hilluna á dögunum og er Schumacher nú með tilboð í höndunum um að gerast aðstoðarmaður Jean Todt liðsstjóra. Þjóðverjinn er sagður ætla að hugsa málið í nokkrar vikur áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið. Formúla 1 8. nóvember 2006 19:49
Alonso kveður Renault Heimsmeistarinn Fernando Alonso fór í kveðjutúr um verksmiðjur Renault á Englandi um helgina en hann gengur til liðs við McClaren fyrir næsta tímabil. Alonso kvaddi starfsmenn Renault með þökkum og óskaði þeim sigurs í öllum keppnum sem hann á annað borð sigraði ekki í sjálfur. Formúla 1 1. nóvember 2006 15:50
Sonur Schumacher efnilegur Þýska dagblaðið Express í Cologne segir að þó nú sé aðeins einn Schumacher að keppa í Formúlu 1, gæti það átt eftir að breytast í framtíðinni því sjö ára gamall sonur Michael Schumacher sé mikið efni. Formúla 1 25. október 2006 17:57
Massa ætlar ekki að gera Raikkönen neina greiða Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari hefur sent verðandi félaga sínum Kimi Raikkönen og öðrum keppinautum sínum aðvörun fyrir næsta keppnistímabil og ætlar sér stóra hluti. Formúla 1 24. október 2006 20:30
Nóg að vinna einn titil í viðbót Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist sáttur geta lagt stýrið á hilluna ef hann nær að vinna einn titil í viðbót og jafna þar með árangur Brasilíumannsins Ayrton Senna. Hinn 25 ára gamli Spánverji varð um helgina heimsmeistari annað árið í röð. Formúla 1 24. október 2006 17:45
Schumacher er besti ökumaður allra tíma Michael Schumacher er besti ökumaður í sögu Formúlu 1 að mati þeirra Niki Lauda og David Coulthard, en þýski ökuþórinn lagði stýrið á hilluna eftir Brasilíukappaksturinn á sunnudaginn. Formúla 1 24. október 2006 16:54
Schumacher sallarólegur Michael Schumacher segist halda til Brasilíukappakstursins með sama hugarfari og áður, þrátt fyrir að þar verði um að ræða síðustu keppni hans sem ökumanns í Formúlu 1. Hann segist fullkomlega sáttur við að leggja stýrið á hilluna eftir glæstan feril. Sport 19. október 2006 19:34
Ég hefði aldrei átt að fara til Williams Íslandsvinurinn Mark Webber í Formúlu 1 hefur viðurkennt að hann hafi gert stór mistök þegar hann ákvað að ganga til liðs við Williams liðið á sínum tíma, en hann ekur í síðasta sinn fyrir liðið í Brasilíu um helgina og gengur þá í raðir Red Bull. Sport 19. október 2006 17:45
Vöxtur Ferrari er helsta afrek Schumacher Fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sir Jackie Stewart, segir að sjö heimsmeistaratitlar séu ekki merkasta afrek Michael Schumacher í Formúlu 1 - heldur sú staðreynd að hann eigi stærstan þátt í að gera lið Ferrari að því stórveldi sem það er í dag. Formúla 1 18. október 2006 14:45
Renault á ekki von á bellibrögðum Ferrari Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segist ekki eiga von á því að lið Ferrari beiti bellibrögðum í síðustu keppni ársins í Brasilíu um næstu helgi, en þar þarf heimsmeistarinn Fernando Alonso aðeins eitt stig til að verja titilinn. Formúla 1 16. október 2006 23:00