SAS fær ríkisstyrkta lánalínu Sænsk og dönsk stjórnvöld hafa nú heimilað lánalínu til SAS flugfélagsins. Erlent 5. maí 2020 07:15
Icelandair tapaði 30,9 milljörðum Lausafjárstaða Icelandair Group nam 40 milljörðum króna, 281 milljón dollara, í lok mars að því er fram kemur í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri félagsins sem birt var í kvöld. Alls tapaði félagið 30,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Viðskipti innlent 4. maí 2020 18:50
Reyna að bjarga Air France og Norwegian Hluthafar í norska lággjaldaflugfélaginu Norwegian samþykktu í morgun björgunaraðgerðir, en félagið rambar á barmi gjaldþrots um þessar mundir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti sjö milljarða evra aðstoðarpakka fyrir Air France. Viðskipti erlent 4. maí 2020 12:00
Lægsta gengi hlutabréfa Icelandair frá upphafi Gengi á hlutabréfum í Icelandair í Kauphöll Íslands hefur hrapað um tæp þrjátíu prósent síðan viðskipti hófust í morgun. Viðskipti innlent 4. maí 2020 10:45
Samþykktu björgunaraðgerðir til handa Norwegian Framtíð norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian virðist hafa verið tryggð í morgun, í bili í það minnsta. Viðskipti erlent 4. maí 2020 08:30
Framtíð Norwegian ræðst í dag Framtíð norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian ræðst í dag en nú stendur yfir fundur hluthafa þar sem þeir taka ákvörðun um hvort reyna skuli björgunaraðgerðir. Viðskipti erlent 4. maí 2020 07:47
Icelandair og staða efnahagsmála í Víglínunni Erfið staða blasir við Icelandair en fyrirtækið þurfti að segja upp rúmlega tvö þúsund starfsmönnum um mánaðamótin í stærstu hópuppsögn lýðveldissögunnar. Innlent 3. maí 2020 16:45
Buffet losar sig við flugfélögin Fjárfestingafélag Warren Buffets, Berkshire Hathaway, hefur selt öll hlutabréf sín í fjórum stærstu flugfélögum Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 3. maí 2020 11:37
Stærsti hluti rekstrartaps vegna rýrnunar á viðskiptavild Rekstrartap Icelandair á fyrsta ársfjórðungi nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna. Stærsti hluti tapisins er niðurfærsla viðskiptavildar. Gert er ráð fyrir að lausafjárstaða fari undir lágmark á næstu vikum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir 1. ársfjórðung sem birtist í gær Viðskipti innlent 2. maí 2020 13:55
Tekjur Icelandair drógust saman um 16% á fyrsta ársfjórðungi Mikill samdráttur í eftirspurn eftir flugferðum vegna kórónuveirufaraldursins leiddi til þess að tekjur Icelandair drógust saman um 16% á fyrsta ársfjórðungi þess árs. Viðskipti innlent 1. maí 2020 19:50
Höfnuðu tillögu til bjargar Norwegian Kröfuhafar flugfélagsins Norwegian höfnuðu í dag að breyta lánum sínum í hlutafé. Óvissa er því um framtíð félagsins sem rambar á barmi gjaldþrots og glímir við bráðan lausafjárvanda. Viðskipti erlent 1. maí 2020 19:24
Telja ógerning að virða tveggja metra reglu á flugvöllum Forstjóri Heathrow-flugvallar telur „líkamlega ómögulegt“ að virða reglur um félagsforðun á flugvöllum. Flugvellir þurfi að grípa til skimana og farþegar þurfi að ganga með grímur þegar flugsamgöngur færast aftur í aukana. Erlent 1. maí 2020 19:00
Mjög bjartsýnn á að það takist að safna þrjátíu milljörðum í nýtt hlutafé Forstjóri Icelandair Group er bjartsýnn á að það takist að safna hátt í þrjátíu milljörðum í aukið hlutafé. Fyrirtækið verði í lykilhlutverki þegar kemur að því að reisa við efnahag landsins. Stefnt er að hlutafjárútboði um miðjan júní fyrir almenning og fagfjárfesta. Innlent 1. maí 2020 18:39
Leggur til að ríkið láni fyrir hlutabréfum í nýju dótturfélagi Þingmaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að ríkið komi félaginu til hjálpar vegna þeirra þrenginga sem kórónuveirufaraldurinn hafði í för með sér en eigendur verði að takast á við fortíðarvanda félagsins. Innlent 1. maí 2020 13:27
Boeing sagt skoða uppfærðar útgáfur af bæði 757 og 767 Boeing-verksmiðjurnar eru sagðar skoða þann möguleika að hefja framleiðslu nýrrar útgáfu af bæði Boeing 757 og 767-vélunum. Þetta eru þær flugvélartegundir sem Icelandair notar. Innlent 1. maí 2020 11:30
Líf Norwegian hangir á bláþræði Örlög Norwegian voru ákveðin í gær en hluthafar greiddu atkvæði í gærkvöldi um það hvort björgunarpakki sem flugfélagið lagði til yrði samþykktur. Hluthafar áttu fund klukkan 16:00 að staðartíma í gær til að kjósa um pakkann en það liggur fyrir að hlutafé félagsins verði uppurið um miðjan maí. Viðskipti erlent 1. maí 2020 08:49
Stefna að 29 milljörðum í hlutafjárútboði Markmið fyrirhugaðs hlutafjárútboðs Icelandair Group er að safna rúmlega 29 milljörðum króna í aukið hlutafé. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 21:35
Segja augljóst að ríkið þurfi að aðstoða Icelandair Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kveðst ekki hrifin af þeirri hugmynd að ríkið eignist hlut í Icelandair. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur að ríkið þurfi að stíga inn í með meira afgerandi hætti en stjórnvöld gáfu til kynna í dag. Innlent 30. apríl 2020 20:57
Útilokar enga möguleika um hvort ríkið eignist hlut í Icelandair Ef Icelandair tekst að safna því hlutafé sem félagið stefnir að þá eru stjórnvöld tilbúin að koma til aðstoðar með aðkomu að lánalínum með ríkisábyrgð. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 19:39
Ríkið tilbúið í samtal við Icelandair um lán eða ábyrgð á lánum Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga fjögurra ráðherra um að ríkið væri tilbúið að eiga samtal við Icelandair um veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til félagsins. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 18:13
Samfylkingin vill styðja Icelandair með hlutabréfakaupum Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að íslensk stjórnvöld fari sömu leið og önnur ríki sem eignast hafi hlut í flugfélögumá móti stuðningi sínum við þau. Fjármálaráðherra segir það eiga að vera síðasta úrræðið. Innlent 30. apríl 2020 12:41
131 missir vinnuna hjá Airport Associates 53 starfsmenn eru eftir hjá fyrirtækinu og segir forstjórinn að fyrirtækið þurfi áfram að afgreiða flugvélar þótt umferð sé mjög lítil. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 11:25
Krefst þess að Icelandair greiði rúman milljarð í skaðabætur Breska flugfélagið Oryx jet hefur krafist þess að Icelandair Group greiði félaginu um milljarð króna í skaðabætur vegna tjóns sem starfsmaður á Keflavíkurflugvelli olli á vél félagsins. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 08:21
Flugmaður sem missti vinnuna hjá Icelandair: „Að fá uppsögn núna á þessum tíma er mjög erfitt“ Sara Hlín Sigurðardóttir hefur starfað hjá Icelandair síðan árið 2005. Hún er meðal þeirra 431 flugmanna sem missti stöðu sína hjá félaginu í gær en alls hafa 96% flugmanna misst vinnuna þar. Innlent 29. apríl 2020 21:00
Segir Icelandair þurfa innspýtingu sem fyrst til þess að blæða ekki út Hlutafjárútboð flugfélagsins Icelandair er væntanlegt en staða félagsins er slæm vegna faraldurs kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 19:58
Traustar flugsamgöngur einn helsti drifkraftur þjóðarbússins Í nýlegri skýrslu IATA sem byggir á gögnum frá Oxford kemur fram að flugsamgöngur við landið séu einn helsti drifkraftur íslensk efnahagslífs. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja framtíð Icelandair. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 19:00
Andað léttara - en hvað með Icelandair Group? Tekjulítil og tekjulaus fyrirtæki í ferðaþjónustu anda léttara eftir að ríkisstjórnin kynnti björgunaraðgerðir sínar í gær. Skoðun 29. apríl 2020 14:35
„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“ Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagfjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 13:01
Veltir upp hugmyndinni um að ríkið eignist ráðandi hlut í Icelandair Þingmaður Samfylkingarinnar veltir því fyrir sér hvort rétt sé að þjóðin eignaðist ráðandi hlut í Icelandair samhliða ríkisaðstoðinni. Hann vitnar í fordæmi hjá þjóðum í Evrópu máli sínu til stuðnings. Innlent 29. apríl 2020 12:05
Þrjátíu starfsmönnum Fríhafnarinnar sagt upp Rúmlega hundrað starfsmönnum verður boðið áframhaldandi starf en í lægra starfshlutfalli. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 11:54