Arnór Atla tekur við liði TTH Holstebro Arnór Atlason mun taka við þjálfun danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro næsta sumar. Handbolti 30. júlí 2022 09:51
Íslendingaslagur í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar Evrópska handknattleikssambandið EHF birti í dag leikjaniðurröðun riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Nokkrar áhugaverðar viðureignir munu eiga sér stað strax í fyrstu umferð, þar á meðal Íslendingaslagur Lomza Industria Kielce og HBC Nantes. Handbolti 29. júlí 2022 16:31
Karabatic varar leikmenn við þýsku úrvalsdeildinni Nikola Karabatic, einn sigursælasti handboltamaður sögunnar, segist ekki geta mælt með því við nokkurn leikmann að leika í sterkustu deild heims, þýsku úrvalsdeildinni. Handbolti 28. júlí 2022 13:30
Breyta Austur-Evrópudeildinni og nú taka aðeins rússnesk og hvít-rússnesk lið þátt Austur-Evrópudeildin í handknattleik, SEHA Gazprom League, hefst á nýjan leik í haust, en þó með breyttu sniði. Í stað þess að sterkustu lið flestra Austur-Evrópuþjóða taki þátt munu aðeins lið frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi fá keppnisrétt. Handbolti 27. júlí 2022 16:31
KA-menn semja við tvo uppalda leikmenn Handboltadeild KA hefur framlengt samninga sína við þá Arnór Ísak Haddsson og Bruno Bernat. Samningarnir við þessa uppöldu KA-menn eru báðir til tveggja ára. Handbolti 26. júlí 2022 19:52
„Markmiðið er að komast í þýsku deildina eftir þessi tvö ár“ Handknattleiksmaðurinn Tryggvi Þórisson var í gær kynntur sem nýr leikmaður sænsku deildarmeistaranna Sävehof. Þessi tvítugi línumaður hefur seinustu ár verið lykilmaður í liði Selfyssinga í Olís-deild karla, en hann segist setja stefnuna á þýsku úrvalsdeildina á komandi árum. Handbolti 26. júlí 2022 08:00
Tryggvi Þórisson nýr leikmaður sænsku deildarmeistaranna Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson var í dag kynntur til leiks sem nýr leikmaður sænsku deildarmeistaranna í Sävehof. Handbolti 25. júlí 2022 13:01
Þorgils Jón hættir við að elta ástina og verður áfram hjá Íslandsmeisturum Vals Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur ákveðið að elta ekki ástina til Danmerkur og leika með Íslandsmeisturum Vals á komandi leiktíð. Frá þessu greindi félagið fyrr í dag. Handbolti 22. júlí 2022 20:31
Bergur Elí til liðs við Íslandsmeistara Vals Bergur Elí Rúnarsson er genginn í raðir Íslandsmeistara Vals. Hann semur til tveggja ára. Handbolti 22. júlí 2022 18:01
Evrópubikarkeppnin sendir Eyjamenn til Ísrael ÍBV mun leika gegn ísraelska liðinu Holon HC í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni karla í handbolta. Dregið var í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins, EHF, í morgun. Handbolti 19. júlí 2022 10:48
Valur fer til Slóvakíu, KA/Þór til Norður-Makedóníu og ÍBV til Grikklands Dregið var í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í morgun og voru þrjú íslensk lið í pottinum. Handbolti 19. júlí 2022 10:31
Íslenska landsliðið fer á HM eftir sigur gegn Ítölum Íslenska landsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann 11 marka stórsigur á Ítalíu í lokaleik sínum á Evrópumóti yngri landsliða fyrr í dag, 45-34. Handbolti 16. júlí 2022 23:30
ÍBV dregur umdeilda ákvörðun til baka Íþróttabandalag Vestmannaeyja mun falla frá þeirri ákvörðun frá 15. mars sl. um tekjuskiptingu milli knattspyrnu- og handknattleiksdeildar félagsins. Sport 16. júlí 2022 16:30
Krísa hjá ÍBV | Vinnubrögð leitt til vantrausts Aðalstjórn ÍBV þarf að fara að leysa hnúta sem myndast hafa innan félagsins vegna umdeildrar ákvörðunar sem hún tók vegna skiptingar fjármagns til íþróttadeilda innan ÍBV. Sport 16. júlí 2022 12:00
Ísland tapaði gegn Slóveníu í vítakeppni Íslenska U-20 ára landslið karla í handbolta tapaði fyrir Slóvenum á Evrópumóti 20 ára landsliða í handbolta rétt í þessu, 37-35. Leikurinn fór alla leið í vítakeppni. Handbolti 15. júlí 2022 17:45
EM í dag: „Við verðum að fá þessi þrjú stig, við verðum að klára þetta“ „Það eru allir orðnir aðeins stressaðir. Það er alveg ástæða fyrir því, af því við gerðum jafntefli í fyrsta leiknum þá vitum við hvað þessi leikur þýðir,“ sagði Helena Ólafsdóttir, sérlegur sérfræðingur Stöðvar 2 og Vísis, um leik Íslands og Ítalíu á EM. Fótbolti 14. júlí 2022 10:55
Ítalir tóku toppsætið og Ísland mætir Slóvenum Ítalir tryggðu sér toppsæti neðri milliriðils tvö, riðli okkar Íslendinga, með fimm marka sigri gegn Svartfellingum í dag á EM U20 ára landsliða í handbolta í dag, 31-26. Íslenska liðið hafnar því í öðru sæti riðilsins og mætir Slóvenum í leik sem ákvarðar hvort liðið leikur um 9. eða 11. sæti mótsins. Handbolti 13. júlí 2022 15:17
Íslensku strákarnir upp úr milliriðili eftir risasigur Íslenska U20 ára landsliðið í handbolta vann afar öruggan 13 marka sigur er liðið mætti Króatíu í seinni leik milliriðilsins á EM sem fram fer í Portúgal. Lokatölur 33-20, en sigurinn þýðir að íslenska liðið mun leika um 9.-12. sæti mótsins. Handbolti 13. júlí 2022 12:28
Tvö Íslendingalið fá sæti á HM félagsliða í handbolta Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Haukur Þrastarson munu allir taka þátt með liðum sínum í heimsmeistaramóti félagsliða í handbolta sem fram fer í október á þessu ári. Handbolti 13. júlí 2022 10:30
Berta Rut söðlar um til Danmerkur Handboltakonan Berta Rut Harðardóttir hefur samið við danska félagið Holstebro Håndbold um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Handbolti 12. júlí 2022 22:07
Dagur Sigurðsson á lausu Samkvæmt heimildum Vísis er handboltamaðurinn Dagur Sigurðsson nú orðinn einhleypur. Lífið 12. júlí 2022 20:27
ÍBV hefur leik í fyrstu umferð en KA og Haukar fara beint í aðra umferð ÍBV, Haukar og KA eru þau þrjú íslensku lið sem skráð eru til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handbolta. ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð, en Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð. Handbolti 12. júlí 2022 14:31
Valur fær sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar: „Hefði verið galið að sleppa þessu“ Valur hefur fengið úthlutað sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta og mun því ekki þurfa að leika í undankeppni um laust sæti í riðlakeppninni. Handbolti 12. júlí 2022 12:44
Íslensku strákarnir ekki í vandræðum með Svartfellinga Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann öruggan 13 marka sigur gegn Svartfellingum, 41-28, í fyrri leik liðsins í neðri milliriðli EM sem haldið er í Portúgal. Handbolti 12. júlí 2022 12:30
Íslendingar töpuðu fyrir Þjóðverjum með átta mörkum Íslenska U20 landslið karla í handbolta tapaði með átta mörkum gegn Þjóðverjum á Evrópumótinu í Portó fyrr í dag, 35-27. Handbolti 10. júlí 2022 22:00
Framarar fá liðsstyrk frá Selfossi Selfyssingurinn Alexander Már Egan mun leika með Fram á næsta tímabili í Olís-deildinni í handbolta. Alexander skrifar undir tveggja ára samning í Grafarholtinu. Handbolti 8. júlí 2022 21:45
Stór Belgíufundur á dagskrá hjá stelpunum í kastalanum í kvöld Fyrsti mótherji íslensku stelpnanna á EM í Englandi er lið Belgíu og nú eru bara tveir dagar í leikinn. Fótbolti 8. júlí 2022 16:16
Ítalía tryggði sér sigur gegn Íslandi með seinasta skoti leiksins Íslenska U20 ára landsliðið í handbolta þurfti að sætta sig við súrt eins marks tap er liðið mætti Ítalíu á EM U20 ára landsliða í Portúgal í dag. Lokatölur 27-26, en Ítalir skoruðu sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir að íslenska liðið hafði unnið upp sex marka forskot. Handbolti 8. júlí 2022 12:35
Holstebro staðfestir komu Halldórs Jóhanns Handknattleiksþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon hefur verið ráðinn til starfa sem aðstoðarþjálfari danska úrvalsdeildarfélaginu TTH Holstebro. Handbolti 8. júlí 2022 10:31
Þórir Ólafsson tekur við Selfyssingum Handknattleiksdeild Selfoss hefur samið við Þóri Ólafsson um að stýra karlaliði félagsins á komandi tímabili í Olís-deild karla. Handbolti 8. júlí 2022 07:05