„Efast um að þeir nái í tvö lið á æfingum“ Haukar hafa misst töluvert úr sínum leikmannahópi fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla, aðallega vegna meiðsla. Sérfræðingar hlaðvarpsins Handkastsins veltu upp stöðu liðsins og þá hvort Rúnar Sigtryggsson, nýr þjálfari liðsins, geti hresst upp á andrúmsloftið í félaginu. Handbolti 11. ágúst 2022 15:00
Línumannshallæri hjá Haukum - Aron Rafn ekki byrjaður að æfa Haukar eru í leit að línumanni fyrir átökin í Olís-deild karla í vetur. Tveir línumenn liðsins eru með slitið krossband. Handbolti 10. ágúst 2022 12:00
Haukar halda áfram að safna liði Haukar sem verða nýliðar í Subway deild karla í körfubolta á komandi keppnistímabili halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök. Körfubolti 3. ágúst 2022 23:04
Alexander frá KR í Hauka | Almar Orri áfram í Vesturbænum Alexander Knudsen hefur gengið til liðs við Hauka sem verða nýliðar í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. KR-ingar tilkynntu hins vegar í dag að félagið hefði samið við Almar Orra Atlason. Körfubolti 28. júlí 2022 22:34
ÍBV hefur leik í fyrstu umferð en KA og Haukar fara beint í aðra umferð ÍBV, Haukar og KA eru þau þrjú íslensku lið sem skráð eru til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handbolta. ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð, en Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð. Handbolti 12. júlí 2022 14:31
FH fór ansi illa með nágranna sína FH burstaði Hauka 6-0 í nágrannaslag liðanna í níundu umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Kaplakrikavelli í kvöld. Fótbolti 5. júlí 2022 21:37
Tindastóll lyfti sér upp í annað sæti | Fjölnir sótti sinn fyrsta sigur Lengjudeild kvenna í knattspyrnu bauð upp á tvo leiki í kvöld. Tindastóll lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með 3-0 sigri gegn Augnabliki og Fjölnir vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið lagði Hauka, 1-2, í botnslag deildarinnar. Fótbolti 23. júní 2022 22:17
Ragnheiður heim í Hauka Handknattleikskonan Ragnheiður Sveinsdóttir hefur samið við Hauka á nýjan leik eftir tveggja og hálfs árs dvöl hjá Val á Hlíðarenda. Hún varð bikarmeistari með Val á síðustu leiktíð en hefur nú ákveðið að snúa á heimaslóðir. Handbolti 23. júní 2022 19:45
Haukar missa tromp af hendi Sara Odden, markahæsti leikmaður handknattleiksliðs Hauka í vetur, yfirgefur Hafnarfjarðarfélagið í sumar en hún hefur samið við þýskt félag. Handbolti 30. maí 2022 16:00
Meistararnir skoruðu sjö að Ásvöllum Íslands- og bikarmeistarar Víkings verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta. Íslenski boltinn 26. maí 2022 21:15
Daniel Mortensen semur við Hauka Besti erlendi leikmaður Subway-deildarinnar á síðasta tímabili, Daniel Mortensen, er búinn að ná samkomulagi við nýliða Hauka um að spila með þeim í deildinni á næsta leiktímabili. Körfubolti 22. maí 2022 10:30
HK með fullt hús stiga | Augnablik og Haukar með sigra Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. Augnablik, Haukar og HK unnu öll sína leiki. HK er með fullt hús stiga á meðan Augnablik og Haukar voru að vinna sinn fyrsta sigur í sumar. Íslenski boltinn 20. maí 2022 22:30
Kristófer valinn sá besti i þriðja sinn en Dagný Lísa í fyrsta skiptið Kristófer Acox og Dagný Lísa Davíðsdóttir voru í dag valin bestu leikmenn ársins í Subway deildum karla og kvenna í körfubolta. Þorvaldur Orri Árnason hjá KR og Tinna Guðrún Alexandersdóttir hjá Haukum voru kosin bestu ungu leikmenn ársins. Körfubolti 20. maí 2022 12:47
Haukar og FH í 16-liða úrslit eftir stórsigra Haukar og FH tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna með sitthvorum stórsigrinum í kvöld. Fótbolti 17. maí 2022 21:46
„Erum að fara að keppa um titla“ Hilmar Smári Henningsson segir að hann sé ekki kominn aftur í Hauka til að vera í einhverri meðalmennsku. Hann segir að Hafnfirðingar ætli sér að berjast um titla. Körfubolti 13. maí 2022 11:00
Rúnar Sigtryggsson tekur við Haukum Rúnar Sigtryggsson er nýr þjálfari karlaliðs Hauka í handknattleik, en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag. Spilandi aðstoðarþjálfari með honum verður Tjörvi Þorgeirsson sem hefur verið leikstjórnandi liðsins um árabil. Handbolti 12. maí 2022 19:42
Haukarnir endurheimta tvo öfluga leikmenn í körfunni Haukar fá til baka tvo fyrrum leikmenn sína fyrir átökin í úrvalsdeildinni næsta vetur en leikmennirnir voru kynntir á blaðamannafundi í hádeginu. Körfubolti 12. maí 2022 12:31
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 34-27 | Eyjamenn í úrslit eftir öruggan sigur ÍBV mun leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sjö marka sigur gegn Haukum úti í Eyjum í kvöld, 34-27. Handbolti 10. maí 2022 21:47
Haukarnir hafa tapað fimm síðustu leikjum sínum í Eyjum í úrslitakeppni Haukar þurfa í kvöld að gera eitt sem þeim hefur ekki tekist undanfarin sex ár sem er að vinna leik í úrslitakeppni á móti ÍBV út í Vestmannaeyjum. Tap hjá Haukum í Eyjum í kvöld þýðir sumarfrí. Handbolti 10. maí 2022 14:30
Haukar slíta samstarfi sínu við Gunnar Gunnar Gunnarsson mun ekki halda áfram starfi sínu sem þjálfari kvennaliðs Hauka í handbolta. Handbolti 8. maí 2022 21:59
„Við þurfum að halda áfram á þessari braut“ Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var sáttur með sigurinn þegar að Haukar tóku á móti ÍBV í þriðja leik liðanna í 4-liða úrslitum. Fyrir leikinn var ÍBV komið 2-0 yfir og má með sanni segja að þetta hafi verið kærkominn sigur fyrir Hauka. Handbolti 7. maí 2022 21:03
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍBV 28-25 | Haukar héldu sér á lífi með sigri gegn ÍBV Haukar minnkuðu muninn í 2-1 í einvígi sínu við ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta með 28-25 sigri í leik liðanna að Ásvöllum í kvöld. Í hálfleik var ÍBV þremur mörkum yfir en það var fyrst og fremst frábær innkoma Magnúsar Gunnars Karlssonar í mark Hauka sem varð til þess að heimamenn snér taflinu sér í vil og strengdu líflínu í rimmunnni. Handbolti 7. maí 2022 19:38
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 27-23 | Eyjamenn einum sigri frá úrslitunum ÍBV er komið í 2-0 í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar karla eftir 27-23 sigur í öðrum leik liðanna í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri á Ásvöllum á laugardaginn. Handbolti 4. maí 2022 20:10
Aron eftir þriðja heilahristinginn: Þessi búinn að vera sérstaklega slæmur Handboltamarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson fékk heilahristing fyrir sex vikum, þegar bolta var skotið í höfuð hans á æfingu. Hann var rúmliggjandi í 3-4 vikur og glímir enn við eftirköst. Handbolti 4. maí 2022 14:30
Mun gjósa á nýjan leik í Eyjum? Annar leikur ÍBV og Hauka í úrslitakeppni Olís-deildar karla fer fram í kvöld og ef sagan hefur kennt okkur eitthvað þá verða læti í Eyjum í kvöld. Handbolti 4. maí 2022 08:00
Stefán Rafn fær að spila í Eyjum þrátt fyrir rautt í tveimur leikjum Haukamenn fengu góðar fréttir frá fundi aganefndar HSÍ í gær en þar kom í ljós að hornamaðurinn öflugi Stefán Rafn Sigurmannsson verður ekki í banni í leiknum mikilvæga á móti ÍBV í Eyjum á morgun. Handbolti 3. maí 2022 13:00
Aldís Ásta gerði eins og Guðjón Valur um árið: Magnað mark beint úr aukakasti Aldís Ásta Heimisdóttir tryggði KA/Þór sæti í undanúrslitum Olís deildar kvenna í handbolta með ótrúlegu marki beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn í öðrum leik KA/Þórs og Hauka. Handbolti 2. maí 2022 13:00
Ætlaði að henda stuðningsmönnum ÍBV úr húsi Gera þurfti hlé á leik Hauka og ÍBV á Ásvöllum í gær á meðan að formaður dómaranefndar HSÍ, Kristján Gaukur Kristjánsson, reyndi að hemja stuðningsmenn ÍBV. Það gekk lítið þar til að sáttasemjarinn Kári Kristján Kristjánsson kom til aðstoðar. Handbolti 2. maí 2022 12:01
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Njarðvík 51-65 | Njarðvíkingar eru Íslandsmeistarar Njarðvíkingar eru Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta eftir 14 stiga sigur gegn Haukum í oddaleik í kvöld, 51-65. Körfubolti 1. maí 2022 23:35
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍBV 30-35 | Eyjamenn frábærir í síðari hálfleik ÍBV byrjaði einvígið á móti Haukum af krafti en liðið vann fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta sannfærandi. Handbolti 1. maí 2022 20:14