HM 2027 í Brasilíu

HM 2027 í Brasilíu

HM kvenna í fótbolta fer fram í Brasilíu dagana 24. júlí til 25. júlí 2027.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“

Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni.

Fótbolti
Fréttamynd

Myndaveisla: Breið bros og dans­spor í Dalnum

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fagnaði vel á Laugardalsvelli í gærkvöld eftir 5-0 stórsigur gegn Króatíu og samtals 9-0 sigur í einvígi liðanna í HM-umspilinu. Ljósmyndarinn Anton Brink náði frábærum myndum af stemningunni.

Fótbolti
Fréttamynd

Glódís og Þor­steinn sátu fyrir svörum

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Króatíu í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 annað kvöld. Landsliðsþjálfarinn og fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Líf markmannsins að vera til­búinn alltaf“

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið heim til Íslands fyrir seinni leikinn gegn Króatíu í undankeppni fyrir HM sem haldið er í Brasilíu á næsta ári. Ísland er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn þar sem Ísland er með fjögurra marka forystu.

Fótbolti
Fréttamynd

Belgar á flugi undir stjórn Elísa­betar

Belgíska kvennalandsliðið í fótbolta, sem spilar undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, vann mikilvægan sigur gegn Póllandi í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM 2027 í Brasilíu í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á af­mælis­daginn

Það er stórt augnablik að fá að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna sína og voru tveir leikmenn í íslenska kvennalandsliðinu að upplifa það í dag. Hópurinn er staddur í Króatíu þar sem liðið mætir heimakonum á föstudaginn í undankeppni heimsmeistaramótsins sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Af­mælis­barnið dregur sig úr lands­liðinu

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur neyðst til að gera breytingar á landsliðshópnum fyrir mikilvæga leiki í umspili fyrir HM í Brasilíu í einvígi gegn Króatíu. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í góðu tækifæri til að komast á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Liðið mætir Króatíu í undanúrslitum undankeppninnar um farmiða á heimsmeistaramótið og verða spilaðir leikir heima og heiman.

Fótbolti
Fréttamynd

Ensk landsliðskona vill snið­ganga HM

Enska landsliðsstjarnan Lucy Bronze býst við að evrópskir leikmenn muni styðja sniðgöngu á mótum FIFA ef þörf krefur. Þetta segir hinn 34 ára gamli leikmaður Chelsea fyrir vináttuleik gegn Auckland á Nýja-Sjálandi.

Fótbolti
Fréttamynd

Konurnar fyrsta fórnar­lambið eftir út­spil Infantino

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið en stelpurnar okkar eru í dauðafæri að breyta því í vetur. Nú virðist hins vegar vera komið upp mál sem gæti leitt til þess að sá draumur verði ekki að veruleika.

Fótbolti