Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. Erlent 22. september 2022 07:23
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. Erlent 21. september 2022 20:27
Einhugur um NATO Í nýrri yfirlýsingu sinni fullyrti Vladimír Pútín að Rússlandi stafaði ógn af Vesturlöndum sem heild. Yfirlýsingunni fylgdi herkvaðning varaliðs Rússlands og ítrekun á ógninni um notkun kjarnavopna. Það er í raun fátt sem er betur til þess fallið að sameina Vesturlönd en yfirlýsing af þessu tagi. Engu að síður ríkir ekki einhugur meðal Vesturlandabúa um stríðið í Úkraínu. Skoðun 21. september 2022 14:30
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. Erlent 21. september 2022 12:05
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. Erlent 21. september 2022 10:26
Shevchenko afhenti Lewandowski úkraínskt fyrirliðaband fyrir HM Robert Lewandowski, framherji og fyrirliði pólska karlalandsliðsins í fótbolta, mun bera fyrirliðaband í úkraínsku fánalitunum á komandi heimsmeistaramóti sem fer fram í Katar. Úkraínsk goðsögn afhenti honum bandið. Fótbolti 21. september 2022 10:01
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. Erlent 21. september 2022 08:33
Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði Vesturlönd hafa sýnt að þau vilja ekki frið milli Rússlands og Úkraínu, sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu til rússnesku þjóðarinnar í morgun. Hann sagði Vesturlönd vilja tortíma Rússlandi og sakaði þau um að nota Úkraínumenn sem fallbyssufóður. Erlent 21. september 2022 06:20
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. Erlent 20. september 2022 22:30
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. Erlent 20. september 2022 14:54
Úkraínustríðið ekki veikt undirstöður varnarsamningsins við Bandaríkin Ef hið ólíklega gerðist og stefndi í átök milli NATO og Rússlands yrði öryggi Íslands komið undir fælingarstefnu NATO og Bandaríkjanna, varnarsamningi Íslands við Bandaríkin og framkvæmd varnaráætlunar Bandaríkjahers fyrir landið. Úkraínustríðið hefur ekki haft neinar afleiðingar sem veikja þessar undirstöður íslenskra öryggis- og varnarmála. Innherji 20. september 2022 10:19
Rússar vilja að landsliðsþjálfari Úkraínu fái lífstíðarbann frá fótbolta Rússar hafa sent erindi til UEFA, evrópska knattspyrnusambandsins, þar sem þeir hvetja sambandið til að setja Oleksandr Petrakov, landsliðsþjálfara Úkraínu, í bann frá knattspyrnu. Fótbolti 19. september 2022 23:00
Saka Rússa um að skjóta flugskeyti að kjarnorkuveri Rússneskt flugskeyti er sagt hafa lent aðeins nokkur hundruð metra frá ofni Pivdennoukrainsk-kjarnorkuversins í sunnanverðri Úkraínu í dag. Kjarnaofnarnir hafi ekki skaddast en skemmdir hafi orðið á öðrum byggingum og búnaði. Erlent 19. september 2022 11:15
Rússar leyfi sér siðleysi í stríðsátökum Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir bakslags vera að vænta í gagnárásinni og að Rússar komist langt á siðleysi sem þeir leyfa sér í stríðsátökum. Erlent 17. september 2022 11:44
Gagnárásin hafi engin áhrif á Rússa Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Pútín tjáði sig í fyrsta sinn um stöðuna í gær. Erlent 17. september 2022 09:59
Pólitísk upplausn í aðsigi í Evrópu: „Þetta lítur út fyrir að vera einhvers konar leikrit“ Sigríður Á. Andersen fyrrverandi ráðherra segir að evrópskir ráðamenn hafi átt að vera betur undirbúnir fyrir afleiðingarnar sem refsiaðgerðir gegn Rússum hefðu á hagkerfin heima fyrir. Sumar refsiaðgerðirnar séu að reynast refsiaðgerðir ríkja gegn eigin borgurum. Erlent 17. september 2022 09:15
Selenskí kallar Rússa morðingja vegna fjöldagrafa Flestir þeirra sem grafnir hafa verið upp í fjöldagröf sem fannst nærri Izyum í Úkraínu eru óbreyttir borgarar. Minnst eitt líkanna var með bundnar hendur en Úkraínumenn hafa fundið vísbendingar um að íbúar bæjarins og aðrir hafi verið pyntaðir. Erlent 16. september 2022 15:33
Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum. Erlent 16. september 2022 14:27
„Við erum með heimskustu ríkisstjórn í Evrópu“ Þingmaður þýska vinstriflokksins, Die Linke, fór hörðum orðum um þýsku ríkisstjórnina í harla umdeildri ræðu sem hún flutti í þýska þinginu í vikunni. Þar fjallaði hún um nauðsyn þess að halda áfram viðskiptum við Rússa þrátt fyrir stríðið - og málflutningur hennar hefur síðan leitt til þess að fjöldi flokksmanna hefur sagt sig úr flokki hennar. Erlent 16. september 2022 08:55
Fundu fjöldagröf með fjögur hundruð líkum í Izyum Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins. Erlent 16. september 2022 07:50
Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Xi Jinping, forseta Kína, fyrir yfirvegaða afstöðu til innrásarinnar í Úkraínu. Pútín sagðist þó hafa skilning á spurningum og áhyggjum Xi af ástandinu í Úkraínu. Þá hét Pútín stuðningi Rússa við Kína varðandi meint yfirráð þeirra yfir Taívan. Erlent 15. september 2022 15:18
„Kokkur Pútíns“ býður föngum frelsi fyrir herþjónustu í Úkraínu Myndband af rússneska auðjöfrinum Yevgeny Prigozhin bjóða föngum náðun fyrir að ganga til liðs við málaliðahópinn sem kallast Wagner Group var birt á netinu í gær. Þar má sjá auðjöfurinn segja föngunum að gangi þeir til liðs við Wagner muni þeir aldrei fara aftur í fangelsi. Annað hvort muni þeir deyja í Úkraínu eða vera lausir allra mála eftir sex mánuði. Erlent 15. september 2022 11:49
Pútín sjái ekki bjálkann í eigin auga Kanslari Þýskalands segir Pútín neita að átta sig á því að hann hafi gert mistök með innrásinni í Úkraínu. Hann sjái ekki bjálkann í eigin auga og hafi ekki breytt afstöðu sinni að neinu leyti. Erlent 14. september 2022 23:35
Vill bregðast við væntanlegri orkukreppu með umfangsmiklum aðgerðum Stríðið í Úkraínu og loftslagsbreytingar hafa haft gríðarleg áhrif í Evrópu og stefnir allt í orkukreppu í vetur. Forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins hefur lagt til ýmsar aðgerðir til að bregðast við, þær stærstu muni skila meðlimaríkjum um 140 milljörðum evra. Erlent 14. september 2022 19:30
Selenskí í Izyum og Rússar sagðir í basli í suðri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Izyum í Kharkív-hérað í morgun en hersveitir Úkraínu ráku rússneska hermenn þaðan á dögunum í vel heppnaðri gagnsókn. Forsetinn sagði eyðilegginguna mikla en hann hefði séð sambærilega eyðileggingu áður í öðrum bæjum og þorpum sem búið væri að frelsa frá Rússum. Erlent 14. september 2022 14:41
Xi og Pútín funda um innrásina í Úkraínu Xi Jinping, forseti Kína, hóf í dag fyrsta ferðalag sitt frá því Covid-faraldurinn hófst, með því að fara til Kasakstan. Hann mun svo funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og öðrum leiðtogum Mið-Asíu á komandi dögum í Úsbekistan. Erlent 14. september 2022 10:59
Segja Pútín hafa hafnað málamiðlun og stefnt ótrauðan á innlimun Reuters segist hafa heimildir fyrir því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi hafnað samningi sem aðalsendifullrúi hans í málefnum Úkraínu hafði náð við stjórnvöld í Kænugarði um að Úkraínumenn gengju ekki í Atlantshafsbandalagið. Erlent 14. september 2022 07:46
Skipulögðu sóknina með aðstoð Bandaríkjamanna og Breta Undirbúningur fyrir gagnárásir Úkraínumanna í Kherson-héraði í suðri og Kharkív-héraði í norðri hefur tekið nokkra mánuði og hafa bæði Bandaríkjamenn og Bretar aðstoðað við hann. Fyrstu ætlanir Úkraínumanna þóttu ekki líklegar til árangurs en þær gerðu ráð fyrir því að eingöngu yrði sótt fram í Kherson. Erlent 13. september 2022 15:00
Venjumst ekki stríðsrekstri Það voru mikilvægar raddir sem heyrðust á leiðtogafundinum Norðurlandaráðs í Hörpu í síðustu viku. Vinir okkar frá Eystrasaltsþinginu funduðu með okkur og góðum gestum frá Belarús, Rússlandi og Úkraínu, umræðuefnið að sjálfsögðu stríði í Úkraínu og stöðug brot Pútíns stjórnar á mannréttindum. Skoðun 13. september 2022 13:31
Vilja fleiri vopn eftir vel heppnaða gagnsókn Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir því að Vesturlönd útvegi ríkinu fleiri og betri vopnakerfi í kjölfar vel heppnaðrar gagnsóknar þeirra gegn Rússum í norðurhluta landsins. Forsetinn gagnrýnir Rússa fyrir að bregðast við ósigrum á vígvöllum með því að gera árásir á óbreytta borgara. Erlent 13. september 2022 10:32