Írland

Írland

Höfuðborg: Dublin. Mannfjöldi: 5,3 milljónir (2025). Flatarmál: 70.273 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rukka ekki lengur for­eldra fyrir að sitja við hlið barna sinna

Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Íri í haldi ICE óttast um líf sitt

Hinn írski Seamus Culleton hefur setið í fangageymslu Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í nærri því fimm mánuði og segist óttast um líf sitt. Hann var handtekinn fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en níutíu daga vegabréfsáritun sem hann fékk árið 2009 heimilaði honum en hann er giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi í Bandaríkjunum og rekur verktakafyrirtæki í Boston.

Erlent
Fréttamynd

Hylmdu yfir með „Steikar­hnífnum“ í Írska lýðveldis­hernum

Breska leyniþjónustan hélt hlífiskildi yfir flugumanni sínum innan Írska lýðveldishersins þrátt fyrir að hann væri eftirlýstur fyrir morð. Hún hélt áfram að þagga mál útsendarar sem hafði dulnefnið „Steikarhnífurinn“ niður löngu eftir að mesta ófriðnum á Norður-Írlandi lauk.

Erlent
Fréttamynd

Ó­þekktir drónar stefndu á vél Selenskí við Ír­land

Fjórir óþekktir herdrónar flugu inn á bannsvæði og í átt að flugvél Volodýmýrs Selenskí, forseta Úkraínu, við Írland á mánudag. Flugvél forsetans var á undan áætlun en drónarnir eru sagðir hafa skorið feril hennar á þeim stað þar sem hún hefði átt að vera þegar þeir flugu þar.

Erlent
Fréttamynd

Missti seinni fótinn sex árum eftir þann fyrri

Aflima þurfti fótlegg írsku leikkonunnar Ruth Codd sex árum eftir að fyrri fótleggur hennar var aflimaður. Notkun hækja eftir fyrri aflimunina leiddi til þess að taka þurfti allar tærnar af eftirstandandi fætinum. Codd ákvað því í samráði við lækna að taka fótinn alveg af.

Lífið
Fréttamynd

Heimir hylltur og beðinn af­sökunar á Twitter

Eins og hefur komið fram þá var sigur Íra á Ungverjum magnþrunginn og dramatískur en sigurmark þeirra í 2-3 útisigri á Ungverjum kom á 96. mínútu. Heimir Hallgrímsson var hylltur á samfélagsmiðlinum X áður Twitter.

Fótbolti
Fréttamynd

Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Ís­landi

Lohanny Santos, farþegi í flugi Delta á leið frá Dublin til New York, á miðvikudag, lýsir því á samfélagsmiðlum að hafa óttast um líf sitt þegar annar hreyfill vélarinnar hætti að virka á flugi þeirra yfir Atlantshafinu. Ákveðið var að nauðlenda á Íslandi. Fjallað var um það í gær að hættustigi hafi verið lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna nauðlendingarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Búast við því að Bretar viður­kenni sjálf­stæði Palestínu í dag

Búist er við því að Bretland viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag í kjölfar þess að Ísrael hefur ekki mætt þeim skilyrðum sem þeim voru sett í júlí um vopnahlé og frið á Gasa. Í frétt á vef BBC segir að búist sé við því að Keir Starmer, forsætisráðherra landsins, tilkynni um það síðar í dag.

Erlent
Fréttamynd

Dylan leggur blátt símabann á tón­leika­gesti

Bandaríski tónlistarmaðurinn Bob Dylan hefur tilkynnt um strangt símabann á tónleikaröð sinni á Bretlandseyjum og Írlandi. Tónleikagestum verður gert að koma símunum sínum fyrir í læsanlegum pyngjum sem ekki verður hægt að opna fyrr en að tónleikum loknum.

Tónlist