Tíu bestu liðin (1984-2023): Breiðablik 2022 | Háflug á vængjum Hrafnsins Breiðablik missti af Íslandsmeistaratitlinum 2021 á grátlegan hátt en kom öflugt til baka og vann titilinn með talsverðum yfirburðum árið eftir. Blikar, með Ísak Snæ Þorvaldsson í feiknaformi, byrjuðu tímabilið af gríðarlegum krafti, unnu fyrstu átta leiki sína og voru alltaf fremstir í kapphlaupinu um titilinn. Þá gerðu þeir sig gildandi í Evrópukeppni. Íslenski boltinn 30. janúar 2024 10:01
Barbára til Breiðabliks Fótboltakonan Barbára Sól Gísladóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Selfossi. Hún skrifaði undir tveggja ára samning við Kópavogsfélagið. Íslenski boltinn 29. janúar 2024 14:01
Lengjubikar karla og kvenna í beinni á Stöð 2 Sport Knattspyrnuáhugafólk getur farið að hita upp fyrir fótboltasumarið með því að sjá liðin spila leiki í beinni á Stöð 2 Sport í stærsta mótinu á undirbúningstímabilinu. Íslenski boltinn 29. janúar 2024 11:47
Tíu bestu liðin (1984-2023): Fylgt úr hlaði Vísir fékk valinkunna sérfræðinga til að velja bestu liðin í íslenskum karlafótbolta undanfarin fjörutíu ár. Umfjöllun um tíu bestu liðin birtist á næstu dögum. Íslenski boltinn 29. janúar 2024 10:01
Ívar Ingimars hættir í stjórn KSÍ og gagnrýnir ÍTF: Vill klippa á naflastrenginn Ívar Ingimarsson, stjórnarmaður KSÍ og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur ákveðið að bjóða sig ekki áfram til stjórnunarstarfa fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Fram undan er ársþing KSÍ og Ívar hefur verið í stjórn sambandsins undanfarin tvö ár. Íslenski boltinn 29. janúar 2024 07:31
„Alveg sama hvað öðru fólki finnst um það“ Ólöf Sigríður Kristinsdóttir samdi nýverið við Breiðablik og spilar með liðinu í Bestu deild kvenna næsta sumar. Hún nýtur lífsins í Harvard-háskóla og spilar þar með skólaliði fram á vor. Íslenski boltinn 28. janúar 2024 08:01
Íris Dögg úr Laugardalnum yfir á Hlíðarenda Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur samið við Íslandsmeistara Vals út komandi leiktíð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Hún kemur frá Þrótti Reykjavík þar sem hún hefur leikið frá 2021. Íslenski boltinn 25. janúar 2024 23:01
Reykjavíkurslag Fram og Vals frestað vegna veðurs Leik Fram og Vals í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu var frestað vegna þess veðurs sem nú gengur um höfuðborgarsvæðið. Íslenski boltinn 25. janúar 2024 19:01
Fór í Val til að vinna titla: „Æfa á atvinnumannatíma“ Jónatan Ingi Jónsson er kominn heim úr atvinnumennsku og samdi við Valsmenn. Hann er uppalinn hjá FH og spilaði fjögur tímabil með meistaraflokki FH áður en hann fór út í atvinnumennsku eftir 2021 tímabilið. Íslenski boltinn 25. janúar 2024 09:01
Þorvaldur Örlygsson vill fá dómarakennslu inn í skólakerfið Þorvaldur Örlygsson er í framboði til formanns Knattspyrnusambands Íslands á komandi ársþingi og hann vill leita nýrra og ferskra leiða til að bæta dómgæslu í íslenskri knattspyrnu. Íslenski boltinn 24. janúar 2024 09:02
„Þakklætið og brosið frá þeim gefur til baka“ Lið knattspyrnuakademíunnar Ascent Soccer frá Malaví kom, sá og sigraði á alþjóðlega mótinu Rey Cup hér í Reykjavík síðastliðið sumar. Þar með í för voru leikmennirnir Levison Mnyenyembe og Precious Kapunda sem hafa nú fengið tækifæri til þess að upplifa draum sinn og spreyta sig á reynslu hjá liði Aftureldingar næstu mánuðina með hjálp góðra styrktaraðila Íslenski boltinn 22. janúar 2024 20:01
Birnir Snær til Svíþjóðar Sænska knattspyrnufélagið Halmstad hefur tilkynnt að Birnir Snær Ingason, fráfarandi leikmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, sé nýjasti leikmaður félagsins. Ekki kemur fram hversu langan samning Birnir Snær gerir við félagið. Fótbolti 22. janúar 2024 17:54
Víkingur vann 7-0 sigur á KR Kvennalið Víkings hélt sigurgöngu sinni áfram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu með sjö marka stórsigri á KR í gær. Íslenski boltinn 22. janúar 2024 15:31
Pétur tekur slaginn með Vestra í efstu deild Pétur Bjarnason er snúinn aftur á heimaslóðir og mun spila með uppeldisfélagi sínu Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar. Þetta staðfesti félagið fyrr í dag. Íslenski boltinn 20. janúar 2024 20:31
Víkingur afgreiddi Fjölni auðveldlega Íslandsmeistarar Víkings afgreiddu Fjölnismenn heldur auðveldlega í Reykjavíkurmótinu í kvöld er liðin mættust. Fótbolti 18. janúar 2024 21:50
Grindvíkingar fá Laugardalsvöll að öllum líkindum Knattspyrnulið Grindavíkur mun að öllum líkindum spila heimaleiki sína á Laugardalsvelli í sumar en endanlega ákvörðun verður tekin í næstu viku. Íslenski boltinn 18. janúar 2024 20:55
47 árum yngri en meðdómarinn sinn Það er aldrei of snemma að byrja að dæma og aldrei of seint að hætta að dæma. Knattspyrnusamband Íslands benti á tvö góð dæmi um þetta. Íslenski boltinn 18. janúar 2024 15:30
Breyttar fjölskylduaðstæður vógu þyngst Aron Bjarnason sneri nýverið heim úr atvinnumennsku og samdi við Breiðablik fyrir komandi leiktíð í Bestu deild karla. Það var smá bras að losa sig frá liði hans erlendis en hann var ákveðinn í heimför. Íslenski boltinn 17. janúar 2024 19:47
KR-ingar skoruðu fimm mörk hjá Val og byrja vel undir stjórn Ryder KR vann 5-2 sigur á Val í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í Egilshöllinni í dag en leikurinn fór fram á mjög óvenjulegum tíma eða klukkan 11.00 á virkum degi. Íslenski boltinn 17. janúar 2024 13:00
Rosenörn semur við Stjörnuna Markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur samið við Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Samningurinn gildir út tímabilið 2026. Íslenski boltinn 16. janúar 2024 19:31
Fram heldur áfram að smíða nýja vörn Fram hefur staðfest komu Þorra Stefáns Þorbjörnssonar á láni frá Lyngby í Danmörku. Hann mun leika með Frömmurum í Bestu deildinni í sumar. Íslenski boltinn 16. janúar 2024 14:01
Ólöf Sigríður skrifar undir samning við Breiðablik Landsliðsframherjinn Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna. Íslenski boltinn 16. janúar 2024 09:50
Murielle frá Króknum í Grafarholt Markadrottningin Murielle Tiernan hefur ákveðið færa sig um set og mun spila með Fram í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu næsta sumar frekar en í Bestu deildinni með Tindastóli. Frá þessu greindi Fram á samfélagsmiðlum sínum í dag. Íslenski boltinn 15. janúar 2024 23:31
Alex Þór í KR Fótboltamaðurinn Alex Þór Hauksson hefur samið við KR. Hann hefur undanfarin þrjú ár leikið með Öster í Svíþjóð. Íslenski boltinn 15. janúar 2024 11:16
Ída Marín í Hafnarfjörðinn Ída Marín Hermannsdóttir hefur samið við FH og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Samningur hennar er til tveggja ára. Íslenski boltinn 14. janúar 2024 16:47
Aron Bjarnason í Breiðablik Aron Bjarnason er kominn aftur heim til Íslands og hefur samið við Breiðablik í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 12. janúar 2024 13:19
Valur sækir varnarmanninn Jakob Franz Jakob Franz Pálsson hefur gengið frá fjögurra ára samning við Val í Bestu deild karla. Hann kemur til félagsins frá Venezia á Ítalíu en eyddi síðasta tímabili á láni hjá KR. Íslenski boltinn 12. janúar 2024 11:39
„Vildi koma heim meðan ég hef eitthvað fram að bjóða“ „Mér líst bara mjög vel á þetta. Hrikalega spenntur að vera kominn heim, var að hitta strákana í dag, geggjaður hópur sem tók vel á móti mér og er bara spenntur að byrja,“ sagði Aron Sigurðarson, nýjasti leikmaður KR í viðtali við Stöð 2 og Vísi eftir að vistaskiptin voru staðfest. Íslenski boltinn 11. janúar 2024 23:30
Segja Aron vera að ganga í raðir Breiðabliks Vængmaðurinn Aron Bjarnason mun að öllum líkindum spila með Breiðabliki í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann lék á sínum tíma 69 leiki fyrir félagið. Íslenski boltinn 11. janúar 2024 18:00
Hanna frá Val í FH FH-ingar hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna en Hanna Kallmaier hefur gert tveggja ára samning við Fimleikafélagið. Íslenski boltinn 11. janúar 2024 15:30