KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttamynd

„Frá­bært að vera komnar á sigurbraut aftur“

„Mér líður frábærlega. Það er frábært að vera komnar á sigurbraut aftur eftir erfiðan síðasta leik, 3-2 tap, svo það er flott að ná í 2-1 sigur í dag.“, sagði Erin Flurey, leikmaður Þór/KA, eftir 2-1 sigur gegn ÍBV þar sem hún skoraði fyrsta mark leiksins og átti góðan leik.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér fannst þetta ekki víti“

Hans Viktor Guðmundsson, varnarmaður KA, var svekktur með vítið sem hann fékk dæmt á sig og leiddi til jöfnunarmarks ÍBV í 2-2 jafntefli liðanna í 15. umferð Bestu deildar karla. Hann segir dómarann hins vegar hafa hárrétt fyrir sér í rauða spjaldinu sem ÍBV fékk.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast?

Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“

„Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld. 

Sport
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því

Íslandsmeistarar og topplið Víkings tók á mót KA á Víkingsvelli í kvöld þegar 13. umferð Bestu deild karla hóf göngu sína.Víkingar komust yfir snemma leiks en KA snéri leiknum sér í hag og fóru inn í hálfleik með 1-2 forystu. Víkingar þurtu svo að hafa sig alla við að snúa leiknum aftur en það tókst að lokum og þeir fóru með öflugan 3-2 sigur af hólmi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skilur eftir minningar al­veg eins og leikurinn

Tvö þúsund strákar í fimmta flokki í fótbolta munu keppa á N1-mótinu á Akureyri um helgina. Mótið hófst í dag og bærinn er fullur af fólki. Framkvæmdastjóri íþróttafélagsins KA segir mótið fara mjög vel af stað og minningarnar verði ekki síður til utan vallar.

Fótbolti
Fréttamynd

Aðal­steinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnu­semi dugnaður og sam­vinna skilaði sigrinum“

„Ég er mjög ánægður með það að vinna fyrsta leikinn í dag en umfram allt er ég ánægður með frammistöðuna sem stelpurnar lögðu í leikinn. Vinnusemi, dugnaður samvinna og bara það skilaði sigrinum í dag og við erum virkilega ánægð með það að vinna loksins“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir fyrsta sigur liðsins í Bestu deild kvenna sem kom gegn Þrótti nú í kvöld og var augljóslega létt.

Fótbolti
Fréttamynd

Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús

Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri í níundu umferð deildarinnar. Heimakonur skoruðu tvö góð mörk í fyrri hálfleik og sigldu öruggum 2-0 sigri heim og lyfta sér þar með úr botnsætinu og upp fyrir Fram í töflunni.

Íslenski boltinn