Tómas hættir hjá Símanum og Höddi tekur við enska boltanum Tómas Þór Þórðarson, sem hefur síðustu fimm ár stýrt umfjöllun Símans sport um enska boltann, er hættur. Hörður Magnússon tekur við ritstjórnartaumunum, en þetta er síðasta tímabilið í enska boltanum sem Síminn sýnir í bili. Viðskipti innlent 5. september 2024 12:00
Endurkaup á eigin bréfum – skiptir tilgangurinn máli? Þegar rökin að baki reglum um bann við innherjasvikum og markaðsmisnotkun eru höfð í huga fæst ekki séð að það skipti nokkru máli hvort endurkaup skráðra félaga hafi einn sérstakan tilgang umfram annan, segir lögfræðingur hjá LEX. Umræðan 5. september 2024 09:02
Stærsti hluthafinn studdi Gildi og lagðist gegn kaupréttarkerfi Heima Þótt stjórn Heima hafi gert verulegar breytingar á upphaflegum tillögum sínum að kaupréttaáætlun til handa lykilstjórnendum eftir að hafa mætt andstöðu frá Gildi þá lagðist stærsti hluthafi fasteignafélagsins, Brú lífeyrissjóður, gegn innleiðingu á slíkum kaupréttum en laut í lægra haldi fyrir meirihluta hluthafa. Lífeyrissjóðurinn fylkti sér jafnframt að baki Gildi í andstöðu við tillögu stjórnar Haga að kaupréttarkerfi sem var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta á hluthafafundi í liðinni viku. Innherji 4. september 2024 15:51
Verðmat Festar hækkaði um átta milljarða vegna Lyfju Verðmat Festar hækkaði um tólf prósent, einkum vegna hærri rekstraráætlunar í kjölfar þess að Lyfja varð hluti af samstæðunni. Tilkoma Lyfju í samstæðu Festar hefur „vitanlega nokkur áhrif á rekstraráætlun“ samstæðunnar, bendir greinandi á. Tekjur og framlegð Festar var umfram væntingar á öðrum ársfjórðungi, að hans sögn. Innherji 2. september 2024 19:20
Gengi Play tók dýfu Gengi flugfélagsins Play lækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í dag, um 5,52 prósent. Gengið hefur nú lækkað um rúm 78,08 prósent það sem af er ári. Viðskipti innlent 2. september 2024 16:55
Vilborg til Iðunnar frá Sýn Vilborg Helga Harðardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Iðunnar fræðsluseturs. Viðskipti innlent 2. september 2024 15:41
Tvö þúsund ferðamenn án sambands: „Við erum mjög stressaðir yfir þessu“ Rafmagnsleysi í Mýrdal olli því að símasambandslaust var á stóru svæði í Mýrdal, þar á meðal í Reynisfjöru og Reynishverfi, fram eftir degi. Landeigandi á svæðinu segir óboðlegt að símasamband detti út á svæðinu svo lengi, sér í lagi í ljósi þess fjölda ferðamanna sem sækir Reynisfjöru. Innlent 2. september 2024 15:36
Fyrrverandi forstjóri Reita stýrir Ísey Guðjón Auðunsson, fyrrverandi forstjóri Reita fasteignafélags, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍSEY útflutnings ehf (ÍSEY). Viðskipti innlent 2. september 2024 11:44
Íslenski markaðurinn metinn nokkuð lægra en sá bandaríski Hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði fyrir hlutafélög í Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hefur hækkað lítillega síðustu mánuði. Íslenski markaðurinn er metinn nokkuð lægra en bandaríski markaðurinn hvað varðar þetta langtímahlutfall. Umræðan 2. september 2024 08:30
Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. Innlent 1. september 2024 23:00
Afkoman hjá Akta við núllið eftir sveiflukennt ár á mörkuðum Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið rétt fyrir ofan núllið á fyrri árshelmingi en þóknanatekjurnar jukust samt nokkuð á tímabili sem einkenndist af miklum sveiflum á eignamörkuðum innanlands. Einn af helstu flaggskipssjóðum Akta, sem hefur veðjað stórt á Alvotech, sá eignir sínar halda áfram að skreppa saman samtímis útflæði – þó minna en áður – og verulega neikvæðri ávöxtun. Innherji 1. september 2024 12:28
Gagnrýnir umbun stjórnenda ef ávöxtun „nær að skríða“ yfir áhættulausa vexti Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta. Innherji 31. ágúst 2024 15:42
Þegar við tölum um íslenskt flugævintýri þá er það í dag „Miðað við stærð þjóðar þá erum við með mjög marga flugmenn á Íslandi og gríðarlega mikinn flugrekstur,“ segir Sigrún Bender, flugstjóri hjá Icelandair, í viðtali í þáttaröðinni Flugþjóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld 2. september. Innlent 31. ágúst 2024 12:44
Tapaði 1,2 milljörðum á fyrri hluta ársins Rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir (EBITDA) var 735 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt samstæðuárshlutareikningi félagsins en var 1.290 milljónir á sama tímabili á síðasta ári. Tap varð af rekstrinum sem nam 1.201 milljónum króna. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 14:19
Innáskipting hjá Kviku Sigurgeir Guðlaugsson, sem hefur verið varamaður í stjórn Kviku banka tekur sæti Guðmundar Arnar Þórðarsonar og kemur nýr inn í stjórn bankans. Guðmundur Örn tók á dögunum við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 13:05
Rekstrarhagnaður Sýnar nam 169 milljónum Rekstrarhagnaður Sýnar hf. nam 169 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2024, samanborið við 1.002 milljónir á sama tímabili í fyrra. Tap eftir skatta á tímabilinu nam 339 milljónum samanborið við 483 milljón króna hagnað í fyrra. Árangurinn er í fullu samræmi við útgefna afkomuspá, að því er kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 28. ágúst 2024 19:52
Hagnaður Stefnis minnkar um nærri fjórðung en eignir í stýringu tóku stökk Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, dótturfélag Arion banka, sá hagnað sinn dragast nokkuð saman á fyrri árshelmingi samtímis tekjutapi við áframhaldandi krefjandi aðstæður á innlendum mörkuðum. Virkar eignir í stýringu Stefnis jukust hins vegar á sama tíma verulega, einkum eftir að félagið kláraði fjármögnun á tugmilljarða framtakssjóð vegna kaupanna á leigufélaginu Heimstaden. Innherji 28. ágúst 2024 17:29
Hagnaður Skaga fyrstu sex mánuði ársins 273 milljónir Kraftmikill viðsnúningur er í tryggingastarfsemi en á sama tíma litar krefjandi markaðsumhverfi afkomu Skaga, sem er samstæða Vátryggingafélags Íslands, áður VÍS. Hagnaður samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins eftir skatta voru 273 milljónir króna sem er töluvert lægri en á sama tíma í fyrra þegar hagnaður var rúmur milljarður. Þetta kemur fram í sex mánaða uppgjöri samstæðunnar fyrir árið í ár. Viðskipti innlent 28. ágúst 2024 16:47
Krefur Eimskip og Samskip um þrjá milljarða króna í skaðabætur Alcoa Fjaðaál hefur stefnt Eimskip og Samskip og krafið félögin um tæpan 3,1 milljarð króna í skaðabætur vegna tjóns félagsins vegna meints samráðs skipafélaganna á árunum 2008 til 2013. Mat Eimskips er að ekkert tilefni sé til málsóknar Alcoa Fjarðaáls þar sem skilyrði skaðbótaskyldu séu ekki uppfyllt. Viðskipti innlent 28. ágúst 2024 14:24
Lítil virðisrýrnun hjá bönkum er áhyggjuefni en ekki „eitthvað til að gleðjast yfir“ Óeðlilega lítil virðisrýrnun í bankakerfinu síðastliðna tólf mánuði er „frekar áhyggjuefni en eitthvað til að gleðjast yfir“. Áhrif stýrivaxta koma síðast fram í vanskilum og því sé þessi þróun til marks um ójafnvægi og ofþenslu í hagkerfinu. „Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans síðastliðin þrjú ár hafi ekki verið að bíta nægjanlega fast,“ segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 28. ágúst 2024 13:47
Play fjölgar áfangastöðum í Portúgal Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarflugi til borgarinnar Faro í Portúgal. Fyrsta flugið verður laugardaginn 12. apríl, í tæka tíð fyrir páska á næsta ári. Flogið verður tvisvar í viku á laugardögum og miðvikudögum til 29. október. Viðskipti innlent 28. ágúst 2024 10:09
Sparkar út frumlyfinu og mælir með hliðstæðu Alvotech við Humira Einn af stóru innkaupaaðilunum á bandarískum lyfjamarkaði hefur ákveðið að fjarlægja framleiðenda frumlyfsins Humira, eitt mesta selda lyf þar í landi um árabil, af endurgreiðslulistum sínum og þess í stað mæla með þremur líftæknilyfjahliðstæðum, meðal annars frá Alvotech. Hlutdeild AbbVie á Humira-markaðnum hefur farið minnkandi eftir að annar innkauparisi tók sömu ákvörðun í upphafi ársins. Innherji 27. ágúst 2024 19:43
Ólíklegt að stórir hluthafar samþykki yfirtökutilboð í Eik Stjórnandi lífeyrissjóðs telur ólíklegt að hluthafar Eikar muni almennt samþykkja fyrirhugað yfirtökutilboð í fasteignafélagið miðað við núverandi tilboðsgengi. Mögulega takist Langasjó að eignast yfir 34 prósenta hlut og við það verði fjárfestingafélagið að samþykkja allar stærri ákvarðanir á vettvangi hluthafa Eikar til að þær fái brautargengi. Verðbréfamiðlari spyr hvers vegna hluthafar ættu að samþykkja tilboð á svipuðu gengi sem Langisjór hafi í reynd hafnað fyrir skömmu. Innherji 27. ágúst 2024 11:56
Barátta hafnarverkamanna á Íslandi: Átök við Eimskip Undanfarin þrjú ár hafa hafnarverkamenn á Íslandi staðið í harðri baráttu við Eimskip, eitt af stærstu flutningafyrirtækjum landsins, og Eflingu. Baráttan hefur snúist um réttindi og kjör verkamanna, þar sem Eimskip hefur enn ekki samið við Félag hafnarverkamanna á Íslandi. Þessi átök hafa verið flókin og margþætt, þar sem ýmsir aðilar hafa komið að málum. Skoðun 27. ágúst 2024 11:02
Gildistími tilboðsins framlengdur John Bean Technologies Corporation hefur tilkynnt að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi í dag samþykkt beiðni félagsins um framlengingu á gildistíma valfrjáls tilboðs til hluthafa Marel hf. í allt útgefið og útistandandi hlutafé í félaginu. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 15:03
Kveður Marel og verður aðstoðarforstjóri Kapp Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri tæknifyrirtækisins Kapp. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 12:57
Reitir munu fjárfesta fyrir hærri fjárhæðir í ár en vænst var Búast má við að Reitir fjárfesti fyrir hærri fjárhæðir en gert var ráð fyrir í ár. Forstjóri fasteignafélagsins benti á að þegar hafi verið fjárfest fyrir níu milljarða af þeim ellefu sem miðað var við. „Það hefur gengið vel að fá góðar eignir,“ að hans sögn, og haldið verði áfram á sömu braut. Innherji 23. ágúst 2024 17:09
Langisjór er með tólf milljarða stöðu í Eik og mun gera yfirtökutilboð Langisjór, sem meðal annars á leigufélagið Ölmu, Mata og sælgætisgerðina Freyju, mun gera yfirtökutilboð í fasteignafélagið Eik eftir að hafa eignast ríflega 30 prósenta hlut í fasteignafélaginu. Við það myndast yfirtökuskylda lögum samkvæmt. Markaðsvirði hlutarins er um tólf milljaðar króna. Innherji 23. ágúst 2024 15:24
Mata-systkinin gera yfirtökutilboð í fasteignafélagið Eik Langisjór ehf. keypti í dag sex milljónir hluta í Eik fasteignafélagi hf. og 442 milljónir hlutabréfa í félaginu af Brimgörðum ehf. Fer Langisjór og samstarfsaðilar nú með 1.029.061.237 hluta í Eik sem nemur um 30,06 prósent atkvæðisréttar í fasteignafélaginu. Viðskipti innlent 23. ágúst 2024 14:38
Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Lágvöruverðsverslunin Prís hefur hrist upp í markaðnum og mælist oftast með lægra vöruverð en Bónus. Af um 280 vörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði í dag voru um 200 ódýrari í Prís. Neytendur 22. ágúst 2024 17:09