Klukkan tifar og enn langt í land Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“ Erlent 19.4.2026 10:44
Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. Erlent 17.4.2026 07:49
Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Ísraelsmenn og Líbana hafa komist að samkomulagi um tíu daga vopnahlé sem á að taka gildi klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 16.4.2026 15:58
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. Erlent 8. apríl 2026 13:57
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28. mars 2026 23:41
Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa. Erlent 24. mars 2026 12:05
Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei. Erlent 18. mars 2026 06:42
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. Erlent 17. mars 2026 06:52
Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Erlent 15. mars 2026 00:22
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Erlent 14. mars 2026 20:41
Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa. Erlent 13. mars 2026 20:39
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Erlent 13. mars 2026 06:49
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Erlent 3. mars 2026 09:35
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Erlent 3. mars 2026 06:31
Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana. Erlent 2. mars 2026 07:51
Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Erlent 2. mars 2026 06:27
Felldu háttsettan Hezbollah-liða í sprengjuárás á Beirút Fimm létust í loftárás Ísraels á líbönsku höfuðborgina Beirút í dag, þar á meðal starfsmannastjóri hernaðarvægs Hezbollah. Tveimur dögum áður hafði forseti Líbanon lýst því yfir að hann væri tilbúinn í samningsviðræður við Ísraelsmenn. Nú íhuga Hezbollah-liðar að svara árásinni. Erlent 23. nóvember 2025 23:35
Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Veitingastaðurinn Sumac blæs til líbanskrar veislu föstudaginn og laugardaginn 26.-27. september en þá mæta tveir gestakokkar í hús, þær Joyce og Gab sem báðar eru frá Líbanon. Lífið samstarf 22. september 2025 09:02
Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Háttsettur íranskur embættismaður fundaði á miðvikudag með ráðamönnum í Líbanon vegna áætlana um að afvopna Hezbollah-samtökin, sem hafa notið stuðnings frá klerkastjórninni í Íran frá því þau voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 14. ágúst 2025 07:02
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent