Samþykkja að koma á vopnahléi Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júní 2026 06:43 Frá vinstri er Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, Dan Holler og Michael Needham, yfirmenn í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, og Michel Issa, sendiherra Bandaríkjanna í Líbanon. Vísir/AP Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon.
Samkomulagið kemur í kjölfar þess að stjórnvöld í Ísrael hótuðu að bæta í árásir sínar í Líbanon sem hafa haft talsverð áhrif á friðarviðræður Bandaríkjamanna og Írana. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar tóku þátt í gerð samkomulags Ísrael og Líbanon en fundur fulltrúa landanna fór fram í bandaríska utanríkisráðuneytinu og stóð yfir í nærri níu klukkustundir. Í samkomulaginu kemur fram að samningaviðræðum um vopnahlé á milli Ísrael og Líbanon verði framhaldið þann 22. júní. Ísrael stjórnar nú landssvæði í suðurhluta Líbanon og samkvæmt samkomulaginu verða allir liðsmenn Hezbollah fjarlægðir af því svæði. Þá segir orðrétt í samkomulaginu að „löndin hafni öllum tilraunum annarra landa eða hópa til að halda framtíð Líbanon í gíslingu“. Hezbollah eru samtök sjíamúslíma í Líbanon sem njóta fjárhagslegs stuðnings frá Íran. Þau eru af mörgum vestrænum ríkjum skilgreind sem hryðjuverkasamtök en Ísraelar réðu leiðtoga samtakanna, Nassan Nasrallah, af dögum í september árið 2024. Fyrr í þessari viku höfðu löndin samið um staðbundið vopnahlé sem kom í veg fyrir árásir Ísraela á höfuðborg Líbanon, Beirút. Reynt hefur á það samkomulag í vikunni og meðal annars voru níu drepnir í árásum Ísraelhers í suðurhluta Líbanon í gær og þá skaut Hezbollah flugskeytum inn í Ísrael.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Líbanon Ísrael Bandaríkin Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira