Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Smári Jökull Jónsson skrifar 2. júní 2026 06:37 Hér má sjá rústir sjúkrahúss í borginni Tyre í Líbanon. Vísir/AP Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur rætt bæði við fulltrúa Ísraels og Hezbollah og segir samkomulag vera til staðar um hlé á árásum en Íranir vöruðu Ísraela við því í gær að aðgerðir Ísraela í Líbanon væru ógn gagnvart vopnahléi Bandaríkjamanna og Írana. Líbanir segja Hezbollah hafa samþykkt tillögu um að gera hlé á árásum á Ísrael en tillagan fæli sömuleiðis í sér að Ísraelar myndu ekki gera árásir á höfuðborgina Beirút. Forsætisráðherra Ísraela Benjamin Netanyahu staðfesti samkomulagið en sagði að árásir yrðu gerðar á Beirút hætti Hezbollah ekki árásum sínum á borgir og borgara í Ísrael og sagði að ísraelski herinn myndi halda störfum áfram í suðurhluta Líbanon. Árásir héldu áfram Árásir héldu engu að síður áfram í nótt. Hezbollah gerði þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri tveimur þorpum í norðurhluta Ísrael, meðal annars með drónum. Ísraelar segjast hafa stöðvar tvær langdrægar flaugar sem skotið var á loft frá Líbanon. Engar fréttir eru af mannfalli í árásunum. Þá segja ríkismiðlar í Líbanon að Ísraelar hafi gert árásir á nokkur svæði í suðurhluta landsins og meðal annars á bæinn Debbine. Donald Trump forseti Bandaríkjanna skrifaði á sinn eigin samskiptamiðil Truth Social að viðræður um vopnahlé við Írani héldu áfram á miklum hraða og að hann hefði rætt bæði við Netanyahu og leiðtoga Hezbollah. Bandaríkjamenn hafa reynt að skilja atburðina í Líbanon frá friðarviðræðunum en Íranir hafa lengi veitt Hezbollah aðstoð, bæði með hergögnum og fjármunum.
Íran Bandaríkin Ísrael Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira