

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Sá verðmætasti þurfti að fara undir hnífinn
Joel Embiid, miðherji Philadelphia 76ers og verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á síðustu leiktíð, verður frá keppni í dágóða stund eftir að fara undir hnífinn vegna meiðsla á hné.

Íslendingar vöktu athygli í Boston og afneituðu LeBron James
Í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld verður meðal annars kíkt á innslag frá Boston þar sem tveir íslenskir körfuboltaáhugamenn vöktu mikla athygli.

Doc Rivers þjálfar stjörnuliðið gegn vilja sínum
NBA-deildin hefur tilkynnt um þjálfara stjörnuliða austur- og vesturstrandar en stjörnuleikurinn fer fram þann 18. febrúar næstkomandi. Doc Rivers mun þjálfa lið austurstrandarinnar og hefur sú ákvörun vakið töluverða athygli.

Dagskráin í dag: Stórleikur í Seríu A
Íþróttirnar halda áfram göngu sinni á þessum frábæra sunnudegi og ættu því allir að finna eitthvað fyrir sig á sportrásum Stöðvar 2.

Russell Westbrook kominn með 25 þúsund stig
Hinn síungi Russell Westbrook, leikmaður LA Clippers, er ekki dauður úr öllum æðum enn en hann komst í nótt í 25 þúsund stig skoruð samtals í NBA. Þá hefur hann ekki látið sitt eftir liggja í öðrum tölfræðiþáttum í gegnum tíðina.

Þrír nýliðar í Stjörnuleik NBA deildarinnar í ár
Þrír NBA leikmenn taka þátt í sínum fyrsta Stjörnuleik í ár en í nótt kom í ljós hvaða leikmenn bætast í hóp byrjunarliðsleikmennina sem voru kosnir þangað inn af áhugafólki um deildina.

Tjáir sig um „lúserakúltúrinn“ hjá liði Jordans: „Í DNA-inu að tapa“
Bandaríski körfuboltamaðurinn Terry Rozier, sem er nýgenginn í raðir Miami Heat frá Charlotte Hornets, segir mikinn mun á hugsunarhættinum hjá liðunum tveimur.

Fyrsta einvígi karls og konu í þriggja stiga keppni Stjörnuleiks NBA
Stórskytturnar Stephen Curry og Sabrina Ionescu munu mætast í sögulegri þriggja stiga keppni á Stjörnuhelgi NBA deildarinnar í körfubolta.

Allir falir hjá Golden State nema Curry
Golden State Warriors hefur ekki staðið undir væntingum í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. Félagið er tilbúið að gera róttækar breytingar á leikmannahópi sínum.

Rajon Rondo handtekinn
Rajon Rondo, fyrrum leikmaður í NBA deildinni í körfubolta, var handtekinn í Indiana um helgina.

Lögmál leiksins: LaMelo Ball í einskismannslandi í Charlotte
Hinn sívinsæli liður „Nei eða Já“ var á sínum stað í síðasta þætti af Lögmál leiksins. Að þessu sinni voru LaMelo Ball, Joel Embiid og Donovan Mitchell til umræðu sem og hvort liðið sé betra: Philadelphia 76ers eða Milwaukee Bucks.

Lögmál leiksins: „Þetta gigg öskrar á Doc Rivers“
Strákarnir í Lögmáli leiksins eru ekki á einu máli um hvort Doc Rivers sé rétti maðurinn til að þjálfa Giannis Antetokounmpo og félaga í Milwaukee Bucks.

Fjórða besta stigasöfnun í sögu NBA
Luka Doncic skoraði 73 stig í 148-143 sigri Dallas Mavericks gegn Atlanta Hawks. Aðeins tveir leikmenn í sögunni hafa skorað meira í einum leik en Luka gerði í gær.

Fer ekki á ÓL vegna hegðunar sinnar
Draymond Green, leikmaður Golden State Warriors, spilar ekki með bandaríska körfuboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í París í sumar vegna hegðunar sinnar á tímabilinu.

Ráku óvænt þjálfarann og ráða Doc Rivers
Milwaukee Bucks rak í gær óvænt þjálfara sinn Adrian Griffin og félagið leitaði til reynsluboltans Doc Rivers um að taka við liðinu.

Nei eða já: Jokic er orðinn besti evrópski leikmaður allra tíma
Eins og svo oft áður fóru strákarnir í Lögmáli leiksins um víðan völl í liðnum Nei eða já í síðasta þætti.

Skoraði sjötíu stig og bætti met Chamberlains
Joel Embiid gerði sér lítið fyrir og skoraði sjötíu stig þegar Philadelphia 76ers sigraði San Antonio Spurs, 133-123, í NBA-deildinni í nótt.

Lögmál leiksins: Koma stundum svo furðulegar fréttir úr NBA-deildinni
„Það koma stundum svo furðulegar fréttir úr NBA-deildinni. Þegar maður vaknar á mánudegi býst maður ekki við að lesa þetta í vikunni,“ segir Kjartan Atli Kjartansson í Lögmál leiksins í kvöld. Þátturinn er á sínum stað klukkan 20.00 á Stöð 2 Sport 2.

Giannis og Lillard í stuði í sigri Milwaukee
Milwaukee Bucks lenti óvænt í nokkrum vandræðum með slakasta lið NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt, Detroit Pistons. Damian Lillard og Giannis Antetokounmpo sáu þó til þess að liðið vann sex stiga sigur, 135-141.

Mbappé varar fótboltann við því að elta NBA deildina
Franski knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé segir að evrópskur fótbolti sé að nálgast álagið í NBA deildinni í körfubolta með því að vera sífellt að bæta við leikjum.

Óvænt andlát aðstoðarþjálfara Warriors
Serbinn Dejan Milojević, fyrrum atvinnumaður í körfubolta og aðstoðarþjálfari Golden State Warriors, lést af völdum hjartaáfalls í kvöldverð fyrir leik gegn Utah Jazz.

Miami Heat lætur gera styttu af Wade fyrir utan höllina
Dwyane Wade fær af sér bronsstyttu fyrir utan höllina hjá Miami Heat. Hann er af flestum talinn vera besti leikmaðurinn í sögu félagsins og er sá fyrsti hjá því sem fær styttu.

Endurkomusigur Warriors og þreföld tvenna Jokic
Klay Thompson og Steph Curry voru mennirnir á bakvið endurkomu Golden State Warriors gegn Chicago Bulls í nótt. Nikola Jokic skellti í þrefalda tvennu í heimasigri Denver Nuggets.

Dagskráin í dag: Albert og félagar mæta Torino
Íþróttirnar halda áfram að rúlla á þessum ljómandi fína laugardegi og það ættu allir að finna eitthvað fyrir sig á sportrásum Stöðvar 2.

„Samkvæmt óupplýstu, fáfróðu og groddalegu fólki þá geta konur ekki unnið“
Nikki Spoelstra, fyrrverandi eiginkona Erik Spoelstra – þjálfara Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, hefur tjáð sig um orðróma þess efnis að hún hafi „klúðrað“ skilnaðinum en Erik fékk nýjan samning hjá Heat upp á mörg hundruð milljónir að skilnaðurinn var staðfestur.

Hitti hálfleiksskotinu og græddi milljónir
Einn heppinn aðdáandi á leik Los Angeles Lakers gegn Toronto Raptors var í hálfleik valinn til þess að skjóta í körfuna frá miðjum vellinum. Hann gerði sér lítið fyrir, hitti skotinu og labbaði út hundrað þúsund dollurum ríkari, andvirði þess er um 13,7 milljónir íslenskra króna.

Spoelstra fær nýjan átta ára risasamning
Erik Spoelstra, þjálfari Miami, hefur komist að samkomulagi við NBA körfuboltafélagið um að framlengja samning sinn um átta ár.

Biðlar til Draymonds Green að láta dómarana í friði
Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, hefur beðið Draymond Green vinsamlegast um að láta dómara NBA-deildarinnar í friði það sem eftir lifir tímabilsins.

Nýkominn til baka eftir langt bann en tímabilinu er nú lokið
Aðeins þremur vikum eftir að hann sneri aftur eftir langt bann er tímabilinu lokið hjá Ja Morant, skærustu stjörnu Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta.

Lögmál leiksins: „Hann er ekki framtíðin“
„Nei eða Já“ var á sínum stað í Lögmál leiksins í gærkvöld. Þar var farið yfir stöðu Jonathan Kuminga hjá Golden State Warriors, hvort Memphis Grizzlies komist í umspil, ekki lengur hægt að bera saman tölfræði fortíðar og nútíðar og að lokum Kevin Durant.