Chicago - Detroit í beinni á miðnætti Sjötti leikur Chicago Bulls og Detroit Pistons í undanúrslitum Austurdeildar í NBA verður sýndur beint á NBA sjónvarpsrásinni á miðnætti í kvöld. Detroit komst í 3-0 í einvíginu en Chicago getur jafnað metin í 3-3 með sigri á heimavelli í kvöld. Annað kvöld verður svo NBA sannkölluð NBA veisla í sjónvarpinu. Körfubolti 17. maí 2007 18:22
Naumur sigur hjá San Antonio San Antonio er komið í vænlega 3-2 stöðu í einvíginu við Phoenix í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir nauman 88-85 sigur á útivelli í nótt. Phoenix liðið var án tveggja lykilmanna sem voru í leikbanni, en hafði undirtökin fram á lokamínúturnar. Cleveland klúðraði á sama tíma möguleika sínum á að komast í úrslit Austurdeildar með því að steinliggja 83-72 á heimavelli fyrir New Jersey. Körfubolti 17. maí 2007 14:22
Cleveland getur klárað dæmið í kvöld Cleveland Cavaliers getur tryggt sér sæti í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA með sigri á New Jersey Nets í fimmta leik liðanna sem sýndur verður beint á NBA TV á miðnætti í nótt. Síðar í nótt eigast við Phoenix og San Antonio þar sem staðan er jöfn 2-2 og þrír leikmenn taka út leikbann. Körfubolti 16. maí 2007 22:26
Utah í úrslit Vesturdeildar Utah Jazz tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir 100-87 sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Salt Lake City. Chicago heldur enn lífi í einvíginu við Detroit eftir nokkuð óvæntan stórsigur á útivelli í nótt 108-92. Körfubolti 16. maí 2007 14:03
NBA: Þrír leikmenn í bann Handalögmál leikmanna Phoenix og San Antonio í leik liðanna í úrslitakeppni NBA í fyrrakvöld höfðu alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir liðin. Robert Horry, leikmaður San Antonio var í kvöld dæmdur í tveggja leikja bann og þeir Amare Stoudemire og Boris Diaw hjá Phoenix í eins leiks bann. Körfubolti 15. maí 2007 23:41
Davis og Richardson mega spila í kvöld Þeir Baron Davis og Jason RIchardsson mega báðir leika með liði Golden State Warriors gegn Utah Jazz í úrslitakeppni NBA í kvöld þrátt fyrir að hafa gerst sekir um agabrot í síðasta leik. Fimmti leikur liðanna verður í beinni á NBA TV klukkan hálf þrjú í nótt. Körfubolti 15. maí 2007 19:14
Nowitzki tók við verðlaunum sínum í dag Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas var í dag formlega sæmdur verðlaunum fyrir að vera valinn verðmætasti leikmaður deildarkeppninnar í NBA, en fréttir þess efnis höfðu löngu lekið í fjölmiðla. Nowitzki er fyrsti Evrópubúinn sem hlýtur þennan heiður, en verður leikmanninum líklega lítil huggun eftir að lið hans var niðurlægt í úrslitakeppninni á dögunum. Körfubolti 15. maí 2007 18:31
Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Phoenix Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA í nótt. Phoenix vann góðan útisigur á San Antonio 104-98 og jafnaði þar með metin í 2-2 í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar og Cleveland komst í 3-1 gegn New Jersey með 87-85 sigri á útivelli. Körfubolti 15. maí 2007 11:56
Pistons aðeins einum leik frá úrslitum í austurdeildinni Detroit Pistons þarf nú aðeins einn sigur til þess að spila til úrslita í austurdeildinni í NBA körfuboltanum. Pistons vann öruggan sigur á Chicago í gærkvöldi. Körfubolti 11. maí 2007 11:20
Úrvalslið ársins í NBA tilkynnt í dag Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn skipa úrvalslið ársins í NBA deildinni. Það er nefnd fjölmiðlamanna í Bandaríkjunum og Kanada sem stendur að valinu. Nokkur ný andlit voru í liðunum í ár í bland við gamalkunnug. Körfubolti 10. maí 2007 19:13
Mikil dramatík í Utah Utah hefur náð 2-0 forystu í einvígi sínu við Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir dramatískan sigur í framlengingu í nótt 127-117. Derek Fisher mætti ekki í leikinn fyrr en í síðari hálfleik eftir að hafa flogið frá New York þar sem dóttir hans var í lífshættulegri aðgerð. Fisher spilaði stóra rullu undir lokin og skoraði öll fimm stig sín í framlengingunni. Körfubolti 10. maí 2007 04:29
Utah - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Utah Jazz og Golden State Warriors í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt í nótt. Fyrsti leikur liðanna var æsispennandi og lauk með naumum sigri heimamanna. Hér fyrir neðan má sjá leikina sem sýndir verða næstu daga. Körfubolti 9. maí 2007 20:27
Réttarhöldum yfir Jackson frestað á ný Nú er ljóst að vandræðagemlingurinn Stephen Jackson hjá Golden State Warriors getur spilað með liðinu það sem eftir er af úrslitakeppninni, því réttarhöldum yfir honum hefur ferið frestað í annað sinn til 21. júní. Jackson komst í kast við lögin í haust vegna áfloga og vopnaskaks fyrir utan strípibúllu í Indianapolis. Hann á yfir höfði sér fangelsisvist ef hann verður fundinn sekur. Körfubolti 9. maí 2007 16:34
Phoenix vann nauðsynlegan sigur Phoenix lagði San Antonio á nokkuð sannfærandi hátt 101-81 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Staðan í einvíginu er því orðin jöfn og næstu tveir leikir fara fram í San Antonio. Cleveland náði 2-0 forystu gegn New Jersey með sigri á heimavelli. Körfubolti 9. maí 2007 13:15
Phoenix - San Antonio í beinni í nótt Annar leikur Phoenix Suns og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf þrjú í nótt. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikir verða sýndir á stöðinni og rásum Sýnar næstu daga. Körfubolti 8. maí 2007 17:48
Sér ekkert athugavert við lyfjanotkun íþróttamanna Mark Cuban, eigandi NBA liðs Dallas Mavericks, er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við að íþróttamenn noti lyf til að bæta frammistöðu sína á vellinum. Körfubolti 8. maí 2007 17:28
Nelson bannað að drekka bjór Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors, hefur verið beðinn um að hætta að drekka bjór á blaðamannfundum eftir leiki liðsins í úrslitakeppninni í NBA. Nelson opnaði dós af Bud Light og drakk á blaðamannafundum eftir leikina við Dallas og þótti forráðamönnum deildarinnar þetta ekki við hæfi. Körfubolti 8. maí 2007 17:20
Utah vann nauman sigur á Golden State Fyrsti leikur Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA var æsispennandi en svo fór að lokum að heimamenn í Utah höfðu sigur 116-112 á heimavelli sínum. Leikurinn var að hluta til einvígi leikstjórnendanna Deron Williams og Baron Davis og það var hinn ungi Williams sem náði að leiða lið sitt til sigurs í þetta sinn. Körfubolti 8. maí 2007 06:01
Detroit lúskraði aftur á Chicago Detroit er komið með 2-0 forystu gegn Chicago Bulls í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA eftir annan stóran sigur í í nótt 108-87. Varnarleikur Detroit var ógnarsterkur og Chicago sá aldrei til sólar eftir að hafa lent undir 34-18 strax í fyrsta leikhluta. Detroit vann fyrstu tvo leikina á heimavelli sínum en næstu tveir fara fram í Chicago. Körfubolti 8. maí 2007 05:41
Van Gundy ætlar ekki að hætta Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, segist ekki ætla að hætta að þjálfar eins og fram kom í grein í New York Post um helgina. Hann segist aftur á móti ætla að hugsa sig vel um í sumar og íhuga framhaldið, en hann er með lausa samninga hjá Houston og hefur enn ekki verið boðinn nýr samningur. Lið hans féll úr úrslitakeppninni eftir tap gegn Utah í sjöunda leik um helgina. Körfubolti 7. maí 2007 21:45
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Detroit vann afar sannfærandi sigur í fyrsta leiknum 95-69 og ljóst að gestirnir verða að mæta ákveðnari til leiks í kvöld ef ekki á illa að fara. Í nótt hefst svo einvígi Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 7. maí 2007 15:20
Blóðugt tap hjá Phoenix í fyrsta leik San Antonio vann mikilvægan útisigur á Phoenix Suns í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA á sunnudagskvöldið 111-106. Segja má að tap Phoenix hafi verið blóðugt í bókstaflegum skilningi, því liðið naut ekki krafta Steve Nash á lokasprettinum vegna skurðar sem hann fékk á nefið í fjórða leikhlutanum. Körfubolti 7. maí 2007 01:58
Cleveland lagði New Jersey Cleveland hefur náð 1-0 forystu í einvígi sínu við New Jersey í undanúrstitum Austurdeildarinnar í NBA eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld 81-77. Bæði lið hittu skelfilega í leiknum en það voru fyrst og fremst yfirburðir heimamanna í fráköstunum sem skiluðu sigrinum. Körfubolti 6. maí 2007 19:34
Cleveland - New Jersey í beinni núna Fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og New Jersey Nets hófst klukkan 17 og er hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Klukkan 20:50 verður svo útsending frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio á Sýn. Þetta eru fyrstu leikir liðanna í annari umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 6. maí 2007 17:16
Van Gundy að hætta hjá Houston? Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildamanni sínum í dag, en hann segir brottför hans ekki tengjast tapi liðsins á heimavelli fyrir Utah í úrslitakeppninni í nótt. Van Gundy er með lausa samninga hjá félaginu í sumar. Körfubolti 6. maí 2007 17:08
Sögulegur sigur hjá Utah - McGrady grét á blaðamannafundi Utah Jazz varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA með dramatískum og sögulegum sigri á Houston Rockets í oddaleik í Houston 103-99. Utah varð með sigrinum aðeins 19. liðið í sögu NBA til að vinna leik 7 á útivelli af þeim 97 leikjum þeirrar tegundar sem háðir hafa verið. Körfubolti 6. maí 2007 05:38
Detroit tók Chicago í kennslustund Detroit Pistons bauð Chicago Bulls velkomið í aðra umferð úrslitakeppninnar í nótt með stórsigri 95-69 á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Chicago skoraði aðeins 28 stig í síðari hálfleiknum og þótti fyrnasterkur varnarleikur Detroit-liðsins minna á þann sem tryggði liðinu meistaratitilinn árið 2004. Körfubolti 6. maí 2007 05:29
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Fyrsti leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00 í kvöld. Klukkan 17 á morgun verður fyrsti leikur Cleveland og New Jersey í beinni á stöðinni og klukkan 20:50 verður Sýn með beina útsendingu frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 5. maí 2007 17:07
New Jersey mætir Cleveland Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. Körfubolti 5. maí 2007 03:55
Óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppni NBA Öskubuskulið Golden State Warriors er komið í aðra umferð úrslitakepninnar í NBA deildinni eftir stórsigur á Dallas Maverics í stórkostlegum sjötta leik liðanna í nótt 111-86. Þetta eru almennt talin óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppninnar, en Golden State vann einvígið 4-2. Körfubolti 4. maí 2007 05:48