Dallas vann stóran sigur í San Antonio Dallas vann í nótt 13. sigurinn í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti erkifjendum sínum í San Antonio 90-85 á útivelli. Leikurinn, sem sýndur var beint á Sýn, var æsispennandi allt til loka og nú hefur Dallas unnið þrjá leiki í röð í San Antonio. Körfubolti 6. janúar 2007 14:35
Raja Bell settur í bann Bakvörðurinn Raja Bell verður ekki með liði Phoenix sem tekur á móti Miami Heat í NBA í kvöld eftir að hann var settur í eins leiks bann í kvöld fyrir að sparka í nýliðann Andrea Bargnani hjá Toronto í leik liðanna á miðvikudag. Það ætti þó ekki að koma að sök fyrir Phoenix gegn Miami í kvöld, því gestirnir verða líka mjög undirmannaðir. Körfubolti 5. janúar 2007 22:15
Risaslagur í beinni á Sýn í kvöld Það verður sannkallaður risaslagur í beinni útsendingu Sýnar klukkan 1 í nótt þegar erkifjendurnir San Antonio Spurs og Dallas Mavericks eigast við í NBA deildinni. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og hvort lið hefur sigrað einu sinni. Þau áttust líka við í undanúrslitum Vesturdeildar síðasta vor þar sem Dallas hafði betur í sjö leikjum í einni bestu seríu úrslitakeppninnar. Körfubolti 5. janúar 2007 17:17
Aftur vinnur Dallas 12 í röð Dallas Mavericks vann í nótt sinn 12. leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Indiana á heimavelli 100-91. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Dallas vinnur 12 leiki í röð, sem er einstakur árangur á aðeins tveimur mánuðum. Liðið sækir San Antonio heim í nótt klukkan 1 í beinni á Sýn. Körfubolti 5. janúar 2007 13:28
Baráttan um Texas í beinni á Sýn annað kvöld Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá Sýnar annað kvöld þegar San Antonio tekur á móti Dallas Mavericks í NBA deildinni. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti, en þarna eru á ferðinni tvö af sterkustu liðum deildarinnar. Körfubolti 4. janúar 2007 15:55
Undirmannað lið Miami steinlá á heimavelli Meistarar Miami Heat eiga mjög erfitt verkefni fyrir höndum á næstu vikum eftir að liðið tapaði enn einum leiknum í nótt, að þessu sinni gegn LA Clippers á heimavelli 110-95. Liðið var án fimm fastamanna og þjálfarans Pat Riley sem þarf að gangast undir aðgerð á hné og mjöðm. Körfubolti 4. janúar 2007 05:16
Arenas kláraði Milwaukee Gilbert Arenas lét ekki axlarmeiðsli hafa áhrif á sig í nótt þegar hann skoraði ótrúlega sigurkörfu Washington Wizards í 108-105 sigri liðsins á Milwaukee. Arenas fékk boltann þegar sex sekúndur lifðu leiks og skoraði sigurkörfuna nokkrum metrum fyrir utan þriggja stiga línuna. Körfubolti 4. janúar 2007 04:45
Walker og Posey verða ekki með Miami í nótt Pat Riley, þjálfari Miami Heat, tilkynnti á blaðamannafundi í beinni útsendingu á NBA TV nú í kvöld að hann yrði ekki með liðinu um óákveðinn tíma vegna aðgerða sem hann þarf að gangast undir á hné og mjöðm. Þetta voru ekki einu tíðindin sem Riley tilkynnti á fundinum. Körfubolti 3. janúar 2007 20:55
Minnesota - San Antonio í beinni í kvöld Sjónvarpsleikur kvöldsins á NBA TV rásinni á Fjölvarpinu er viðureign Minnesota Timberwolves og San Antonio Spurs. Þar eigast við tveir af bestu framherjum deildarinnar síðustu ár, þeir Kevin Garnett og Tim Duncan og hefst leikurinn klukkan 1 eftir miðnætti. Körfubolti 3. janúar 2007 19:39
Riley ætlar að taka sér frí frá þjálfun Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, þarf að taka sér frí frá þjálfun um óákveðinn tíma til að gangast undir aðgerð á hné og á mjöðm. Chicago Tribune greindi frá þessu í dag. Ron Rothstein aðstoðarþjálfari liðsins mun taka við stjórn liðsins á meðan Riley nær sér, en liðið er nú að fara í sex leikja keppnisferð um vesturströndina. Körfubolti 3. janúar 2007 18:59
Iverson sendur í bað Allen Iverson náði sér aldrei á strik í fyrsta leik sínum gegn sínum gömlu félögum í Philadelphia í nótt þegar Denver lá heima fyrir botnliðinu 108-97. Iverson skoraði 30 stig og gaf 9 stoðsendingar, en hitti illa, tapaði 7 boltum og var sendur í bað í lokin fyrir að brúka munn við dómara. Körfubolti 3. janúar 2007 14:08
Arenas og Bryant leikmenn mánaðarins í NBA Gilbert Arenas hjá Washington Wizards og Kobe Bryant hjá LA Lakers voru í kvöld útnefndir leikmenn desembermánaðar í NBA deildinni í körfubolta, Arenas í Austurdeildinni og Bryant í Vesturdeildinni. Körfubolti 2. janúar 2007 23:15
D´Antoni og Jordan þjálfarar mánaðarins Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix Suns og Eddie Jordan, þjálfari Washington Wizards, voru í dag útnefndir þjálfarar mánaðarins í Vestur- og Austudeildinni í NBA. Phoenix vann 13 leiki og tapaði aðeins 2, en Washington vann 12 og tapaði 3 í desember. Körfubolti 2. janúar 2007 21:15
Iverson mætir sínum gömlu félögum í nótt Skorarinn mikli Allen Iverson sem nýlega gekk í raðir Denver Nuggets í NBA deildinni, mætir í kvöld sínum gömlu félögum í Philadelphia 76ers. Þetta verður eini leikur Iverson gegn Philadelphia í ár þar sem liðin spiluðu fyrri leik sinn á tímabilinu í haust. Körfubolti 2. janúar 2007 18:02
Stórleikur í beinni á NBA TV í nótt Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá NBA TV sjónvarpsstöðvarinnar á Fjölvarpinu í nótt þegar Chicago Bulls tekur á móti Phoenix Suns. Leikurinn hefst klukkan 1:30 að íslenskum tíma og þar má fastlega reikna með fjörugum leik. Körfubolti 2. janúar 2007 15:43
O´Neal að ná sér Miðherjinn Shaquille O´Neal hefur nú sett stefnuna á að spila sinn fyrsta leik eftir hnéuppskurð þann 15. janúar þegar meistarar Miami sækja LA Lakers heim í síðasta leiknum af sex leikja keppnisferðalagi um vesturströndina. O´Neal hefur aðeins spilað fjóra leiki á tímabilinu. Körfubolti 2. janúar 2007 15:35
Garnett fagnaði gamla boltanum með stórleik Tveir leikir fóru fram í deildarkeppninni í NBA í nótt þar sem gamli leðurboltinn var tekinn formlega í notkun á ný. Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var einn þeirra sem gagnrýndu boltann sem notaður var í fyrsta sinn í haust og hann hélt upp á endurkomu gamla boltans með góðum leik. Körfubolti 2. janúar 2007 14:26
Línur að skýrast í NBA Þrjú efstu lið NBA-deildarinnar; Dallas, San Antonio og Pheonix, unnu öll góða sigra í leikjum sínum í nótt. Þegar tímabilið er nú tæplega hálfnað eru línur teknar að skýrast og er ljóst að Vesturdeildin er mun sterkari en Austurdeildin. Körfubolti 1. janúar 2007 16:30
Jordan skilinn við eiginkonu sína Michael Jordan, besti körfuboltamaður sem uppi hefur verið, er skilin við eiginkonu sína til 17 ára, Juanitu. Í sameiginlegri tilkynningu frá lögmönnum þeirra segir að skilnaðurinn fari fram í mestu vinsemd. Körfubolti 31. desember 2006 18:30
58 stig Kobe dugðu ekki til Kobe Bryant átti stórleik og skoraði alls 58 stig fyrir LA Lakers í leik liðsins gegn Charlotte í NBA-deildinni í nótt. Frammistaðan var hins vegar ekki nóg til að skila Lakers sigri því að Charlotte sigraði eftir þrjár framlengingar, 133-124. Körfubolti 30. desember 2006 11:00
Fratello rekinn frá Memphis Mike Fratello var á fimmtudag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta. Það var gamla kempan Jerry West, núverandi forseti Memphis, sem lét Fratello fjúka. Körfubolti 30. desember 2006 00:04
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. Körfubolti 29. desember 2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. Körfubolti 29. desember 2006 17:00
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Körfubolti 29. desember 2006 15:30
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. Körfubolti 28. desember 2006 15:27
Wade skyggði algjörlega á Kobe Einvígi Dwayne Wade og Kobe Bryant í viðureign Miami og LA Lakers í NBA-deildinni í nótt náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir. Það er skemmst frá því að segja að Bryant kolféll á prófinu á meðan Wade blómstraði í sannfærandi 101-85 sigri Miami. Körfubolti 26. desember 2006 15:30
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. Körfubolti 25. desember 2006 16:30
Houston - Við erum í vanda Miðherjinn Yao Ming hjá Houston Rockets í NBA deildinni leikur ekki með liðinu næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að risinn meiddist á hné í tapleik liðsins gegn LA Clippers í nótt og því er útlit fyrir að liðið verði enn og aftur að finna leið til að sigra án ofurstjarna sinna, Ming og Tracy McGrady. Körfubolti 24. desember 2006 13:52
Mikið áfall fyrir Seattle Rashard Lewis, framherji og lykilmaður Seattle í NBA-deildinni í körfubolta, verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hendi á föstudag. Körfubolti 23. desember 2006 21:00
Tap hjá Iverson í fyrsta leik 22 stig og tíu stoðsendingar frá Allen Iverson dugðu ekki fyrir Denver í nótt þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Sacramento í NBA-deildinni, 101-96. Þetta var fyrsti leikur Iverson fyrir sitt nýja lið. 15 leikja sigurhrinu Pheonix lauk ennfremur í nótt. Körfubolti 23. desember 2006 13:15