Númer Miller hengt upp í mars Reggie Miller fær treyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli Indiana Pacers þann 31. mars næstkomandi í virðingarskyni fyrir farsælan feril hans, en Miller lék öll átján ár sín í deildinni með félaginu. Sport 4. nóvember 2005 17:15
Indiana vann í Miami Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami. Sport 4. nóvember 2005 11:00
Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum. Sport 3. nóvember 2005 15:30
Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City. Sport 2. nóvember 2005 13:00
Dunleavy samdi við Golden State Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður. Sport 1. nóvember 2005 12:00
Prince semur við Detroit Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar. Sport 31. október 2005 18:00
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 27. október 2005 12:15
Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins. Sport 25. október 2005 05:47
San Antonio NBA meistarar Tim Duncan átti eina af sínum slökustu seríum á ferlinum í úrslitunum gegn Detroit, en hann lét það ekki á sig fá og fór fyrir sínum mönnum í lokin á oddaleiknum í gær, þegar San Antonio tryggði sér þriðja titilinn á sjö árum með 81-74 sigri á Detroit. Sport 24. júní 2005 00:01
San Antonio 3 - Detroit 3 Flestir voru búnir að afskrifa meistara Detroit Pistons fyrir sjötta leikinn í San Antonio í lokaúrslitum NBA í gærkvöldi, en meistararnir sýndu og sönnuðu með góðum 95-86 útisigri, af hverju þeir unnu deildina í fyrra. Það verður því hreinn úrslitaleikur milli liðanna á fimmtudagskvöldið. Sport 22. júní 2005 00:01
San Antonio 3 - Detroit 2 Fyrstu fjórir leikirnir í einvígi San Antonio og Detroit voru lítið spennandi og unnust að jafnaði með um 20 stigum. Það var því aðeins tímaspursmál hvenær dramatíkin hæfist í einvíginu og það var vel við hæfi að Robert Horry væri maðurinn til að sjá um þá hlið mála, en hann fór hamförum í lokin þegar San Antonio tryggði sér sigur 96-95, í framlengdum leik. Sport 20. júní 2005 00:01
San Antonio 2 - Detroit 2 Það mætti aðeins eitt lið til leiks í nótt í fjórða leik Detroit og San Antonio í fjórða leik lokaúrslitanna, því strax frá byrjun var ljóst að heimamenn myndu valta yfir daufa gestina og jafna metin í einvíginu eftir slæm töp í fyrstu tveimur leikjunum. Lokastaðan 102-71. Sport 17. júní 2005 00:01
NBA í beinni á Sýn í kvöld Fjórði leikur Detroit Pistons og San Antonio Spurs í lokaúrslitum NBA verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Sport 16. júní 2005 00:01
San Antonio 2 - Detroit 1 Það tók þá langan tíma að sýna það, en Detroit Pistons eru ennþá NBA meistarar. San Antonio hélt í við þá í fyrrihálfleiknum í þriðja leik liðanna í gærkvöldi, en þá hrökk vörn heimamanna í gang fyrir alvöru og skóp góðan 96-79 sigur þeirra í leik sem þeir einfaldlega urðu að vinna. Sport 15. júní 2005 00:01
Phil Jackson aftur til Lakers Los Angeles Lakers hefur endurráðið Phil Jackson sem þjálfara liðsins. Jackson sagði af sér eftir síðustu leiktíð og þjálfaði ekkert á yfirstandandi keppnistímabili. Jackson hefur unnið níu NBA-meistaratitla með Chicago Bulls og Los Angeles og er sigursælasti þjálfari sögunnar ásamt Red Auerbach, fyrrverandi þjálfara Boston Celtics. Sport 14. júní 2005 00:01
Þriðji leikurinn í nótt Detroit og San Antonio mætast í nótt í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-körfuboltans og verður leikurinn á Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. San Antonio er 2-0 yfir í einvíginu en næstu þrír leikir verða á heimavelli meistara Detroit. Sport 14. júní 2005 00:01
San Antonio 2 - Detroit 0 San Antonio Spurs unnu nokkuð auðveldan 97-76 sigur á Detroit í öðrum leik liðanna á sunnudagskvöldið og hafa tekið góða 2-0 forystu í úrslitaeinvíginu. Það var enn og aftur Manu Ginobili sem fór á kostum í liði Spurs og lagði grunninn að sigri þeirra. Sport 13. júní 2005 00:01
San Antonio 1 - Detroit 0 Manu Ginobili stal senunni í fyrsta úrslitaleik San Antonio og Detroit á fimmtudagskvöldið, þegar hann skoraði 15 af 26 stigum sínum í fjórða leikhlutanum og var maðurinn á bak við góðan sigur heimamanna, 84-69. Sport 10. júní 2005 00:01
Spurs-Pistons í beinni í kvöld San Antonio Spurs og Detroit Pistons leika fyrsta leik sinn um NBA-titilinn í körfubolta í kvöld. Fyrstu tveir leikirnir verða á heimavelli San Antonio. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti en allir leikir úrslitaeinvígisins verða í beinni útsendingu á Sýn. Sport 9. júní 2005 00:01
Duncan klár í NBA úrslitin Tim Duncan, leikmaður San Antonio Spurs er klár í slaginn gegn Detroit Pistons í lokaúrslitum NBA og félagar hans eiga ekki til orð til að lýsa ánægju sinni með fyrirliðann, sem er að leika í sínum þriðja úrslitaleik á sex árum. Sport 7. júní 2005 00:01
Miami 3 - Detroit 4 Detroit Pistons stóðust pressuna náðu að sigra Miami Heat, 88-82 á útivelli í oddaleik í úrslitum austurdeildarinnar í nótt og mæta því San Antonio í lokaúrslitunum. Meistararnir voru skrefi á undan heimamönnum lengst af, en það var reynsla þeirra og yfirvegun sem tryggði þeim sigurinn í gær. Sport 7. júní 2005 00:01
Miami 3 - Detroit 3 Larry Brown, þjáfari Detroit Pistons, sýndi leikmönnum sínum vídeóupptökur af leikjum frá í fyrra til að minna þá á hvernig þeir fóru að því að verða meistarar - með baráttu og harðfylgi. Það virðist hafa skilað sér, því meistararnir unnu öruggan 91-66 sigur og jöfnuðu metin í einvíginu. Sport 5. júní 2005 00:01
Miami 3 - Detroit 2 Það voru öðru fremur varamenn Miami Heat sem lögðu grunninn að góðum 88-76 sigri á Detroit Pistons í fimmta leik liðanna í gær og nú er Flórídaliðið komið í afar vænlega stöðu í einvíginu og nægir einn sigur í viðbót til að komast í úrslit NBA í fyrsta skipti í sögu félagsins. Sport 3. júní 2005 00:01
Phoenix 1 - San Antonio 4 San Antonio eru eflaust dauðfegnir að hafa lagt Phoenix Suns í þriðja sinn í röð á útivelli í nótt, 101-95. Ekki aðeins vegna þess að sigurinn tryggði þeim farseðilinn í þriðja úrslitaeinvígið á sjö árum, heldur líka vegna þess að þeir eru lausir við Amare Stoudemire hjá Phoenix. Sport 2. júní 2005 00:01
Miami-Detroit í beinni í kvöld Fimmti leikur Miami Heat og Detroit Pistons verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld klukkan tólf á miðnætti. Staðan í einvíginu er jöfn 2-2 og því má gera ráð fyrir hörkuleik í kvöld, þegar bestu lið austurdeildarinnar keppa um að tryggja sér sæti í úrslitunum gegn San Antonio Spurs. Sport 2. júní 2005 00:01
Miami 2 - Detroit 2 Meistarar Detroit Pistons létu ekki fjölmiðlafárið í kring um yfirvofandi brotthvarf þjálfara síns á sig fá í gær og jöfnuðu metin í einvíginu við Miami Heat með 106-96 sigri í nótt. Richard Hamilton fór mikinn á báðum endum vallarins og heimamenn nýttu sér villuvandræði Shaquille O´Neal. Sport 1. júní 2005 00:01
Phoenix 1 - San Antonio 3 Phoenix Suns neituðu að láta San Antonio Spurs niðurlægja sig í úrslitakeppninni og náðu að vinna sigur í fjórða leik liðanna í nótt, 111-106. Skyndilega eru þeir komnir í ágætis aðstöðu til að bjarga andlitinu, því næsti leikur fer fram á heimavelli þeirra í Phoenix. Þar hafa þeir að vísu ekki riðið feitum hesti gegn Spurs, en þeir virðast hafa endurheimt sjálfstraustið. Sport 31. maí 2005 00:01
Miami 2 - Detroit 1 Miami lék vel í Detroit í nótt og landaði gríðarlega mikilvægum sigri 113-104. Dwayne Wade og Shaquille O´Neal léku vel í fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari má segja að lið Detroit hafi séð um það alveg sjálft að tapa leiknum með slakri vörn og bjánaskap. Sport 30. maí 2005 00:01
Phoenix 0 - San Antonio 3 Lið San Antonio sýndi í fyrstu tveimur leikjunum gegn Phoenix að þeir geta líka skorað mikið af stigum. Í gærkvöldi sýndu þeir hinsvegar sitt rétta andlit í varnarleiknum og með hjálp frá trylltum áhorfendum sínum í SBC Center, unnu þeir sannfærandi 102-92 sigur og eru nánast búnir að gera út um einvígið. Sport 29. maí 2005 00:01
Detroit-Miami í beinni í kvöld Það verður sannkallaður stórleikur í beinni útsendingu á Sýn á miðnætti í kvöld, þegar Detroit Pistons taka á móti Miami Heat í þriðja leiknum í úrslitum austurdeildar NBA. Eftir tap á heimavelli í fyrsta leiknum, tók Flórídaliðið sig saman í andlitinu og sigraði í leik tvö, ekki síst vegna stórleiks Dwayne Wade, sem skoraði 40 stig. Sport 29. maí 2005 00:01