Múlalundur ósáttur við grímukönnun ASÍ Framkvæmdastóri vinnustofunnar Múlalundar segir nýlega verðkönnun ASÍ á grímum vera ranga. ASÍ fagnar því hins vegar að Múlalundur hafi lækkað verðið eftir heimsóknina. Viðskipti innlent 14. ágúst 2020 15:12
Mikill verðmunur á grímum og töluverðum fjölda kippt úr umferð Töluverður verðmunur getur verið á þriggja laga, einnota andlitsgrímum. Viðskipti innlent 13. ágúst 2020 10:56
Volvo innkallaður vegna brunahættu Bílaumboðið Brimborg hefur innkallað á sjötta tug Volvo-bifreiða vegna bilunar í kælikerfinu, sem í alvarlegustu tilfellunum getur orsakað brunahættu. Viðskipti innlent 10. ágúst 2020 12:54
Fleiri kjúklingar innkallaðir Fyrirtækið Reykjagarður hefur stöðvað vinnslu úr tilteknum kjúklingahópi eftir að upp kom grunur um salmonellusmit Viðskipti innlent 4. ágúst 2020 13:35
Efnalaugar geri hreint fyrir sínum dyrum Allar þær nítján efnalaugar sem Neytendastofa tók til skoðunar þurfa að gera bragarbót á vefsíðum sínum. Viðskipti innlent 4. ágúst 2020 12:35
Í lífshættu eftir að hafa smakkað íslenskan orkudrykk Brynja Guðmundsdóttir fékk alvarlegt fiskiofnæmiskast eftir að hafa tekið sopa af íslenska orkudrykknum Collab. Innlent 1. ágúst 2020 19:24
Hafa sagt upp viðskiptasamböndum til að sporna gegn smálánastarfsemi Sparisjóður Strandamanna hefur gripið til viðeigandi ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að innheimta í tengslum við smálánastarfsemi fari fram í gegnum reikninga sjóðsins. Viðskipti innlent 1. ágúst 2020 10:46
Foreldrar hvattir til að hætta notkun Thule Sleek Ákveðið hefur verið að innkalla barnakerrur frá framleiðandanum Thule AB vegna fallhættu. Viðskipti innlent 31. júlí 2020 07:03
Innkalla hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna Dai Phat Trading ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna (Glycidyl ester) í vörunni Viðskipti innlent 30. júlí 2020 15:24
Hafna því alfarið að hafa rúmlega tvöfaldað grímuverð á 23 mínútum Mikill verðmunur á andlitsgrímum sem keyptar voru með 23 mínútna millibili í Lyf og heilsu í Hafnarfirði í dag skýrist af innkaupaverði hjá viðkomandi heildsölum. Viðskipti innlent 30. júlí 2020 14:38
Ólögleg starfsemi þrífist í skjóli sparisjóðsins Neytendasamtökin gagnrýna Sparisjóð Strandamanna fyrir viðskipti hans við smálánafyrirtæki. Viðskipti innlent 28. júlí 2020 10:11
Vara við neyslu á Ali og Bónus-kjúklingi Dreifing á Ali og Bónus-kjúklingi hefur verið stöðvuð vegna gruns um salmonellu. Viðskipti innlent 24. júlí 2020 14:05
Tilhæfulaus skattur innheimtur á tjaldsvæði Breki Karlsson varar við ólöglegri innheimtu. Innlent 17. júlí 2020 13:34
Geta sótt um lán til að endurgreiða ferðir í næstu viku Alþingi hefur samþykkt stofnun Ferðaábyrgðasjóðs í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Ferðaskrifstofur munu geta sótt um lán hjá sjóðnum í byrjun næstu viku og hafist handa við að greiða endurgreiðslukröfur á hendur sér. Viðskipti innlent 17. júlí 2020 11:00
Penninn leggur aukna áherslu á leikföng með kaupum á heildsölu Samkeppniseftirlitið gerar engar athugasemdir við það að Penninn kaupi HB heildverslun að fullu. Viðskipti innlent 13. júlí 2020 14:22
Hættulegri dúkku kippt úr umferð Gallaður rennilás gerir dúkkuna hættulega. Viðskipti innlent 13. júlí 2020 11:12
Íslendingar þyrftu að fimmfalda neysluna til að fylla upp í túristaskarðið Þó að íslenskir ferðamenn myndu „skila sér 100%“ í ferðalögum innanlands í ár mun ekki nást að brúa bilið sem varð til með brotthvarfi erlendra ferðamanna vegna kórónuveirufaraldursins. Viðskipti innlent 10. júlí 2020 14:25
Fjórum apótekum gert að greiða 50 þúsund króna sekt Fjögur apótek á höfuðborgarsvæðinu voru sektuð í upphafi árs fyrir ófullnægjandi verðmerkingar. Viðskipti innlent 8. júlí 2020 14:37
Lýsir undrun og furðu eftir að hafa sótt um lækkun en fengið hækkun Jón Gunnar Benjamínsson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Iceland Unlimited, telur að vinnubrögð Ferðamálastofu við útreikninga á upphæð tryggingar sem fyrirtæki hans þarf að reiða af hendi séu bæði „forkastanleg“ og „fáránleg“. Innlent 8. júlí 2020 11:47
Síminn dæmdur til að greiða sekt fyrir ítrekað brot á fjölmiðlalögum Kröfum Símans hf. á hendur Póst- og fjarskiptastofnun, Gagnaveitu Reykjavíkur, Sýn og Mílu var hafnað af Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn. Viðskipti innlent 2. júlí 2020 13:32
Fá átta milljónir vegna mistaka hjá Umboðsmanni skuldara Íslenska ríkið þarf að greiða hjónum 8,2 milljónir króna í skaðabætur vegna mistaka sem gerð voru hjá Umboðsmanni skuldara þegar starfsmaður stofnunarinnar leiðbeindi þeim ranglega við meðferð greiðsluaðlögunarmáls hjónanna í september 2016. Innlent 1. júlí 2020 21:34
„Algjörlega galið“ að nýr eigandi bíls þurfi að greiða skuldir fyrri eiganda Formaður Neytendasamtakanna segir ný lög um ökurtækjatryggingar „algjörlega galin“ í framkvæmd Viðskipti innlent 1. júlí 2020 21:00
Bónus oftast með lægsta verðið Hæsta verðið á matvöru er í flestum tilvikum að finna í Krambúðinni samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ en verð Krambúðarinnar var það hæsta í 51 af 121 tilviki sem skoðað var. Viðskipti innlent 26. júní 2020 12:09
Creditinfo biður Persónuvernd um að meta hvort lög hafi verið brotin Reynir Grétarsson, eigandi og stjórnarformaður Creditinfo, er ósáttur við afstöðu Neytendasamtakanna gagnvart fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur beðið Persónuvernd um að meta hvort það hafi gerst brotlegt við lög. Innlent 24. júní 2020 22:45
Tripical bíður eftir næstu skrefum ríkisstjórnarinnar Elísabet Agnarsdóttir, eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical, segir ekkert liggja fyrir um framhaldið hjá ferðaskrifstofunni fyrr en ríkisstjórnin hefur ákveðið næstu skref. Innlent 24. júní 2020 10:57
Hegnt fyrir að lækka verð Í grein sem á að fjalla um samkeppniseftirlit og hag neytenda flaskar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA), á nokkrum grundvallaratriðum. Skoðun 19. júní 2020 13:30
Samkeppniseftirlit og hagur neytenda Það má orðið heita fastur liður að talsmenn stórfyrirtækja, sem Samkeppniseftirlitið sektar fyrir samkeppnisbrot, beri sig illa og segi ákvörðunina ganga gegn hagsmunum neytenda af því að nú neyðist þeir til að hækka verðið á þjónustu sinni. Skoðun 18. júní 2020 08:30
Þakkar Íslendingum fyrir að kaupa svona mikið af blómum Sala á afskornum íslenskum blómum hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikil eftir að kórónuveiran kom upp og kom blómabændum skemmtilega á óvart. Rauðar rósir eru alltaf vinsælastar. Innlent 14. júní 2020 13:03
Koma á fót ferðaábyrgðasjóði Stjórnvöld vinna nú að því að koma sérstökum ferðaábyrgðasjóði sem mun hafa það hlutverk að greiða neytendum fyrir ferðir á vegum ferðaskrifstofa sem felldar voru niður á tímabilinu 12. mars síðastliðinn til loka þessa mánaðar. Innlent 12. júní 2020 13:29
Innköllun á SWAGTRON SG5IIBK rafhlaupahjóli Actus ehf. innkallar til uppherslu rafhlaupahjól af gerðinni Swagtron SG5IIBK vegna slysahættu. Samstarf 9. júní 2020 12:13