

Neytendur
Neytendafréttir af íslenskum markaði.

Mæta samkeppni frá netinu og komu Costco með allt að 40 prósent verðlækkunum
Sólning ætlar að lækka verð á dekkjum um allt að 40 prósent. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að hagstæðara gengi, niðurfellingar á tollum og lægra innkaupsverð spili þar stóran þátt en fyrirtækið sé einnig að mæta breyttum aðstæðum á markaði.

Brönsinn í Þrastalundi á milli tannanna á fólki
Auglýsingaherferð Þrastalundar hefur verið umtöluð að undanförnu.

Elín fengið sig fullsadda af óhreinskilni auglýsenda
Bloggarinn og förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir birti nýverið færslu á Twitter þar sem hún fjallar um duldar auglýsingar sem bloggarar og samfélagsmiðlastjörnur dæla út til fylgjenda sinna í formi meðmæla. Sjálf hefur hún tileinkað sér að vera hreinskilin í allri sinni umfjöllun.

Flokka Íslendinga eftir áhrifum þeirra
Höfundur forrits segir það hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og að fyrirtækið sé nú þegar komið með milljón manns á skrá.

„Þjónkun stjórnvalda við framleiðendur er alger“
Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir Brúneggjamálið svokallaða endurspegla það hvernig hagsmunir neytenda séu afgangsstærð á Íslandi. Þeim sé sópað út af borðinu á meðan hagsmunir framleiðenda séu allsráðandi.

Vistvæna bullið
Í september 2003 vöktu Neytendasamtökin athygli yfirvalda á því að engar sérstakar kröfur eða skilyrði væru gerð til framleiðenda sem notuðu heitið "vistvænt“ fyrir framleiðsluvörur sínar. Við bentum á að það stæði í raun ekkert á bak við þetta og þessi markaðssetning væri andstæð samkeppnislögum.

Yfirstjórn Matvælastofnunar vildi ekki upplýsa neytendur í lok síðasta árs
Hluti starfsmanna Matvælastofnunar vildi upplýsa neytendur um að ástandið hjá Brúneggjum í lok árs 2015.

Telja ráðherra skyldugan til að heimila tollfrjálsan innflutning eggja vegna eggjaskorts fyrir jólin
Félag atvinnurekenda skorar á stjórnvöld að gefa þegar í stað út opinn, tollfrjálsan innflutningskvóta á ferskum eggjum til að bregðast við fyrirsjáanlegum eggjaskorti fyrir jólin.

Gunnar Bragi ósammála Vigdísi: „Fjölmiðlar staðið sig býsna vel“
Llandbúnaðarráðherra segist ekki sammála ummælum Vigdísar Hauksdóttur að umfjöllun Kastljóss hafi verið aðför að íslenskum landbúnaði.

Segja merkingar um vistvæna framleiðslu „jafngilda blekkingum“
Stjórn Neytendasamtakanna krefst þess niðurstöður úr skoðunarheimsóknum MAST verði gerðar opinberar.

Framkvæmdastjóri Bónus um Brúnegg: „Í hálfgerðu sjokki“
Eigandi Brúneggja biðst afsökunar.

Félag eggjaframleiðenda biður íslenska neytendur afsökunar
Félag eggjaframleiðenda segist slegið yfir þeim aðbúnaði sem umfjöllun Kastljóss leiddi í ljós að varphænur byggju við í eggjabúi Brúneggja.

Viðskiptavinir geta skilað Brúneggjum
Verslanir Bónuss, Hagkaupa, Krónunnar og Melabúðin taka á móti Brúneggjum óánægðra viðskiptavina.

Formaður Neytendasamtakanna: Vistvæn framleiðsla einungis blekking
Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir það grafalvarlegt að fyrirtækið Brúnegg hafi ítrekað komist upp með að brjóta lög um velferð dýra þrátt fyrir athugasemdir frá Matvælastofnun.

Neytendur blekktir árum saman: Auglýstu vistvæn egg án þess að uppfylla skilyrði
Komið hefur í ljós að fyrirtækið hefur ítrekað brotið lög um velferð dýra auk þess að merkja vörur sínar með villandi hætti.

Vilja borga íslenskum Instagram-stjörnum
Sprotafyrirtækið Takumi tengir saman fyrirtæki og íslenska áhrifavalda á samfélagsmiðlum. Gengið hefur vel í Bretlandi og hefst íslensk herferð fyrir jólin. Hlutafé fyrirtækisins var aukið nýlega og stefnir það næst til Bandaríkjanna

Íslendingar blekktir: Duldar auglýsingar daglegt brauð á Snapchat
Frægustu snappararnir taka að sér að auglýsa varning.

Töldu skýringar RÚV á meintum duldum auglýsingum í Söngvakeppninni ekki traustar
Fjölmilðanefnd tók fyrir kvörtun Magnúsar Ragnarssonar vegna meintra duldra auglýsinga í Söngvakeppni Sjónvarpsins.

„Duldar auglýsingar eru bannaðar“
Neytendastofa segir að upplýsa verði ef greitt er fyrir umfjöllun fjölmiðla um vöru.

Til skoðunar að gefa lífsstílsbloggum gaum: „Duldar auglýsingar bannaðar“
Oft liggur ekki ljóst fyrir hvaða færslur lífsstílsblogga eru auglýsingar og hverjar ekki. Lög segja að skýrt skuli tekið fram hvort um auglýsingu sé að ræða eður ei.

Segir viðbrögð Matvælastofnunar vegna iðnaðarsalts forkastanleg
"Matvælastofnun þarf að skoða sín mál betur,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sem gagnrýnir Matvælastofnun harðlega fyrir viðbrögð sín vegna frétta um að Ölgerðin hafi selt fyrirtækjum iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu.

Ekki lengur magur og fagur
Vífilfell, framleiðendur Coca-Cola á Íslandi hafa ákveðið að hætta framleiðslu á kóladrykknum TAB. Enn á eftir að framleiða eina lotu af TAB í hálfslítra flöskum og má búast við að birgðirnar af því endist fram eftir vori. Eftir það verður TAB ekki fáanlegt hér á landi.

Hver er besti orkudrykkurinn?
Orkudrykkir eru vinsælir á Íslandi og nú má fá margar tegundir í næstu búð eða sjoppu. En hver er bestur? Við leituðum á náðir þriggja þrautþjálfaðra einstaklinga, þeirra Sigurpáls Jóhannessonar einkaþjálfara, Gunnhildar Jónasdóttur fitnessiðkanda og Sigurjóns Ragnars langhlaupara, og létum þá smakka.
Verstu kaupin: Keypti óætt Nunnunammi
Tómas R. Einarsson tónlistarmaður segir frá sínum verstu kaupum. "Eitt sinn þegar ég var í sunnudagsgöngutúr með fjölskyldunni á Sevilla á Spáni rak ég augun í nunnur sem voru að selja kökur og góðgæti við klaustur eitt þar í borg. Ég keypti þó nokkuð af þessu nunnunammi, sem leit afskaplega girnilega út."

Fagna lægra verði á tímaritum
Neytendur fagna samkeppni á tímaritamarkaði og telja hana löngu tímabæra.

Verðið lægst í Krónunni
Verð á matvörum var lægst í Krónunni í lang flestum tilvikum, samkvæmt verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ sem gerð var á þriðjudag, en ekki var birt niðurstaða af verðkönnnun í Bónus. Að sögn ASÍ er það vegna þess að starfsmenn Bónuss hafi reynt að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöður könnunarinnar.

Mjólkin á krónu og undir
Lágvöruverslanir á matvörumarkaði seldu mjólkurlítrann á eina krónu og undir í gær. Matvöruverslanir eiga í verstríði á höfuðborgarsvæðinu. Mátti helst greina harða samkeppni í verði mjólkurvara og gosdrykkja.

Þrefaldur verðmunur á mjólk
Í verðkönnun Fréttablaðsins reyndist verðið í Bónus vera lægst í öllum tilvikum. Krónan fylgir þó fast á hæla þeim í lágu verði og Nettó og Fjarðarkaup blanda sér einnig í baráttuna um lægsta verðið.

Osló og Kaupmannahöfn dýrastar
Osló og Kaupmannahöfn eru þær borgir heims þar sem dýrast er að búa, að frátalinni húsnæðisleigu. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar svissneska bankans UBS á verðlagi í 71 borg í öllum heimsálfum. Sé leigukostnaður íbúðarhúsnæðis talinn með færist London efst á listann. Reykjavík er ekki með í könnuninni.

Kátir með aukna samkeppni
Framkvæmdastjóri Bónuss segist sallarólegur með verðlækkun Krónunnar í dag og jafnvel bara nokkuð kátur með aukna samkeppni. Þeir séu bara upp með sér að verslanakeðja á sama markaði þurfi að lækka sig um allt að 25% til að bjóða sambærilegt verð og Bónus.