Ferðamenn til Beijing verða settir í sóttkví Kínversk yfirvöld hafa ákveðið að allir þeir sem ferðast til Beijing frá útlöndum verði færðir beint í miðlæga sóttkví til eftirlits í fjórtán daga. Víða um heim hefur ferðatakmörkunum og samkomubönnum verið komið á til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 15. mars 2020 10:12
Sérfræðingar efast um tilganginn með því að loka Danmörku Ekki liggur fyrir á hvaða ráðleggingum dönsk stjórnvöld byggðu ákvörðun sína um að loka landamærum sínum fyrir útlendingum vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Sérfræðingar í faraldsfræði telja að lokun landamæranna hafi nær enga þýðingu til að hefta útbreiðsluna í Danmörku þar sem svo stór hluti þjóðarinnar er þegar smitaður. Erlent 15. mars 2020 07:57
Norðmenn loka landamærunum Norsk stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að loka flugvöllum og höfnum í landinu til þess að bregðast við útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 14. mars 2020 18:53
Andaði framan í fólk og sagðist vera smitaður af kórónuveirunni Um það bil fimmtíu lestarfarþegar í Noregi eru á leið í sóttkví eftir að farþegi gekk á milli fólks og andaði framan í það og tilkynnti þeim svo að hann væri smitaður af kórónuveirunni í gær. Erlent 14. mars 2020 09:52
Fyrsta dauðsfallið af völdum veirunnar í Noregi Þetta staðfestir Erna Solberg forsætisráðherra Noregs við norska ríkissjónvarpið NRK. Erlent 12. mars 2020 18:53
Noregur: Allir í sóttkví sem ferðast utan Norðurlandanna Allir þeir sem koma til Noregs og hafa ferðast utan Norðurlanda undanfarnar vikur þurfa að gangast undir sóttkví. Öllu skólahaldi verður frestað. Erlent 12. mars 2020 14:16
Tímabilið í norska handboltanum flautað af vegna veirunnar Tímabilinu í norska handboltanum er lokið. Ákveðið hefur verið að aflýsa því vegna kórónuveirunnar. Handbolti 12. mars 2020 13:06
Norðmenn loka skólum Yfirvöld í Noregi hafa ákveðið að grípa til þess ráðs að loka skólum og leikskólum í stærstu borgum landsins frá og með 16. mars vegna kórónuveirunnar. Erlent 12. mars 2020 11:12
Stærsta líkamsræktarkeðja Norðurlanda lokar stöðvum í hálfan mánuð Sats, stærsta líkamsræktarstöðvakeðja Norðurlanda, hefur ákveðið að loka öllum stöðvum sínum næsta hálfa mánuðinn. Viðskipti erlent 12. mars 2020 08:13
Trine Skei Grande segir af sér Leiðtogi norska stjórnarflokksins Venstre hefur ákveðið að segja af sér embætti. Erlent 11. mars 2020 13:23
Norðmenn að eignast um 1600 íbúðir á Íslandi Fredensborg ICE ehf, dótturfélag hins norska Fredensborg AS, hefur keypt næstum tvo þriðju hluta í Heimavöllum, sem sérhæfir sig í útleigu íbúða. Viðskipti innlent 10. mars 2020 10:17
Sitja sem fastast vegna gruns um kórónuveirusmit Þýska skemmtiferðaskipið Aida Aura hefur frestað brottför sinni frá Haugasundi í Noregi vegna gruns um kórónuveirusmit um borð. Erlent 3. mars 2020 08:10
130 manna norskt herlið og herþotur fyrir á sjötta tug milljarða sinna gæslu á Íslandi Norðmönnum mikilvægt að geta sýnt heiminum nýfenginn styrk sinn sem fylgir F-35 orrustuþotunum. Að bera saman F-35 og F-16 þotur er eins og að bera saman gamlan Volvo og nýja Teslu. Innlent 2. mars 2020 17:30
Sjávarútvegsráðherra sagði af sér vegna starfslokagreiðslu Sjávarútvegsráðherra Noregs, Geir Inge Sivertsen, baðst í gær lausnar frá ráðherraembætti, eftir aðeins einn mánuð í starfi. Ástæðan er sú að hann þáði starfslokagreiðslu sem bæjarstjóri. Erlent 29. febrúar 2020 08:44
Átta ný tilfelli staðfest á Norðurlöndunum Fimm tilfelli kórónuveirunnar,sem valdið getur Covid-19-sjúkdómnum, greindust í Svíþjóð í dag, þá greindust þrjú ný tilfelli í Noregi. Erlent 27. febrúar 2020 20:00
Kórónuveirusmit staðfest í Noregi Hin smitaða kom til landsins frá Kína um síðastliðna helgi og er nú í sóttkví. Erlent 26. febrúar 2020 21:05
Norska Eurovision-goðsögnin Jahn Teigen er látin Norski söngvarinn og skemmtikrafturinn Jahn Teigen er látinn, sjötugur að aldri. Lífið 25. febrúar 2020 09:23
Ákærður fyrir morð og brot á hryðjuverkalöggjöfinni Saksóknarar í Noregi hafa ákært hinn 22 ára Philip Manshaus fyrir morð og brot gegn hryðjuverkalöggjöfinni. Erlent 17. febrúar 2020 14:02
Norski flugherinn á leið til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu norska flughersins. Innlent 17. febrúar 2020 13:04
„Tom, ertu tilbúinn að semja?“ Tom Hagen, eiginmaður Anne-Elisabeth Hagen sem hvarf frá heimili þeirra hjóna í Noregi haustið 2018, fór á svig við ráðleggingar lögreglu og greiddi meintum mannræningjum konu sinnar 1,3 milljónir evra í fyrra. Erlent 17. febrúar 2020 11:08
Haaland á ógnarhraða í hóp tíu markahæstu Erling Braut Haaland er kominn í hóp tíu markahæstu manna í þýsku 1. deildinni í fótbolta eftir að hann skoraði í 4-0 sigri Dortmund á Frankfurt í kvöld. Fótbolti 14. febrúar 2020 21:36
Eitt fullkomnasta sláturskip heims á leið vestur til bjargar Arnarlax horfar fram á mikið tjón vegna laxadauða í sjókvíaeldi sínu. Innlent 14. febrúar 2020 14:30
„Hvað er sannarlega skandinavískt? Ekkert“ Norræna flugfélagið SAS hefur tekið nýlega auglýsingu sína úr birtingu eftir að auglýsingin var harðlega gagnrýnd. Viðskipti erlent 13. febrúar 2020 08:09
DNB hætt viðskiptum við Samherja NRK, norska ríkisútvarpið, fullyrðir á vef sínum í dag að norski bankinn DNB hafi sagt upp öllum viðskiptum við útgerðarfyrirtækið Samherja. Viðskipti innlent 12. febrúar 2020 17:39
Viaplay hirðir enska boltann af TV2 Norræna fjölmiðlafyrirtækið Nordic Entertainment Group (NENT), sem gerir út streymisveituna Viaplay, hefur öðlast sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku árin 2022 til 2028. Viðskipti erlent 6. febrúar 2020 10:45
Katrín ræddi loftslagsmál, Brexit og FATF við leiðtoga EFTA-ríkjanna Samstarf EFTA-ríkjanna í samskiptum við Bretland á árinu var sérstaklega rætt á fundinum en ríkin eiga marga sameiginlega hagsmuni gagnvart Bretlandi. Innlent 3. febrúar 2020 14:43
Vill jarða orðróminn um að Keikó sé ekki grafinn í fjörunni í Norðurmæri Norski bóndinn Arve Henden ákvað nýverið að grafa niður að líkamsleifum háhyrningsins Keikó sem hvíla við ströndina nærri bænum Halsa í Norðurmæri. Erlent 3. febrúar 2020 14:18
SAS stöðvar ferðir til Kína Norræna flugfélagið SAS hefur ákveðið að aflýsa öllum flugferðum félagsins til og frá Kína fram til 9. febrúar hið minnsta. Viðskipti erlent 30. janúar 2020 12:52
Hálfu loftrými Noregs lokað í um hálftíma Norsk flugmálayfirvöld lokuðu hálfu loftrými landsins, á svæðinu norður af Røros, í um hálftíma í dag. Erlent 29. janúar 2020 12:39
Ein besta knattspyrnukona heims sleit krossband Norska knattspyrnukonan Ada Hegerberg spilar ekki meira á þessu tímabil eftir að hafa meiðst illa á hné. Fótbolti 29. janúar 2020 12:30