Skotland

Skotland

Höfuðborg: Edinborg. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 80.231 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vilja verða jafningjar Eng­lendinga

Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð.

Erlent
Fréttamynd

„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla Eng­land“

„Þetta er auðvitað ofboðslega erfitt og þetta er nú langur vegur. Þetta er ekki eitthvað sem er að fara að gerast hér á næstunni. Það sem þeir eru að gera núna er að krefjast réttarins til þess að halda atkvæðagreiðsluna því að þeir geta ekki gert það upp á eigin spýtur samkvæmt bresku stjórnarskránni og í rauninni þarf forsætisráðherra að fallast á þetta.“ 

Erlent
Fréttamynd

„Konungur norðursins“ sjöundi for­sætis­ráð­herrann á ára­tug

Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin.

Erlent
Fréttamynd

Starmer segir af sér

Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 

Erlent
Fréttamynd

Sak­felldur vegna sjálfs­vígs eigin­konunnar

Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi.

Erlent
Fréttamynd

Til­lögu um lög­leiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skot­landi

Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum.

Erlent
Fréttamynd

Eld­haf í Glasgow

Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað.

Erlent
Fréttamynd

Vellinum í Edin­borg lokað um stund og seinkanir mögu­legar

Edinborgarflugvelli var lokað í skamma stund í morgun vegna bilana hjá þjónustuaðila flugumferðarstjórnarinnar á vellinum. Að sögn Guðna Sigurðssonar, staðgengils forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, kann lokunin að hafa einhverja seinkun í för með sér fyrir farþega félagsins.

Erlent
Fréttamynd

Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mis­tök

Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, segir blikur á lofti í breskum stjórnmálum. Sótt sé að stofnunum sem gegni lykilhlutverki í lýðræðissamfélagi, þar á meðal fjölmiðlum á borð við BBC. Þótt fjölmiðillinn hafi gert mistök og sé ekki hafin yfir gagnrýni, sé markvisst reynt að grafa undan stofnuninni. Þá óttast Sturgeon mögulegt bakslag í kvennréttindabaráttunni en hún segir konur í leiðtogastöðum verða fyrir auknu aðkasti frá því sem var þegar hún var að hefja sinn leiðtogaferil í stjórnmálum.

Erlent
Fréttamynd

Sæti Artúrs logar

Sinueldur kviknaði á Sæti Artúrs, fjallinu sem gnæfir yfir Edinborg, í dag. Fjallið er vinsæll áfangastaður ferðamanna og borgarbúa á hlýjum sumardögum en í dag sást login og reykstrókarnir um alla borgina.

Erlent