Snæfell spillti sigurveislu Keflavíkur og tryggði sig inn í úrslitakeppnina Keflavíkurkonum tókst ekki að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Expreess deild kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfellskonur mættu í Toyota-höllina í Keflavík, spilltu sigurveislu Keflavíkur og tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með 61-59 sigri. Snæfell varð jafnframt fyrsta liðið til að vinna kvennalið Keflavíkur í Toyota-höllinni í vetur en Keflavíkurliðið var fyrir leikinn búið að vinna alla þrettán heimaleiki sína í deildinni. Körfubolti 13. mars 2012 20:59
Verða Keflavíkurkonur deildarmeistarar í kvöld? Keflavíkurkonur geta orðið deildarmeistarar í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld vinni þær Snæfell í Toyota-höllinni í Keflavík en leikurinn hefst klukkan 19.15. Körfubolti 13. mars 2012 06:00
Keflavíkurkonur þurfa að bíða lengur - myndir Kvennalið Keflavíkur tókst ekki að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í kvöld þegar liðið heimsótti Hauka í Schenkerhöllina á Ásvöllum. Keflavík nægði sigur í leiknum og var fjórum stigum yfir í hálfleik. Haukakonur áttu hinsvegar frábæran seinni hálfleik og komust aftur upp í 4. sæti deildarinnar með 16 stiga sigri. Körfubolti 7. mars 2012 23:07
Hardy skoraði 49 stig þegar Njarðvík stöðvaði sigurgöngu Snæfells Njarðvík stöðvaði sjö leikja sigurgöngu Snæfells með því að vinna Snæfell með fimm stiga mun, 97-92, í leik liðanna í Iceland Express deild kvenna sem fram fór í Ljónagryfjunni í kvöld. Njarðvíkurkonur léku án leikstjórnandans Shanae Baker-Brice en Lele Hardy sá til þess að þær söknuðu hennar ekki mikið. Hardy var með 49 stig, 21 frákast og 8 stoðsendingar. Körfubolti 7. mars 2012 20:57
Fjölnir fór langt með að bjarga sér með sigri í Hveragerði Fjölniskonur unnu sex stiga sigur á Hamar í Hveragerði, 77-71, í Iceland Express deild kvenna í kvöld og náðu þar með fjögurra stiga forskoti á Hamar í baráttu liðanna um að sleppa við fall. Hamar getur enn náð Fjölni í síðustu tveimur umferðunum því Hamarskonur eru með betri árangur í innbyrðisviðureignum. Körfubolti 7. mars 2012 20:53
Nýr kani og Haukakonur léku sér að verðandi deildarmeisturum Tierny Jenkins átti frábæra innkomu í lið Hauka þegar hún lék sinn fyrsta leik með Haukum í kvöld. Jenkins var með 24 stig og 17 fráköst og 8 stoðsendingar og Haukar unnu öruggan 16 stiga sigur á verðandi deildarmeisturum Keflavíkur, 84-68, en Keflavík hefði tryggt sér sigur í deildinni með því að vinna þennan leik. Haukaliðið gerði út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann 36-19. Körfubolti 7. mars 2012 20:46
Valskonur eiga ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni - myndir Valskonur eiga ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í körfubolta eftir 71-78 tap á móti KR í framlengdum leik í kvöld. Valur getur náð KR að stigum með því að vinna tvo síðustu leiki sína en verður alltaf neðar á innbyrðisviðureignum. Körfubolti 6. mars 2012 23:03
KR vann Val í framlengingu - Prosser með 18 stig á síðustu 15 mínútunum KR endaði fimm leikja taphrinu sína og komst aftur upp í 4. sætið í Iceland Express deild kvenna með sjö stiga sigri á Val, 78-71, í æsispennandi framlengdum leik í DHL-höllinni í kvöld. Valskonur mættu í leikinn á mikilli siglingu en eftir þetta tap hafa vonir liðsins um sæti í úrslitakeppninni veikst mikið. Körfubolti 6. mars 2012 21:04
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 68-66 | Valur vann Hauka Keflavík fór langleiðina með deildarmeistaratitilinn í gærkvöldi þegar þær unnu Njarðvík 68-66 í æsispennandi leik í Iceland-Express deild kvenna. Nú munar fjórum stigum á Keflavík og Njarðvík sem verma efstu tvö sætin en aðeins eru þrjár umferðir eftir. Körfubolti 4. mars 2012 20:02
Úrslit kvöldsins í IE-deild kvenna | Snæfell lagði KR Heil umferð fór fram í Iceland Express-deild kvenna og var mest spenna fyrir leik KR og Snæfells. Körfubolti 29. febrúar 2012 21:18
Hildur ætlar að harka af sér í kvöld KR og Snæfell mætast í DHL-höllinni í kvöld í einum af úrslitaleikjunum um sæti í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna en liðin mega ekkert gefa eftir ætli þau að vera með í úrslitakeppninni í ár. Körfubolti 29. febrúar 2012 06:00
KR skiptir um þjálfara í kvennakörfunni Ara Gunnarssyni, þjálfara kvennaliðs KR í körfubolta, hefur verið sagt upp störfum. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins í kvöld. Körfubolti 23. febrúar 2012 23:23
Galopin barátta um þriðja sætið | toppliðin unnu Heil umferð fór fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld. Keflavík og Njarðvík, efstu tvö lið deildarinnar, unnu bæði sína leiki í kvöld en næstu þrjú lið á eftir eru nú jöfn að stigum. Körfubolti 22. febrúar 2012 21:13
Fögnuður Njarðvíkurstúlkna - myndir Njarðvík vann magnaðan sigur á Snæfelli í úrslitum Poweradebikars kvenna í Laugardalshöll í dag. Njarðvík skrefi á undan og vel að titlinum komið. Körfubolti 18. febrúar 2012 18:50
Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Njarðvík 77-84 Njarðvík skrifaði nýjan kafla í glæsta sögu félagsins með 84-77 sigri gegn liði Snæfells í úrslitum Powerade-bikarkeppni kvenna í körfuknatleik. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið Njarðvíkur vinnur stóran titil í körfubolta en Njarðvík hefur þrívegis áður leiki til úrslita. Snæfell var í fyrsta sinn í úrslitum keppninnar. Körfubolti 18. febrúar 2012 13:00
Ferskir vindar um Höllina Þrjú af fjórum félögum í bikarúrslitaleikjunum í ár hafa ekki unnið bikarinn og karlalið Tindastóls og kvennalið Snæfells spila bæði sinn fyrsta bikarúrslitaleik í Höllinni í dag. Spámenn og konur úr Iceland Express deildunum eru á því að Tindastól og Nja Körfubolti 18. febrúar 2012 10:00
Hver vinnur hjá konunum? Fréttablaðið fékk leikmenn úr fimm efstu liðunum í Iceland Express-deild kvenna(fyrir utan bikarúrslitaliðin) til að spá fyrir um úrslit í bikarúrslitaleik kvenna í dag og að spá fyrir um hvaða leikmaður verði kosinn kona leiksins. Körfubolti 18. febrúar 2012 09:00
Bryndís er ekki með slitið krossband en Helga er úr leik KR verður án tveggja lykilmanna á næstunni en liðið stendur í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Varafyrirliðinn Helga Einarsdóttir verður ekkert meira með á tímabilinu vegna meiðsla í baki og Bryndís Guðmundsdóttir missir af næstu þremur til fjórum vikum. Körfubolti 15. febrúar 2012 07:00
Snæfellskonur í Höllina í fyrsta sinn | Unnu Stjörnuna örugglega Kvennalið Snæfells tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum eftir 46 stiga sigur á 1. deildarliði Stjörnunnar, 101-55, í undanúrslitaleik liðanna í Poweradebikar kvenna í Stykkishólmi í kvöld. Sigur Snæfellsliðsins var sannfærandi og öruggur. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið Snæfells kemst í bikarúrslitaleikinn. Körfubolti 13. febrúar 2012 20:39
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Haukar 75 - 73 Shanae Baker-Brice tryggði Njarðvíkingum sæti í úrslitum Powerade bikarsins í 75-73 sigri Njarðvíkur á Haukum. Hún skoraði sigurkörfuna þegar 9 sekúndur voru eftir af framlengingunni en Haukastúlkur náðu ekki að svara því. Körfubolti 13. febrúar 2012 19:18
Auðvelt hjá Keflvíkingum Keflavík vann öruggan sigur á Fjölni, 93-69, í Iceland Express-deild kvenna í dag. Sigurinn var öruggur eins og tölurnar bera með sér. Körfubolti 12. febrúar 2012 18:34
Óvæntur sigur Hamars í vesturbænum Hamarskonur komu heldur betur á óvart í Iceland Express-deild kvenna með því að vinna sterkt lið KR í vesturbæ Reykjavíkur í dag, 72-69. Alls fóru þrír leikir fram í dag. Körfubolti 11. febrúar 2012 18:24
Kæru Keflvíkinga hafnað | Úrslitin standa í leik Njarðvíkur og Keflavíkur Úrslitin úr leik Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta sem fram fór þann 23. janúar síðastliðinn, munu standa en það er niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar Körfuknattleikssambands Íslands. Njarðvík verður því í undanúrslitum keppninnar ásamt Haukum, Snæfelli og Stjörnunni. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 9. febrúar 2012 17:29
Keflavík skellti KR | Öll úrslit kvöldsins Keflavík gefur ekkert eftir í Iceland Express-deild kvenna en liðið skellti KR-stúlkum í kvöld. Körfubolti 8. febrúar 2012 21:15
Undanúrslit í uppnámi Ekki er ljóst hvenær undanúrslitaleikirnir í bikarkeppni kvenna í körfuknattleik fara fram. Beðið er eftir niðurstöðu kærumáls úr leik Njarðvíkur og Keflavíkur sem fram fór í átta liða úrslitum. Körfubolti 7. febrúar 2012 06:00
Óvæntur sigur Snæfells á toppliði Keflavíkur Snæfell gerði sér lítið fyrir og skellti toppliði Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna í Stykkishólmi í kvöld. Alls fóru þrír leikir fram í deildinn í kvöld. Körfubolti 1. febrúar 2012 21:04
Keflavík lagði Hauka - Valur, Hamar og Njarðvík með sigra Keflavík heldur fjögurra stiga forskoti á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik eftir 78-75 heimasigur á Haukum. Valskonur unnu óvæntan sigur á KR, Hamar lagði Fjölni og Njarðvík vann útisigur á Snæfell. Körfubolti 28. janúar 2012 18:50
Haukakonur aftur upp fyrir KR | Vonin orðin veik hjá Val Haukakonur endurheimtu þriðja sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta með því að vinna átján stiga sigur á Val, 84-66, á Ásvöllum í kvöld. Von Valskvenna á því að komast í úrslitakeppnina er nú orðin afar veik en liðið er nú tíu stigum á eftir Haukum og KR sem eru í 3. og 4. sæti. Körfubolti 25. janúar 2012 20:48
Keflavíkurkonur hefndu bikartapsins og unnu í Ljónagryfjunni Keflavík styrkti stöðu sína á toppi Iceland Express deildar kvenna eftir sex stiga útisigur á Njarðvík, 68-62, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Keflavík er eftir leikinn með fjögurra stiga forskot á Njarðvík á toppi deildarinnar. Körfubolti 25. janúar 2012 20:40
KR-konur upp í þriðja sætið | Fóru illa með Fjölni KR-konur eru komnar upp í þriðja sæti Iceland Express deildar kvenna eftir sannfærandi 44 stiga sigur á Fjölni í kvöld, 86-42. KR fór upp fyrir Hauka en Haukakonur eiga leik inni á móti Val á morgun. Körfubolti 24. janúar 2012 20:47